Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Mikill árangur sagður hafa náðst í fyrstu lotu viðræðnanna

Read Full Article →

Bandaríkin og Íran hafa sammælst um áætlun um hvernig þjóðirnar ætla að ná endanlegu friðarsamkomulagi til að binda enda á stríð í Mið-Austurlöndum. Milligöngumenn frá Pakistan og Katar greindu frá þessu í sameiginlegri tilkynningu í nótt. Stefnt er að því að lokasamkomulag um frið verði frágengið innan 60 daga. Formlegar viðræður geta því hafist, segir í tilkynningunni. Ætla að tryggja frið í Líbanon Utanríkisráðherra Íran Abbas Araghch, sagði í færslu á X að mikill árangur hefði náðst í viðræðunum við Bandaríkin. Með milligöngu Pakistan og Katar ætla Bandaríkin, Íran og Líbanon að tryggja að bundinn verði endir á hernaðaraðgerðir í Líbanon. Araghchi sagði jafnframt að banni við útflutningi Írana á olíu og jarðefnaeldsneyti væri aflétt. Losað verði um nokkrar frystar eignir og umfangsmikil endurreisnar- og þróunaráætlun fyrir Íran lægi fyrir. Viðræður halda áfram milli Íran og Bandaríkjanna í þessari viku í Bürgenstock í Sviss. Hezbollah ætlar að verjast hugsanlegum árásum Samkvæmt breska ríkisútvarpinu hefur dregið úr árásum í Líbanon. Forsætisráðherra Ísraels, Benjamin Netanyahu, segir þó að ísraelski herinn verði áfram í Suður-Líbanon eins lengi og þörf sé á að vernda norður Ísrael. Leiðtogi Hezbollah-samtakanna, Naim Qassem, er andsnúinn hvers kyns viðveru Ísraelshers í Suður-Líbanon og segir að Hezbollah ætli að verjast árásum ef til þeirra kemur.

Share this article