Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Verið sé að uppfylla óraunhæf loforð Flokks fólksins

Read Full Article →

Innlent | mbl | 18.3.2026 | 13:55 Verið sé að uppfylla óraunhæf loforð Flokks fólksins „Ég held að margt af því sem verið er að gera sé til að uppfylla óraunhæf loforð Flokks fólksins,“ segir Guðrún. Samsett mynd/mbl.is/Eggert/Eyþór Setja bókamerki Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir hækkun stýrivaxta hafa verið fyrirsjáanlega. Raunar sé hún enn ein staðfestingin á því að ríkisstjórnin ráði ekki við verkefnið. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur hækkað stýrivexti bankans um 0,25 prósentustig. Meginvextir bankans verða því 7,50%. Þrír nefndarmenn studdu þessa ákvörðun en tveir vildu hækka meginvexti um 0,5 prósentur. „Það að nefndarmenn hafi viljað ganga lengra sýnir hvað við erum komin í alvarlega og þrönga stöðu,“ segir Guðrún í samtali við mbl.is. Lofað að berja niður verðbólgu og vexti „Þetta er ríkisstjórn sem lofaði að berja niður verðbólgu og vexti en hefur ekki náð neinum árangri í efnahagsmálum heldur frekar kynnt undir verðbólguna,“ heldur Guðrún áfram. Ríkisstjórnin hafi lagt auknar álögur á heimilin og hækkað álögur ríkisins umfram verðbólguviðmið. Því sé það „með ólíkindum að lesa það í gær að það eigi að skoða að leggja enn auknari álögur á heimilin í formi veggjalda, ofan á kílómetragjöld, ofan á hækkun vörugjalda og aðrar skattahækkanir sem ríkisstjórnin hefur farið í“. „Það er auðvitað mjög alvarleg staða að það sé gripið til þessara aðgerða þegar við erum komin með slaka í hagkerfinu. Hagvöxtur fer minnkandi. Ég hef áhyggjur af því að við séum að lokast inni í vítahring sem verður mjög erfitt að komast út úr og í réttan takt aftur.“ Ekki sé eingöngu við Seðlabankann að sakast heldur verði hann, ríkið og vinnumarkaðurinn að vinna saman, samstarf sem greinilegt sé að standi ekki nægilega vel. Frétt af mbl.is Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig „Popúlísk stjórnvöld sem halda að þau geti gert allt fyrir alla“ Þá kallar Guðrún eftir ábyrgari hagstjórn af hálfu ríkisins. Draga verði úr útgjöldum. Ríkisstjórnin hafi talað um, og geri enn, að standa fyrir tiltekt í ríkisfjármálum en slíkt sé holur hljómur þegar ríkisútgjöld aukist um 143 milljarða á milli ára. „Við í Sjálfstæðisflokknum bentum á það við fjárlagagerðina í desember að þær hækkanir sem væri verið að setja hér á heimilin og atvinnulífið myndu auka þrýsting á verðbólgu. Þetta er allt að raungerast,“ segir hún enn fremur. Ríkisstjórnin hafi ekki viljað heyra varúðarorð stjórnarandstöðunnar. Spurð hvers vegna hún haldi það svo svarar Guðrún: „Mér finnst þau vera með popúlísk stjórnvöld sem halda að þau geti gert allt fyrir alla. Það er ekki hægt í pólitík.“ „Ég held að margt af því sem verið er að gera sé til að uppfylla óraunhæf loforð Flokks fólksins. Við sáum það til dæmis bara í gær, þar sem við vorum í þriðju umræðu um breytingar á lögum um að tengja bætur og almannatryggingar við launavísitölu. Ég get ekki séð annað en að ríkisstjórnin ætli að samþykkja það frumvarp með galopin augu þrátt fyrir öll varnarorð Seðlabankans, fjármálaráðuneytisins, fjármálaráða og hagfræðinga. Það hafa allir varað við þeirri leið og sagt að hún muni auka þrýsting á verðbólgu. En þetta er eitt af þeim loforðum, að ég tel, sem er búið að lofa Flokki fólksins. Þetta er mál sem mun ekki styrkja velferðarkerfið okkar heldur veikja það og stöðu fólksins í landinu til lengri tíma.“ Frétt af mbl.is Fjárlagafrumvarpið ýtir undir verðbólgu Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Verið sé að uppfylla óraunhæf loforð Flokks fólksins Leysingar geta orðið miklar Aðhaldsstig aukið verulega Þrír á óskalistanum ef hann tekur við Liverpool Íranar tóku Svía af lífi Umræðan „Skjólið“ í ESB Fleira er matur en feitt kjöt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stórsýning í Laugardalshöll að hefjast Gul viðvörun á Vestfjörðum með sunnan hríð Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Gular viðvaranir á stórum hluta landsins Mest lesið Í gær Í vikunni „Fundum manninn hálfsturlaðan“ „Stærsta bylting sem við höfum séð“ Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Seðlabankinn hafi misst tökin Réðst á einn á Landspítala og tók af honum farsíma Ísaksskóli á leið í Kópavog Væri góð hugmynd að hætta að deila um tölurnar Leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot Gular viðvaranir á stórum hluta landsins Rannsókn lokið og ákæra gefin út í dag Sjö handteknir vegna meiri háttar líkamsárásar Næsta gossprunga gæti legið frá Grindavík Loka einni hæð á spítalanum vegna myglu Hviður geta náð allt að 35 m/s Arndís Bára fær ár til viðbótar Ferlið geti verið neikvætt og niðurlægjandi Heilbrigðisyfirvöld taka sýni vegna dularfullrar ólyktar Ætla að læra af mistökum sínum Felldi ljón með skammbyssu á 40 metrum Skoða veggjöld á öllum leiðum frá höfuðborgarsvæðinu Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Borga ekki umferðarsektir Nýjast á mbl.is » Verið sé að uppfylla óraunhæf loforð Flokks fólksins Leysingar geta orðið miklar Aðhaldsstig aukið verulega Þrír á óskalistanum ef hann tekur við Liverpool Íranar tóku Svía af lífi Umræðan „Skjólið“ í ESB Fleira er matur en feitt kjöt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þjófnaður og líkamsárás á heilbrigðisstofnun Vörpuðu öflugum sprengjum nærri Hormússundi Misvísandi hagvísar vandi Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Mest lesið Í gær Í vikunni „Fundum manninn hálfsturlaðan“ „Stærsta bylting sem við höfum séð“ Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Seðlabankinn hafi misst tökin Réðst á einn á Landspítala og tók af honum farsíma Ísaksskóli á leið í Kópavog Væri góð hugmynd að hætta að deila um tölurnar Leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot Gular viðvaranir á stórum hluta landsins Rannsókn lokið og ákæra gefin út í dag Sjö handteknir vegna meiri háttar líkamsárásar Næsta gossprunga gæti legið frá Grindavík Loka einni hæð á spítalanum vegna myglu Hviður geta náð allt að 35 m/s Arndís Bára fær ár til viðbótar Ferlið geti verið neikvætt og niðurlægjandi Heilbrigðisyfirvöld taka sýni vegna dularfullrar ólyktar Ætla að læra af mistökum sínum Felldi ljón með skammbyssu á 40 metrum Skoða veggjöld á öllum leiðum frá höfuðborgarsvæðinu Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Borga ekki umferðarsektir

Share this article