Fyrr í mánuðinum var Hinrik Örn Bjarnason ráðinn sviðsstjóri fyrirtækjasviðs hjá Olís og mun hann jafnframt taka sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Hann kemur til Olís frá Eðalfangi þar sem hann gegndi stöðu framkvæmdastjóra. Hinrik hefur mikla reynslu í olíubransanum en hann starfaði í tíu ár hjá N1, bæði sem framkvæmdastjóri félagsins og sem yfirmaður fyrirtækjasviðs. Fyrir þann tíma var hann framkvæmdastjóri Eimskips í Þýskalandi. Hann er með cand oecon-gráðu frá Háskóla Íslands og hefur einnig lokið AMP (Advanced Management Program) við IESE-viðskiptaháskólann í Barcelona. Vegferð Hinriks í viðskiptalífinu hófst þegar hann var að útskrifast úr Verzlunarskóla Íslands og fékk þá vinnu hjá Icelandic Seafood. Þar starfaði hann bæði á sumrin og samhliða háskólanámi en eftir útskrift flutti Hinrik til Englands og vann þar í fisksölu. Nánar er fjallað um Hinrik í Viðskiptablaði vikunnar . Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér .