Innlent | Morgunblaðið | 13.4.2026 | 12:54 Blanda þetta ekki heima í eldhúsi Á myndinni má sjá stofnendur fyrirtækisins, þau Ólöfu Önnu Bergsdóttur, Þórdísi Elísabetu Arnarsdóttur, Andreu Elínu Ólafsdóttur, Alexander Holoyad og Eyþór Elvar Þórarinsson úr Verzlunarskólanum. Brynhildur Glúmsdóttir [email protected] Setja bókamerki Um þessar mundir fer fram frumkvöðlakeppni meðal framhaldsskólanema þar sem keppt er um titilinn „Fyrirtæki ársins“ í Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla. Á meðal keppenda þar eru fimm bekkjarfélagar af stafrænni viðskiptabraut í Verzlunarskóla Íslands, sem tóku sig til og stofnuðu húðvörumerkið Land. Þórdís Elísabet Arnarsdóttir, einn af stofnendunum, segir í samtali við Morgunblaðið að allar vörurnar séu framleiddar hér á Íslandi. Segir Þórdís þau leggja áherslu á íslenska framleiðslu, sjálfbærni og gæði, en önnur varan af tveimur sem þau framleiða er margnota augnmaskar. „Þetta er sem sagt svona sett, þannig að það kemur serum með möskunum sem þú berð undir augun og leggur maskann yfir og svo skolar maður maskana eftir hverja notkun,“ segir Þórdís við Morgunblaðið. Spurð hvernig ferlið að því að búa til húðvörur sé, þar sem það getur verið vandmeðfarið að búa til vöru sem bera á undir augun sérstaklega, segir hún þau hafa fengið utanaðkomandi aðstoð. „Við höfðum samband við fyrirtæki sem heitir Pharma Arctica, en þau sérhæfa sig í að framleiða snyrtivörur og við ræddum við þau hvaða innihaldsefni væru örugg til að bera undir augun því við vildum hafa þetta mjög hreint og henta sem flestum húðgerðum,“ segir Þórdís. Hún segir Pharma Arctica hafa hjálpað þeim að búa til vörurnar á vottaðan og öruggan hátt. „Við erum ekki bara að blanda þetta inni í eldhúsi heima hjá okkur,“ segir Þórdís og hlær. Mikil vinna að baki Margra vikna vinna er að baki verkefninu, en ferlið hófst í janúar að sögn Þórdísar. „Við byrjuðum á þessu í janúar og þetta byrjaði bara á því að þróa hugmyndina í nokkrar vikur, þannig að þetta hefur tekið alla önnina og verið krefjandi en líka mjög skemmtilegt. Við höfum lært rosalega mikið af þessu.“ Viðskiptahugmyndin kviknaði þegar hópurinn sat á fyrirlestri í Sjávarklasanum, en hugmyndin byggir einna helst á áhuga hópsins á að þróa margnota húðvörur sem geta minnkað sóun. Til markaðssetningar nota þau helst samfélagsmiðla og eru þau á góðu róli með Instagram-reikninginn sinn „land.hudvorur“ sem er nú með rúmlega 250 fylgjendur. Á laugardaginn 18. apríl verður svokölluð vörumessa haldin í Smáralindinni þar sem hægt verður að skoða og festa kaup á vörunum. „Þetta er mjög skemmtilegur dagur, ég veit ekki alveg hve margir framhaldsskólar taka þátt í keppninni, en það verða margir sem keppa um þennan titil, fyrirtæki ársins,“ segir Þórdís að lokum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Blanda þetta ekki heima í eldhúsi Hringveginum lokað annað kvöld Britney Spears í meðferð „Fagna þessari ákvörðun“ Glundroði hjá Chelsea Umræðan Það munar um 800 milljónir Er tekjufall í landbúnaði birtingarmynd árangurs? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Trump setur á hafnbann við Hormússund Flugstjórinn óskaði eftir breytingu á flugleið Lágflugið vekur athygli út fyrir landsteinana Orban játar sig sigraðan Mest lesið Í gær Í vikunni Þjóðaratkvæðagreiðsla í uppnámi Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lofað upp í ermina á Alþingi Þýðir aðild betri lánakjör á Íslandi? Dæmd eftir að grín fór úr böndunum Fólkið mun á endanum gefast upp Kaus í fyrsta skipti 63 ára Fangaverðir krefjast tafarlausra aðgerða Lágflugið í Eyjum: „Hún sleikir þökin á húsunum“ Rannsakað sem tilraun til manndráps Flugstjórinn óskaði eftir breytingu á flugleið Væri ekki leyfilegt innan ESB Lágflugið vekur athygli út fyrir landsteinana Íslendingar illa búnir undir neyðarástand Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Þýðir aðild betri lánakjör á Íslandi? „Friður með íslamska lýðveldinu er verra en helvíti“ Um fimmtíu skjálftar á Suðurlandsbrotabeltinu Lágflugið tilkynnt til lögreglu og Samgöngustofu Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu Þekkt leikkona styður Grindavík Nýjast á mbl.is » Blanda þetta ekki heima í eldhúsi Hringveginum lokað annað kvöld Britney Spears í meðferð „Fagna þessari ákvörðun“ Glundroði hjá Chelsea Umræðan Það munar um 800 milljónir Er tekjufall í landbúnaði birtingarmynd árangurs? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Trump setur á hafnbann við Hormússund Kjörsókn aldrei meiri í Ungverjalandi Lágflugið tilkynnt til lögreglu og Samgöngustofu Orban játar sig sigraðan Mest lesið Í gær Í vikunni Þjóðaratkvæðagreiðsla í uppnámi Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lofað upp í ermina á Alþingi Þýðir aðild betri lánakjör á Íslandi? Dæmd eftir að grín fór úr böndunum Fólkið mun á endanum gefast upp Kaus í fyrsta skipti 63 ára Fangaverðir krefjast tafarlausra aðgerða Lágflugið í Eyjum: „Hún sleikir þökin á húsunum“ Rannsakað sem tilraun til manndráps Flugstjórinn óskaði eftir breytingu á flugleið Væri ekki leyfilegt innan ESB Lágflugið vekur athygli út fyrir landsteinana Íslendingar illa búnir undir neyðarástand Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Þýðir aðild betri lánakjör á Íslandi? „Friður með íslamska lýðveldinu er verra en helvíti“ Um fimmtíu skjálftar á Suðurlandsbrotabeltinu Lágflugið tilkynnt til lögreglu og Samgöngustofu Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu Þekkt leikkona styður Grindavík