Hinrik Örn Bjarnason hefur verið ráðinn sviðsstjóri fyrirtækjasviðs hjá Olís og mun jafnframt taka sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Hann kemur til Olís frá Eðalfangi, móðurfélagi Norðanfisks og Eðalfisks, þar sem hann gegndi stöðu framkvæmdastjóra. Hann starfaði í tíu ár hjá N1, bæði sem framkvæmdastjóri félagsins og sem yfirmaður fyrirtækjasviðs. Fyrir þann tíma var hann framkvæmdastjóri Eimskips í Þýskalandi. „Hinrik kemur til okkar með umfangsmikla reynslu sem mun nýtast Olís vel og hann mun bera ábyrgð á því að leiða og þróa áfram þjónustu og sölu til fyrirtækja ásamt því að efla stafræna þjónustu til þeirra. Hinrik er frábær liðsauki við samstarfsfólk okkar hjá Olís og mun hjálpa okkur að efla fyrirtækið enn frekar,“ segir Ingunn Svala Leifsdóttir, framkvæmdastjóri Olís. Hinrik er með cand oecon-gráðu frá Háskóla Íslands ásamt því að hafa lokið AMP (Advanced Management Program) við IESE-viðskiptaháskólann í Barcelona. Hann hefur víðtæka reynslu af stjórnarsetu og sat meðal annars í stjórn Samtaka verslunar og þjónustu, stjórn Icelandic Food Company og stjórn Malik í Danmörku. „Ég er mjög þakklátur fyrir það að vera treyst fyrir áframhaldandi uppbyggingu og sókn á fyrirtækjamarkaði hjá Olís. Framundan eru mörg tækifæri til áframhaldandi vaxtar. Olís býr að mjög öflugu starfsfólki og öflugu þjónustuneti um allt land,“ segir Hinrik Örn Bjarnason.