Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Nokkrir vegir lokaðir eða á óvissustigi vegna snjóflóðahættu

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 29 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Nokkr­ir vegir lok­að­ir eða á óvissu­stigi vegna snjó­flóða­hættu Brynjólfur Þór Guðmundsson Nokkrir vegir eru lokaðir eða á óvissustigi vegna snjóflóðahættu. Á Norðurlandi eru vegirnir í Dalsmynni, Ólafsfjarðarmúli og Siglufjarðarvegur lokaðir vegna snjóflóðahættu. Vegurinn um Ólafsfjarðarmúla verður skoðaður í birtingu. Óvissustig vegna snjóflóðahættu er á Flateyrarvegi og veginum um Súðavíkurhlíð. Dynjandisheiði á Vestfjörðum er enn ófær. Víða er snjóþekja eða hálka á vegum. Ólafsfjarðarmúli. Mynd úr safni. RÚV / aðsend mynd: Ingvar Erlingsson Fyrir 47 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Hækkar Seðla­bank­inn stýri­vexti? Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnir í dag ákvörðun sína um hversu háir stýrivextir verða. Þeir hafa staðið í 7,25 prósentum frá því í nóvember en blikur kunna að vera á lofti vegna mikillar og þrálátrar verðbólgu. FRÉTTAVAKT Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Lúðra­sveit vaknar af þrjá­tíu ára dvala Skólahljómsveit Akraness blæs í lúðra eftir þrjátíu ára hlé. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál „Maður verður nú ein­hvern tímann að hætta“ Þrjátíu ár eru frá því Stóra upplestrarkeppnin hóf göngu sína í Hafnarfirði. Stofnandi keppninnar ætlar að láta staðar numið. Hún segir lestur barna vera á uppleið. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Veður Ró­legra veður í dag en storm­ur á Vest­fjörð­um í nótt Gul viðvörun hefur verið gefin út vegna storms og hríðarveðurs á Vestfjörðum í nótt. Veður í dag verður öllu rólegra á landsvísu. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Kúba Rubio segir ekki standa til að steypa for­seta Kúbu af stóli — það séu fals­frétt­ir Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að ekki standi til að hvetja Kúbverja til að steypa forseta landsins af stóli. Fréttir þess efnis séu fals og byggðar á upplýsingum blekkingameistara. Forsetinn segir að öllum atlögum verði svarað af festu. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lík­ams­árás og þjófn­að­ur á heilsu­gæslu­stöð Markús Þ. Þórhallsson Líkamsárás var framin á heilbrigðisstofnun í Háaleitishverfi í gærkvöld eða nótt og einnig þjófnaður að því er segir í morgunskeyti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan hafði afskipti af ökumönnum í margskonar ástandi. Birgir Þór Harðarson Einnig var farið ófrjálsri hendi um verslun í Laugaráshverfi. Að öðru leyti virðast verkefni lögreglu einkum hafa hverfst um afskipti af ökumönnum í ýmiss konar ástandi, almennt eftirlit og aðstoð við borgarana. Alls gistu átta fangageymslur í morgun. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Fjölg­un ný­skrán­inga bíla ekki rakin til skyndi­legr­ar og auk­inn­ar eft­ir­spurn­ar heldur vöru­gjalds­hækk­un­ar Markús Þ. Þórhallsson Rúmlega 66% fleiri nýir bílar voru skráðir á götuna fyrstu 10 vikur þessa árs en á sama tíma fyrir ári. Alls voru 2.639 nýir bílar skráðir þessar tíu vikur og ríflega helmingur þeirra í janúar. Alls voru 2.639 nýir bílar skráðir fyrstu tíu vikur ársins og ríflega helmingur þeirra í janúar. Ruv.is / Anton Brink Bílgreinasambandið rekur fjölgunina ekki til skyndilegrar, aukinnar eftirspurnar, heldur fyrst og fremst til þess að fyrir áramót voru margir bílar, einkum bílaleigubílar, tollafgreiddir vegna yfirvofandi hækkunar vörugjalda. Þeir hafi síðan verið skráðir og teknir í notkun í janúarbyrjun. Bílaleigur hafa keypt 64% nýskráðra bíla það sem liðið er árs. Alls hafa 905 tengiltvinnbílar verið skráðir þessar vikur, 779 Hybrid-bílar og 733 hreinir rafbílar. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íran hótar enn harð­ari árásum eftir drápið á yf­ir­manni ör­ygg­is­ráðs­ins Íranar hóta enn harðari árásum á Ísrael og bækistöðvar Bandaríkjanna eftir að yfirmaður öryggisráðs landsins var drepinn í gær. Ísrael muni finna harkalega fyrir reiði Írana. Minnst sex fórust og tugir særðust í loftárásum Ísraelshers á Beirút. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kúba Díaz-Canel boðar óbug­andi and­stöðu gegn dag­leg­um hót­un­um Banda­ríkj­anna Markús Þ. Þórhallsson Miguel Díaz-Canel Kúbuforseti boðar óbugandi andstöðu gegn næstum daglegum hótunum Bandaríkjanna um aðgerðir gegn eyríkinu. Miguel Díaz-Canel Kúbuforseti segir öllum atlögum verða mætt af festu. EPA / Ernesto Mastrascusa Í yfirlýsingu á X sagði forsetinn að fari allt á versta veg geti landsmenn huggað sig við að öllum atlögum verði svarað af mikilli festu. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagðist á mánudag trúa að honum veittist sá heiður að „yfirtaka og frelsa Kúbu“ með einhverjum hætti. Djúp efnahagskreppa ríkir á Kúbu og hefur dýpkað enn eftir að Trump setti hafnbann á olíuflutninga þangað. Hann segir Kúbu standa á brauðfótum og kveðst telja sig geta gert þar hvað sem hann lystir. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Grænland Tveir af fjórum þing­mönn­um Siumut hafa sagt skilið við flokk­inn Helmingur þingmanna grænlenska stjórnmálaflokksins Siumut, tveir af fjórum, hefur yfirgefið hann eftir ákvörðun flokksforystunnar að yfirgefa stjórnarsamstarfið. Fyrrverandi utanríkisráðherra og forseti þingsins kvöddu flokkinn í gær. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Mette-Marit krón­prins­essu vikið til hliðar sem vernd­ari Sam­taka bóka­safna Samtök bókasafna í Noregi hafa ákveðið að rjúfa tengsl við krónprinsessuna sem hefur verið verndari þeirra. Hún hafi ekki greint heiðarlega frá tengslum sínum við Jeffrey Epstein. Ósannsögli skapi óvissu og vantraust sem sambandið sætti sig ekki við. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Mar­okkó úr­skurð­að sig­ur­veg­ari á Afr­íku­mót­inu vegna al­var­legs brots Sen­eg­al í úr­slita­leikn­um Senegal hefur verið vísað úr Afríkumótinu í fótbolta og svipt meistaratitli sínum vegna alvarlegs brots á reglum Knattspyrnusambands Afríku í úrslitaleik mótsins. Lunginn úr liðinu yfirgaf völlinn í 17 mínútur vegna óánægju með vítaspyrnudóm. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Tveir drepn­ir í loft­árás á Tel Aviv og öfl­ug­um sprengj­um beitt á eld­flauga­stöð Tveir voru drepnir í eldflaugaárás á ísraelska stórborg í kvöld. Bandaríkjaher beitti öflugum sprengjum gegn íranskri eldflaugastöð nærri Hormússundi, Ísraelsher hefur gert stórfelldar árásir á Beirút og dróni hæfði bandaríska sendiráðið í Bagdad. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Skotland Dán­ar­að­stoð áfram ólög­leg í Skot­landi Guðmundur Atli Hlynsson Meirihluti þingmanna á skoska þinginu í Holryood hafnaði í dag frumvarpi þess efnis að gera dánaraðstoð löglega í landinu. Frumvarpið kvað á um að aldraðir Skotar með banvæna sjúkdóma, sem ekki er talið að eigi meira en hálft ár eftir ólifað, gætu notið aðstoðar við að enda líf sitt. Frumvarpið var fellt með 69 atkvæðum gegn 57 atkvæðum á móti eftir um tveggja klukkustunda umræðu. Frumvarpið var upphaflega kynnt í mars árið 2024. Það var samþykkt eftir fyrstu umræðu í maí í fyrra en þá greiddu 70 atkvæði með því og 56 gegn því. Var það í þriðja sinn sem skoska þingið fjallaði um frumvarp um dánaraðstoð. Skoska þinghúsið er í Holyrood í Edinborg. EPA / MAURITZ ANTIN Fyrir 8 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Leiklist Ljóska mætt í Har­vard Garða­bæj­ar Leikfélagið Verðandi í FG hefur sett upp hinn krefjandi söngleik Ljóska í gegn. Aðalleikkonan er á sviðinu í öllum atriðum nema þegar hún skiptir milli búninga, sem eru ekki nema 15 talsins. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Stefán Þór leiðir Sam­fylk­ing­una og fé­lags­hyggju­fólk í Fjarða­byggð Framboðslisti Samfylkingarinnar og annars félagshyggjufólks í Fjarðabyggð var samþykktur í kvöld. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Mögu­lega nauð­syn­legt að hækka stýri­vexti til að halda kjara­samn­ing­um Ákvörðun peningastefnunefndar bankans verður birt í fyrramálið. Konráð S. Guðjónsson hagfræðingur telur að mögulega neyðist Seðlabankinn til að hækka stýrivexti til þess að kjarasamningar haldist þann 1. september. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Yfir 120 snjó­flóð fallið síðan á fimmtu­dag Veðurstofu Íslands berast enn fréttir af snjóflóðum sem fallið hafa síðustu daga. Fjöldi þeirra er kominn á annað hundrað. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Hag­kvæm­ara að hjúkr­un­ar­heim­ili þjónusti aldr­aða en sjúkra­hús­in Fjármálaráðherra segir fjármögnun framkvæmdaáætlunar um uppbyggingu hjúkrunarrýma tryggða. Mikilvægt sé að áætlunin gangi eftir svo þjónustan sé ekki veitt í gegnum dýrari leiðir. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti „Mér fannst þetta bara mjög skemmti­legt, ég veit ekki með ykkur“ Sara Rún Hinriksdóttir átti góðan leik þegar Ísland vann Portúgal í undankeppni EM í körfubolta. Þrátt fyrir sigurinn fer Ísland ekki áfram en Sara er bjartsýn á framtíðina. 17. mars 2026 kl. 21:50ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ísra­elar grönd­uðu hátt­sett­um Írönum í loft­árás Guðmundur Atli Hlynsson Öryggisráð Írans hefur staðfest að Ali Larijani, yfirmaður ráðsins, liggi í valnum eftir loftárás frá Ísrael. Ísraelskir fjölmiðlar greindu frá árásinni fyrr í dag. Gholamreza Soleimani, yfirmaður Basij-öryggissveitar íranskra stjórnvalda, var einnig drepinn í árásinni. Samkvæmt AFP-fréttaveitunni er Larijani háttsettasti Íraninn sem hefur verið drepinn í árásum Bandaríkjamanna og Ísraels síðan í febrúar. Öryggisráð Írans segir í tilkynningu að sonur Larijanis og lífverðir hans hafi einnig látið lífið í árásinni. Ali Larijani fór fyrir öryggisráði Írans. EPA / WAEL HAMZEH 17. mars 2026 kl. 20:29ÍÞRÓTTIR Fótbolti Norska æv­in­týr­ið á enda eftir full­komna end­ur­komu Sport­ing Norska liðið Bodo/Glimt er dottið út úr Meistaradeild Evrópu í fótbolta á ótrúlegan máta. Liðið leiddi 3-0 gegn Sporting Lisbon eftir fyrri leikinn en mátti þola 5-0 tap í kvöld, eftir framlengingu. 17. mars 2026 kl. 20:15INNLENDAR FRÉTTIR Dýravelferð Blóðug og sár dýr fyrir ís­lensk­an loð­feld Myndefni sem tekið var í þremur minkabúum hér á landi varpar ljósi á aðbúnað dýranna. Myndirnar sýna blóðug og sár dýr, sem sum eru farin að naga sig inn að beini vegna streitu og kvíða. 17. mars 2026 kl. 20:10INNLENDAR FRÉTTIR Heilbr

Share this article