Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Miðvikudagar verða frídagar í olíusparnaðarskyni

Read Full Article →

Yfirvöld á Srí Lanka hafa ákveðið að gefa opinberum starfsmönnum frí á miðvikudögum til að draga úr eldsneytisnotkun. Á vef BBC segir að ákvörðunin sé tekin vegna yfirvofandi skorts á eldsneyti vegna stríðsins í Íran. Fjölmörg Asíuríki hafa undanfarið neyðst til að grípa til ýmissa aðgerða vegna þeirra áhrifa sem átökin hafa haft á olíuframboð en um 90% af allri olíu sem fór um Hormuz-sund á síðasta ári fór til Asíu. Anura Kumara Dissanayake, forseti Srí Lanka, sagði á neyðarfundi með háttsettum embættismönnum í dag að þjóðin væri að undirbúa sig fyrir það versta en voni það besta. Sjá einnig Asíuríki setja þak á bensínhækkanir Stjórnvöld í Taílandi hafa nýlega hvatt almenning til að klæðast léttari fatnaði til að draga úr notkun loftkælingar og fá íbúar í Mjanmar aðeins að keyra einkabíl sinn annan hvern dag. Yfirvöld í Bangladess hafa flýtt frídögum vegna Ramadan í háskólum og innleitt skipulagðar skerðingar á rafmagni. Á Filippseyjum hafa sum ráðuneytið tekið upp heimavinnu að minnsta kosti einn dag í viku og hefur forsetinn bannað óþarfa ferðir opinberra starfsmanna.

Share this article