Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Vara við að evrópskir lán­veit­endur geti lent í sömu gildru

Read Full Article →

Evrópskir lán­veit­endur gætu brátt staðið frammi fyrir harðari átökum um skulda­upp­gjör og veikari réttar­stöðu gagn­vart lántak­endum, svipað og þegar hefur sést í Bandaríkjunum. Þetta er megin­efni að­sendrar greinar í Financial Times eftir Sabrina Fox, stofnanda Fox Legal Tra­ining, sem segir að veikari lána­skilmálar og ný laga­leg átök geti sett mark sitt á evrópska lána­markaði á næstu misserum. Í greininni er vísað til um­mæla Jamie Dimon, for­stjóra JP­Morgan, sem vöktu mikla at­hygli í haust þegar hann sagði að „þegar maður sér einn kakka­lakka séu lík­lega fleiri á ferðinni“. Dimon lét þau orð falla eftir að tvö áberandi mál komu upp á bandarískum lána­markaði, annars vegar gjaldþrot bíla­vara­hluta­fram­leiðandans First Brands og hins vegar skulda­vand­ræði hjá Tricol­or, sem sér­hæfir sig í bíla­fjár­mögnun. Boð­skapur hans var að einstök lána­vand­ræði væru lík­lega ekki ein­angruð til­vik heldur vís­bending um dýpri veik­leika í lána­kerfinu. Höfundur FT-greinarinnar segir að svipuð hætta sé nú farin að blasa við í Evrópu. Vandinn felist ekki aðeins í því að mörg fyrir­tæki hafi fengið mjög rúma lána­skilmála á undan­förnum árum heldur einnig í því að lántakar séu orðnir sí­fellt slyngari í að nýta laga­legar glufur til að endur­raða skuldum sínum og færa verðmætar eignir undan kröfum lánar­drottna. Sjá einnig „Sjái maður einn kakka­lakka eru fleiri lík­legir“ Slíkar að­gerðir eru oft nefndar li­a­bility mana­gement exercises, eða skulda­upp­gjör sem byggjast á fjár­hags­legri og laga­legri endur­skipu­lagningu. Í fram­kvæmd getur það þýtt að fyrir­tæki semji upp á nýtt á þann hátt að sumir lán­veit­endur sitji verr eftir, með lakari tryggingar eða minni endur­heimtur en þeir gerðu upp­haf­lega ráð fyrir. Fram til þessa hefur Evrópa að mestu sloppið við jafn árásar­gjarnar út­færslur og sést hafa í Bandaríkjunum. Höfundurinn bendir þó á að á síðustu tveimur árum hafi nokkur stór evrópsk félög farið í um­deild skulda­upp­gjör, þar á meðal Altice France, Altice International, Ardagh, Victoria, Selecta og Hun­kemöller. Það sýni að þróunin sé ekki lengur bundin við bandaríska markaði. Lán­veit­endur hafa reynt að bregðast við með því að setja varnarákvæði inn í lána­samninga og gera með sér sam­starfs­samninga svo lántakar geti síður spilað þeim út hver gegn öðrum. En nú sé líka farið að ráðast að þeim samningum sjálfum fyrir dómstólum. Í greininni er sér­stak­lega vísað til máls í Bandaríkjunum þar sem Altice USA hefur stefnt hópi stórra lánar­drottna og haldið því fram að sam­starf þeirra jafn­gildi ólög­mætu samráði. Sjá einnig Skulda­bréfa­sjóðir hringja viðvörunar­bjöllum Ef slík rök fengju hljóm­grunn hjá dómstólum myndi það veikja stöðu lán­veit­enda enn frekar. Þá yrði erfiðara fyrir þá að samræma varnir sínar og auðveldara fyrir skuld­sett fyrir­tæki að knýja fram skulda­upp­gjör sem ganga gegn hags­munum lánar­drottna. Höfundur greinarinnar telur að slík þróun í Bandaríkjunum gæti hæg­lega haft áhrif yfir At­lants­hafið og orðið fyrir­mynd að sam­bæri­legum mála­ferlum í Evrópu.

Share this article