Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Endurbæta hengibrúna í Blöndudal

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 23.5.2026 | 21:39 Endurbæta hengibrúna í Blöndudal Á verkstað í Blöndudal er heilmikið umstang. Stór krani er þarfaþing við framkvæmdirnar sem fuglar himins fylgjast vel með. mbl.is/Sigurður Bogi Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki „Þessar framkvæmdir eru heilmikið föndur sem hefur tekið sinn tíma. Brúin er komin vel til ára sinna, þurfti því viðhald og í svona verkefnum er að mörgu að hyggja,“ segir Júlíus Róbertsson. Hann er einn liðsmanna í brúarvinnuflokki Vegagerðarinnar sem síðustu mánuði hefur verið að störfum við brúna yfir Blöndu nærri Löngumýri í Austur-Húnavatnssýslu. Þetta er stór hengibrú, smíðuð árið 1944, og eftir notkun í meira en 80 ár þurfti að gera ýmsar endurbætur. Farið var í steypuviðgerðir, bæði á stöplum og turnunum tveimur sem halda uppi vírivirkinu sem brúargólfið hvílir á. Einnig þurfti að dytta að handriðum og nefna mætti fleira.“ Lagfæringar á brúm bæti öryggi Flokkurinn sem núna er að störfum við Blöndu er gerður út frá Hvammstanga og er undir verkstjórn Vilhjálms Arnórsson brúarsmiðs. „Þetta er traustur mannskapur; strákar sem kunna vel til verka. Núna eru fjórir til fimm menn við Blöndu, en annars skiptum við hópnum svolítið milli verkefna. Annað gengi er núna í Norðurárdal í Borgarfirði. Svo er fram undan í sumar að lagfæra brú yfir Svartárdal sem er hér nálægt. Mörg verkefni vinnuflokksins nú felast í því að lagfæra brýr með aðgerðum sem miða að því að bæta umferðaröryggi,” segir Vilhjálmur, sem á að baki langan feril við brúarsmíði. „Við Blöndu byrjuðum við í október og höfum tekið þetta í nokkrum lotum. Núna sér þó orðið fyrir endann á verkefninu, sem ætti að ljúka eftir tvær vikur eða svo. Steypuviðgerðir voru stór hluti af þessu. Einnig verkuðum við upp söðlana í turn brúarinnar sem vírar hennar hvíla í. Þar var allt menjað, vatnsvarið og kíttað í bak og fyrir. Núna held ég að segja megi að ástand brúarinnar sé orðið býsna gott og ekkert bendir til annars en að hún dugi í einhverja áratugi enn,“ tilgreinir Vilhjálmur. Að mörgu er að hyggja, segir Júlíus Rafnsson brúarsmiður. mbl.is/Sigurður Bogi Mikil umferð yfir brúna Umferð yfir Blöndubrúna er mikil. Í fyrsta lagi er hún tenging innansveitar í Blöndudal og nærliggjandi byggðum. Yfir sumartímann og fram á haust bætist svo við umferð bíla sem fara um Kjalveg. Leið margra, sem til dæmis koma að norðan, er þá að beygja af hringveginum í Langadal til suðurs, þar sem ekið er austanvert við fljótið. Svo er farið yfir brúna og þá beygt til vinstri og þar fram Blöndudal. Þegar kemur þar upp á brúnir tekur Kjalvegurinn við, alls 170 kílómetra leið yfir hálendið suður að Gullfossi og í Bláskógabyggð. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » „Ég var brjálaður yfir því að hafa tapað“ Endurbæta hengibrúna í Blöndudal Stórsigur Real er fyrirliðinn kvaddi Hlaut 25 ára dóm fyrir nauðganir og pyntingar Orri skoraði í síðasta leiknum á Spáni Umræðan Hljóðfærsla í Kákasusfjöllum Í dóm þjóðarinnar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Rúmlega áttræð kona vann 130 milljónir: „Ja, hérna“ Taka ekki tillit til ósamræmisins Aukið eftirlit yfir helgina Skilar sér í hærri rekstrarkostnaði Mest lesið Í gær Í vikunni „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Óhljóð í nýjum sætum Icelandair Flak Víkartinds kemur undan svörtum sandi Háfsfjöru Sjö ferðum aflýst: Ekki upplifað slíka stöðu áður Afleit reynsla af Skattinum Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar Fimm flugferðum aflýst: Flugvéla- og áhafnaskortur Byggingarfyrirtæki gætu farið í þrot Íslendingur vann 336 milljónir í EuroJackpot Heppinn spilari 11 milljónum ríkari Margrét Helga í Kastljósið, þessi sóttu um Rúmlega áttræð kona vann 130 milljónir: „Ja, hérna“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Íslendingur vann 336 milljónir í EuroJackpot Neyðarskýli lokað og íbúar fluttir Markleysið enn einn áfellisdómur „Eina rökrétta niðurstaða þessara kosninga“ Þrefalt hærri tíðni meðal útlendinga Gert að greiða 69 milljóna sekt Björgólfur Thor nældi sér í þrenn gullverðlaun Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Enginn mætti frá ríkisstjórninni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Nýjast á mbl.is » „Ég var brjálaður yfir því að hafa tapað“ Endurbæta hengibrúna í Blöndudal Stórsigur Real er fyrirliðinn kvaddi Hlaut 25 ára dóm fyrir nauðganir og pyntingar Orri skoraði í síðasta leiknum á Spáni Umræðan Hljóðfærsla í Kákasusfjöllum Í dóm þjóðarinnar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óku á gangandi vegfaranda og vistaðir í fangageymslu Sjö ferðum aflýst: Ekki upplifað slíka stöðu áður Segir rangfærslur og ærumeiðingar í dómnum Hernaðardróni brotlenti rétt hjá Íslendingi í hjólaferð Mest lesið Í gær Í vikunni „Fólk verður bara lasnara og lasnara“ Óhljóð í nýjum sætum Icelandair Flak Víkartinds kemur undan svörtum sandi Háfsfjöru Sjö ferðum aflýst: Ekki upplifað slíka stöðu áður Afleit reynsla af Skattinum Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar Fimm flugferðum aflýst: Flugvéla- og áhafnaskortur Byggingarfyrirtæki gætu farið í þrot Íslendingur vann 336 milljónir í EuroJackpot Heppinn spilari 11 milljónum ríkari Margrét Helga í Kastljósið, þessi sóttu um Rúmlega áttræð kona vann 130 milljónir: „Ja, hérna“ Öllum sagt upp hjá Hilton og Natura Íslendingur vann 336 milljónir í EuroJackpot Neyðarskýli lokað og íbúar fluttir Markleysið enn einn áfellisdómur „Eina rökrétta niðurstaða þessara kosninga“ Þrefalt hærri tíðni meðal útlendinga Gert að greiða 69 milljóna sekt Björgólfur Thor nældi sér í þrenn gullverðlaun Beint: Brugðist við kosningunum Blóðugur reikningur á Tenerife Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Enginn mætti frá ríkisstjórninni Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Vann 130 milljónir Réðust á starfsmann skoðunarstöðvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni?

Share this article