Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 15 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Nokkrir vegir lokaðir að morgni Brynjólfur Þór Guðmundsson Víða er hálka, þæfingur eða snjóþekja á vegum og vetrarlegt um að lítast. Fjarðarheiði er lokuð en unnið er að mokstri. Einnig er ófært um Öxi og Breiðdalsheiði. Á Vestfjörðum eru vegirnir um Dynjandisheiði og Þröskulda ófærir og unnið að mokstri á síðarnefnda veginum. Siglufjarðarvegur og vegirnir um Víkurskarð og Dalsmynni eru lokaðir. Fjarðarheiði að vetri. Safnmynd. RÚV / Rúnar Snær Reynisson NýttÍÞRÓTTIR Skák Getur orðið sá fyrsti í sögu mótsins til að vinna allar sínar skákir Íraninn Amin Tabatabaei er enn með fullt hús vinninga á Reykjavíkurskákmótinu og getur orðið fyrstur í sögu mótsins til að vinna allar sínar skákir. Guðmundur Kjartansson er orðinn efstur Íslendinga og á möguleika á verðlaunasæti. Fyrir 19 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Miðflokkurinn búinn að stilla upp í Kópavogi Einar Jóhannes Guðnason og Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skipa tvö efstu sætin á framboðslista Miðflokksins í Kópavogi. Fyrir 30 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Suðvestanátt með dálitlum skúrum eða éljum Suðvestanátt leikur um landið í dag með hita um eða yfir frostmarki. Þurrt og bjart verður austanlands en annars staðar er útlit fyrir dálitlar skúrir eða él. Fyrir 55 mínútumÍÞRÓTTIR Skák Byrjaði að tefla í útgöngubanni og er nú 11 ára stjarna á Reykjavíkurskákmótinu Reykjavíkurskákmótið stendur sem hæst í Hörpu og þar teflir margt af besta skákfólki heims þessa dagana. Meðal þess er hin 11 ára gamla Bodhana Sivanandan frá Bretlandi sem þarf að notast við upphækkun á sæti sínu til að sjá taflborðið betur. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Friðargæsluliðar urðu fyrir árás í Líbanon Brynja Dögg Friðriksdóttir Friðargæsluliðarnir eru í Friðargæsluliði Sameinuðu þjóðanna í Líbanon, The United Nations Interim Force in Lebanon (UNIFIL). Myndin tengist fréttinni óbeint. EPA / WAEL HAMZEH Utanríkisráðuneyti Indónesíu hefur staðfest að indónesískur friðargæsluliði hafi verið drepinn í Líbanon og þrír aðrir séu særðir. Friðargæsluliðarnir eru í Friðargæsluliði Sameinuðu þjóðanna í Líbanon, The United Nations Interim Force in Lebanon (UNIFIL). Friðargæsluliðarnir urðu fyrir sprengingu nærri bænum Adchit Al Qusayr nærri landamærum Ísraels og Líbanons í gær. Ísraelski herinn hefur barist við Hezbolla-hreyfinguna á þessu svæði í tæpan mánuð. Stjórnvöld í Indónesíu fordæma harðlega árásina og kalla eftir því að hún verði rannsökuð en ekki liggur fyrir hver ber ábyrgð á árásinni. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Air China hefur flug að nýju til Norður-Kóreu Brynja Dögg Friðriksdóttir Flugvél Air China á flugvellinum í Peking. EPA / WU HAO Kínverska flugfélagið Air China hefur flug að nýju í dag frá Peking í Kína til Pyongyang í Norður-Kóreu en flugfélagið hefur ekki flogið þessa leið í sex ár. Samgöngur hafa verið mjög takmarkaðar milli landanna síðan 2020 þegar Covid-19 faraldurinn kom upp. Lestarsamgöngur hófust að nýju fyrr í þessum mánuði. Kína opnaði landamæri sín fyrir nokkru síðan en yfirvöld í Norður-Kóreu hafa farið hægar í sakirnar við að opna landamæri sín að nýju. Enn sem komið er veita yfirvöld í Norður-Kóreu aðeins vegabréfsáritanir til ferðamanna sem eru á leið til landsins í opinberum eða sérstökum erindagjörðum. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ástralía Lögregla skaut mann sem hafði verið eftirlýstur í sjö mánuði Eftirlýstur maður var skotinn til bana af lögreglu í Viktoríu-fylki í Ástralíu í gær. Mannsins hefur verið leitað í sjö mánuði en hann var eftirlýstur fyrir morð á tveimur lögreglumönnum. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kúba Bandaríkjaforseti er ekki á móti því að rússneskt olíuskip sé á leið til Kúbu Donald Trump Bandaríkjaforseti segir það ekki skipta hann nokkru máli að rússneskt olíuskip sé á leið til Kúbu. Rússneskt olíuskip með um 730.000 tunnur af olíu er á leið til Kúbu. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kúba Rússneskt olíuskip á leið til Kúbu Olíuflutningaskipið ætti að öllu óbreyttu að koma til hafnar á mánudagskvöld að staðartíma. Um 730.000 þúsund tunnur af olíu eru um borð í skipinu. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ítalía Stórfellt listaverkarán frá Magnani Rocca-safninu Listaverkum eftir Renoir, Cezanne og Matisse var rænt af Magnani Rocca-safninu nærri borginni Parma í síðustu viku. Verkin eru metin á tæpan 1,3 milljarða íslenskra króna. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Þriggja bíla árekstur vegna hálku á Holtavörðuheiði Brynja Dögg Friðriksdóttir Áreksturinn varð á Holtavörðuheiði vegna hálku. RÚV / Kristófer Óli Birkisson Þriggja bíla árekstur varð á Holtavörðuheiði í kvöld. Meiðsl á fólki voru minni háttar samkvæmt lögreglunni á Norðurlandi vestra en ekki liggur fyrir hversu margir þurftu að leita sér aðhlynningar. Áreksturinn varð með þeim hætti að einn bíll hafði farið út af veginum vegna hálku, annar var að draga hann aftur upp á veginn og þá kom bíll sem lenti í árekstri við þessa tvo bíla. Búið er að flytja fólk og bíla burtu af vettvangi. Fljúgandi hálka og mjög slæm akstursskilyrði eru á Holtavörðuheiði samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Vegagerðarinnar; umferdin.is Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Matur Kokkur ársins ætlar landsliðinu stóra hluti á heimsmeistaramótinu Metnaður, fagmennska og að smakka matinn vel er það sem tryggði Ísaki Aroni titilinn kokkur ársins. 29. mars 2026 kl. 21:28MENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Nýstofnuð hljómsveit sigraði Músíktilraunir Sigursveit Músíktilrauna, Falinn gjóður, var stofnuð nokkrum vikum fyrir keppnina. Hljómsveitarmeðlimir voru steinhissa yfir úrslitunum. 29. mars 2026 kl. 21:11INNLENDAR FRÉTTIR Peningar Ódýrustu páskaeggin í Prís samkvæmt verðlagsúttekt ASÍ Páskaegg af öllum stærðum og gerðum fylla nú hillur verslana. Ódýrustu páskaeggin eru í Prís samkvæmt nýrri úttekt verðlagseftirlits ASÍ. Verð á páskaeggjum sem merkt eru Bónus hækka mest milli ára. 29. mars 2026 kl. 20:50ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Fulltrúar fjögurra ríkja ræddu friðarumleitanir í Islamabad Stjórnvöld í Íran hóta Bandaríkjamönnum öllu illu ætli þeir að hefja landhernað. Ríkin tvö áttu ekki fulltrúa á fundum í Islamabad í dag þar sem leiðir til að minnka spennu í stríðinu í Mið-Austurlöndum voru ræddar. 29. mars 2026 kl. 20:30ÍÞRÓTTIR Handbolti Valsmenn í undanúrslitin gegn KA Hans Steinar Bjarnason Valur komst í kvöld í undanúrslit úrvalsdeildar karla í handbolta með sigri á HK í Kórnum, 32-28. Valur var einu marki yfir í hálfleik, 13-14 og jafnræði var með liðunum framan af í seinni hálfleik. Eftir að tíu mínútur voru liðnar af seinni hálfleik leiddu Valsmenn með tveggja til þriggja marka mun þar til undir lokin. Gunnar Róbertsson skoraði 10 mörk fyrir Val í kvöld. Rúv / Mummi Lú Valur vann fyrsta leikinn í einvígi liðanna í 8-liða úrslitunum eftir framlengingu og unnu Valsmenn einvígið því 2-0. Valur mætir KA í undanúrslitunum en KA sló út ÍBV fyrr í kvöld í háspennuleik. 29. mars 2026 kl. 20:06INNLENDAR FRÉTTIR Trúarbrögð Haldið upp á 70 ára afmæli Selfosskirkju – Biskup fékk 12 egg Sérstök hátíðarmessa var í Selfosskirkju í dag, á pálmasunnudag, í tilefni af 70 ára afmæli kirkjunnar. Hænsnabóndi kom færandi hendi í afmælið með tólf egg úr íslenskum landnámshænum handa biskupi Íslands. 29. mars 2026 kl. 19:54ÍÞRÓTTIR Íshokkí SR Íslandsmeistari kvenna í íshokkí í fyrsta sinn eftir vítakeppni SR varð í kvöld Íslandsmeistari kvenna í íshokkí eftir sigur í vítakeppni gegn SA. SR vann úrslitaeinvígi liðanna 3-1 og er Íslandsmeistari í fyrsta sinn í sögu kvennaliðs félagsins. 29. mars 2026 kl. 19:53INNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Vilja draga úr vægi verðtryggingar fyrir árslok Ríkisstjórnin vill draga úr vægi verðtryggingar fyrir árslok. Forsætisráðherra telur ekki skynsamlegt að koma til móts við heimilin með því að lækka virðisaukaskatt á matvöru. 29. mars 2026 kl. 19:20ÍÞRÓTTIR Sund Birnir var einum hundraðasta úr sekúndu frá EM lágmarki Íslandsmótinu í sundi í 50 metra laug lauk í Ásvallalaug í Hafnarfirði í kvöld. Tveir keppendur syntu sig inn á Evrópumótið í sumar og einn var grátlega nálægt lágmarkinu í sinni grein. 29. mars 2026 kl. 19:09ÍÞRÓTTIR Handbolti KA í undanúrslit eftir háspennuleik gegn ÍBV Hans Steinar Bjarnason Spennan var gríðarleg í einvígi KA og ÍBV í úrslitakeppni úrvalsdeildar karla í handbolta í dag. KA vann fyrsta leikinn í Vestmanneyjum og á lokamínútunni í dag í stöðunni 24-24 á Akureyri varði Ágúst Elí Björgvinsson í marki KA vítakast. KA fór í sókn en Bjarni Valdimarsson fékk dæmdan á sig ruðning og ÍBV fékk annað tækifæri til að komast yfir. Aftur varði Ágúst Elí þegar 21 sekúnda var eftir. Dagur Gautason kom svo KA yfir í 25-24 og Eyjamenn höfðu sjö sekúndur til að jafna og fá framlengingu. En Ágúst Elí varði enn einu sinni og KA vann því 25-24 og er komið í undanúrslit. Ágúst Elí lokaði marki KA á æsispennandi lokamínútunni gegn ÍBV. Mummi Lú 29. mars 2026 kl. 18:22INNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Fara fram á að frumvarp um barnavernd verði unnið betur Velferðarráð Reykjavíkurborgar fer fram á að frumvarp barna- og menntamálaráðherra um barnavernd verði unnið betur áður en það verður að lögum. Ráðið segir ámælisvert að kafli um fósturmál hafi ekki verið nægilega vel skoðaður. 29. mars 2026 kl. 18:05INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Alvarlegt umferðarslys í Varmahlíð: Ekið á tvo gangandi vegfarendur Lögreglan á Norðurlandi vestra óskaði eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar vegna alvarlegs umferðarslyss við Varmahlíð. Ekið var á tvo gangandi vegfarendur sem fluttir hafa verið á Landspítalann. 29. mars 2026 kl. 18:03ÍÞRÓTTIR Íþróttir Sigurður Íslandsmeistari í snóker i fyrsta sinn Hans Steinar Bjarnason Sigurður Kristjánsson varð í dag Íslandsmeistari í snóker í fyrsta sinn. Sigurður hafði betur gegn ríkjandi Íslandsmeistara, Þorra Jenssyni, sem hafði einmitt betur gegn Sigurði í ú