Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Þá leist okkur ekki á blikuna“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 16.3.2026 | 11:55 „Þá leist okkur ekki á blikuna“ Telma Ívarsdóttir, Hildur Unnarsdóttir og Ingibjörg Rafnsdóttir biðu veðrið af sér á Blönduósi. Ljósmynd/Aðsend Setja bókamerki Þeim stöllum Telmu Ívarsdóttur, Hildi Unnarsdóttur og Ingibjörgu Rafnsdóttur leist ekki á blikuna þegar Holtavörðuheiði blasti við þeim í gær. Sérstaklega var Hildur, sem var undir stýri, orðin nokkuð smeyk og því var léttirinn talsverður þegar í ljós kom að þær höfðu í raun verið á nákvæmlega réttum stað, „svona hremmingarlega séð.“ Veginum um Holtavörðuheiði var nefnilega lokað beint fyrir framan þær og voru þær í fyrsta bílnum sem varð fyrir lokuninni að þeirra sögn. Stöllurnar vinna í fjármálageiranum. Þær eru 23 og 24 ára gamlar og voru á leið suður eftir að hafa keppt á fótboltamóti fjármálafyrirtækja á Akureyri. Frétt af mbl.is Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Voru ekki vissar með Póló-inn Þær voru á Volkswagen Póló-bifreið, sem þó var á nagladekkjum, en töldu sig engu að síður ekki sérlega vel í stakk búnar til að takast á við aðstæðurnar sem fram undan voru. „Við fórum af stað frá Akureyri og vorum komnar að Víðigerði þegar veginum var lokað. Við biðum þar fyrst í um eina og hálfa klukkustund. Við vorum reglulega í símanum við Vegagerðina – enda bara á þessum Póló,“ segir Telma. Frétt af mbl.is Um 500 manns biðu veðrið af sér Eftir um tveggja og hálfs klukkustundar bið voru tugir, ef ekki hundruð, bíla komnir fyrir aftan þær á veginum. Þá ákváðu þær að kanna hvort þær gætu fengið inni í sumarbústað sem Telma hefur aðgang að á Blönduósi. Bílar að fara út af „Við sáum í vefmyndavél Vegagerðarinnar að bílar voru farnir út af veginum. Þá leist okkur ekki á blikuna, sérstaklega þar sem þetta voru stærri bílar en þessi Volkswagen Polo. Þannig að við ákváðum bara að fá okkur pítsu á veitingastað og slaka aðeins á,“ segir Telma. Að Íslendingar bjargi sér þegar veður og færð gera ferðalög erfið er vart óalgengt. Það er hins vegar öllu sjaldgæfara að lenda í nákvæmlega sömu aðstæðum tvö ár í röð. Lenti í sömu aðstæðum í fyrra „Ég lenti í nákvæmlega sama í mars í fyrra þegar við vorum líka á þessu fótboltamóti,“ segir Telma. „Þá vorum við reyndar á heilsársdekkjum og þorðum ekki að keyra Bröttubrekku.“ Úr varð að þær gistu þá, líkt og nú, í sumarbústað í sumarbústaðahverfinu Glaðheimum á Blönduósi. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Þá leist okkur ekki á blikuna“ Mímir sér rautt yfir áfengissölu Erling Haaland á förum? Framkvæmdir hafnar við Glerá Syndajátning fyrr á dagskrá Umræðan Hver á þennan bústað, já eða nei? Grænni, friðsamlegri og manneskjulegri framtíðarsýn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hríðarveður norðvestanlands Í svaðilför þvert yfir Suðurskautslandið Ekki hægt að segja nei við þessi augu! Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Mest lesið Í gær Í vikunni Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Snýr aftur eftir endurhæfingu Eldurinn kviknaði út frá kerti Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang New York Times fjallar um hraunkælingarstjórann Bendir á pólitískan ómöguleika Fundarfall þegar ráðherrann fór til Síle Um 500 manns biðu veðrið af sér Gular viðvaranir: Stormur og hríð í kortunum Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í íbúð Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns „Hélt ég væri game over“ Ólafur Ragnar furðar sig á „óvissudansi“ ESB Þjóðvegurinn lokaður: Koma upp fjöldahjálparstöð Unnið við lúxushótel á ný Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í íbúð Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Nýjast á mbl.is » „Þá leist okkur ekki á blikuna“ Mímir sér rautt yfir áfengissölu Erling Haaland á förum? Framkvæmdir hafnar við Glerá Syndajátning fyrr á dagskrá Umræðan Hver á þennan bústað, já eða nei? Grænni, friðsamlegri og manneskjulegri framtíðarsýn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir lokanirnar klárt brot á lögum landsins Hyggjast fjölga hjúkrunarrýmum um tæpan helming Langvinn skjálftahrina suðaustan við Bárðarbungu Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Mest lesið Í gær Í vikunni Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Snýr aftur eftir endurhæfingu Eldurinn kviknaði út frá kerti Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang New York Times fjallar um hraunkælingarstjórann Bendir á pólitískan ómöguleika Fundarfall þegar ráðherrann fór til Síle Um 500 manns biðu veðrið af sér Gular viðvaranir: Stormur og hríð í kortunum Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í íbúð Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns „Hélt ég væri game over“ Ólafur Ragnar furðar sig á „óvissudansi“ ESB Þjóðvegurinn lokaður: Koma upp fjöldahjálparstöð Unnið við lúxushótel á ný Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í íbúð Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir

Share this article