Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 21 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Jafn taktur í inflúensufaraldrinum Brynjólfur Þór Guðmundsson Inflúensufaraldurinn heldur áfram þó að dregið hafi úr honum eftir að hámarki var náð í desember. Þá greindust tvær vikur í röð yfir hundrað með inflúensu en síðustu fjórar vikur hafa að meðaltali þrettán greinst með inflúensu í viku hverri. Þetta kemur fram í yfirliti landlæknis um öndunarfærasýkingar. Sautján greindust með RS-veirusýkingu í síðustu viku og lágu sex sjúklingar inni á Landspítala með hana. Læknir að störfum. Safnmynd. RÚV / Kristinn Þeyr Magnússon Fyrir 6 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Popptónlist Indí-kántrí-popp Söngkonan Malen sendi á dögunum frá sér nýtt lag sem heitir You and I. Hún sagði hlustendum Popplands frá. Fyrir 27 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi 18 milljónir í biðlaun vegna tveggja ráðherra Kostnaður ríkisins vegna biðlauna og launatengdra gjalda nemur 18 milljónum eftir afsagnir tveggja ráðherra á fyrsta rúmlega ári ríkisstjórnarinnar. Fyrir 30 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Lögreglukona sektuð fyrir uppflettingu í LÖKE Lögreglukona sem ákærð var fyrir uppflettingu í upplýsingakerfi lögreglunnar, LÖKE, var sakfelld í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Vestfirðir Heimta tafarlausar úrbætur á húsnæði lögreglunnar á Ísafirði Stjórn Landssambands lögreglumanna segir ástand á starfsaðstöðu lögreglumanna á Ísafirði með öllu óboðlegt og harmar sinnuleysi yfirvalda gagnvart nauðsynlegum úrbótum. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Harma eldsvoðann á Stuðlum og hafa brugðist við skýrslu HMS Starfsfólk Framkvæmdasýslunnar - Ríkiseigna harmar að eldsvoði hafi orðið á Stuðlum 2024. Rannsókn sýndi að ekki var brugðist við ítrekuðum kröfum um úrbætur á brunavörnum. FSRE segir að þegar hafi verið brugðist við og verklagi breytt. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Lýðræði í Bandaríkjunum hefur „sokkið eins og steinn“ Heimsgluggi vikunnar á Morgunvakt Rásar 1 fjallaði um öfugþróun lýðræðis í heiminum, stjórnmál á Grænlandi og mótsagnakenndar skýringar ráðamanna í Bandaríkjunum um ástæður árásanna á Íran. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Bandaríkin sögð íhuga að fjölga um þúsundir í herliði í Mið-Austurlöndum Dagný Hulda Erlendsdóttir Stjórnvöld í Bandaríkjunum íhuga að fjölga í herliði sínu í Mið-Austurlöndum um mörg þúsund manns þar sem nýtt tímabil í stríðinu er að hefjast, segir í frétt Reuters. Til skoðunar er að tryggja siglingaleiðina um Hormússund fyrir olíuflutningaskip, með land- og sjóher. Henni lokuðu Íranar stuttu eftir að Bandaríkin og Ísrael hófu árásir í lok síðasta mánaðar. Einnig er til skoðunar að senda hermenn að ströndum Írans, hefur Reuters eftir heimildamönnum. Fallnir bandarískir hermenn fluttir til heimalandsins. Myndin var tekin 9. mars 2026 á Dover herstöðinni. AP / Julia Demaree Nikhinson Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Ein sjaldheyrðasta ópera heims á Óperukvöldi RÚV Óperan “Zampa” eftir Hérold er ein sjaldheyrðasta ópera heims, jafnvel á hljómplötum er varla hægt að finna annað úr henni en forleikinn. Samt var þetta ein vinsælasta ópera 19. aldar. Hún verður flutt á Óperukvöldi útvarpsins, fim. 19. mars. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Tvö eða þrjú framboð: Svona verða bæjarstjórnarkosningar í Grindavík Ríflega 900 eru á kjörskrá fyrir bæjarstjórnarskosningar í Grindavík og viðbúið er að fleiri brottfluttir bætist við. Tvö framboð hafa birt lista, en fjórir flokkar sitja í bæjarstjórn. Óvíst er með framboð stærsta flokksins í bæjarstjórn. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Golf Ein merkilegasta endurkoma íþróttasögunnar Saga kylfingsins Anthonys Kim er saga áfalla, uppgjafar, neyslu og missis. Eftir þrotlausa baráttu er hún líka orðin saga sigurs, endurkomu, tækifæra og þess að gefast ekki upp. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Fjarskipti Míla sektuð um 200 milljónir Samkeppniseftirlitið hefur sektað Mílu vegna brota á skilyrðum sem voru sett fyrir kaupum fransks sjóðastýringarfélags á fyrirtækinu. Búið er að breyta skilyrðum vegna breytinga á markaði fyrir heimtaugar og gagnaflutning. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Fljótagöng framar vegna mikillar náttúruvár Innviðaráðherra var á fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í morgun spurður hvort ný forgangsröðun jarðganga á samgönguáætlun væri pólitísk. Hann segir mikla náttúruvá ástæðu þess að Fljótagöng hafi verið færð framar í forgangsröð. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Rússland Stríðsbloggari snýst gegn Pútín Viðsnúningur rússnesks stríðsbloggara í afstöðu sinni til Pútíns hefur vakið athygli. Hann var lengi stuðningsmaður stefnu stjórnvalda en sakar nú forsetann um að vera stríðsglæpamann sem sendi hermenn út í opinn dauðann. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Tíu milljónir fengust upp í kröfur Brynjólfur Þór Guðmundsson Skiptum á þrotabúi Kvikmyndaskóla Íslands lauk í síðustu viku. Alls var lýst kröfum upp á 217 milljónir króna í búið og fengust tæpar tíu milljónir upp í þær. Eignir dugðu því fyrir 4,5 prósentum af kröfum. Búskröfur upp á 3,4 milljónir voru greiddar að fullu og 6,4 milljónir fengust upp í forgangskröfur. Milljónirnar sex dugðu til að greiða 14 prósent af samþykktum forgangskröfum. Ekkert fékkst upp í almennar kröfur og eftirstæðar kröfur. Kvikmyndaskólinn varð gjaldþrota í mars í fyrra. Rafmennt, í eigu Rafiðnaðarsambands Íslands, og Samtök rafverktaka keyptu eignirnar af þrotabúinu og héldu starfseminni áfram á nýjum stað. Húsnæði Kvikmyndaskóla Íslands fram að gjaldþroti. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dýravelferð „Dýraníð líðst almennt á Íslandi“ Lögmaður segir eftirliti með velferð dýra í verksmiðjubúskap hér á landi ábótavant. Myndefni sem birtist í Kveik á þriðjudag, sem sýni aðstöðu dýra í minkabúi, sé sláandi - en komi þó ekki á óvart. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vestmannaeyjabær Byrja rannsóknarboranir vegna ganga milli lands og Eyja Brynjólfur Þór Guðmundsson Eyjagöng ætla að hefja rannsóknarboranir í næsta mánuði til að kanna möguleika á fastri vegtengingu milli lands og Eyja. Fyrirtækið hefur samið við Ræktunarsamband Flóa og Skeiða um framkvæmdina. Hún á að veita innsýn í jarðlög og undirstöður á fyrirhugaðri leið. Borað verður á tveimur stöðum, á Eiðinu á Heimaey og á Landeyjasandi við bæinn Kross. Hefja á boranir snemma í apríl og klára þær fyrir lok mánaðar. Vinna á úr sýnum fram í byrjun júlí. Aðsend / Eyjagöng Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið Átakafundur leiðtoga Evrópusambandsins í Brussel Tekist verður á um lán Evrópusambandsins til Úkraínu á leiðtogafundi ESB sem er að hefjast í Brussel. Fátt bendir til þess að Ungverjar láti af andstöðu sinni við lánið, fyrr en deilan um olíuleiðslu í Úkraínu verður leyst. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dýravelferð Dýralæknar vilja banna loðdýrahald Dýralæknafélagið lýsir stuðningi við yfirdýralækni sem vill að lög um loðdýrarækt verði endurskoðuð. Félagið vill að stjórnvöld taki skýra afstöðu gegn loðdýrahaldi. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Gasverð rýkur upp eftir árásir Írana í morgun Íranar ollu miklum skemmdum á stærstu gasframleiðslustöð heims. Verð á gasi í Evrópu hækkaði um 35 prósent skömmu síðar. Íranar réðust einnig á olíuhreinsistöðvar í Kúveit. Fyrir 5 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Gerir upp erfiða æsku: „Maður á ekki að vera með fortíðina á herðunum“ Varaþingmaðurinn Elín Íris Fanndal ólst upp við mikla fátækt og erfiðar aðstæður. Foreldrar hennar voru í stormasömu hjónabandi sem endaði með því að móðir hennar yfirgaf fjölskylduna og giftist amerískum hermanni sem kom ekki vel fram. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Húsnæðismál Rólegheit á fasteignamarkaði Brynjólfur Þór Guðmundsson Fasteignasalar lýsa húsnæðismarkaði sem miklum kaupendamarkaði og segja algengara en áður að verð sé lækkað í söluferli, að því er kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Markaðurinn er rólegur og lítill verðþrýstingur síðustu mánuði. HMS segir að eftir miklar verðhækkanir síðustu ár eigi sér stað aðlögun þar sem íbúðaverð hefur hækkað minna en verðlag síðan í fyrrasumar. Íbúðaverð hefur því lækkað að raunvirði. Dregið hefur úr verðþrýstingi á leigumarkaði síðustu misseri og leiguverð staðið í stað að raunvirði síðustu tólf mánuði. Íbúðarhúsnæði á Ísafirði. Aðsent / Bartosz Kozik Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Í kvöld: Strákarnir okkar mæta Svíum Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætir Svíþjóð í æfingaleik í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:30 og er í beinni útsendingu á RÚV 2. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Veðurviðvaranir: Nær öllu innanlandsflugi aflýst Sunnan hvassviðri eða stormi er spáð um allt land í dag og næstu daga. Síðustu gulu viðvaranir falla ekki úr gildi fyrr en á laugardag. Vegir eru lokaðir vegna veðurs og á óvissustigi vegna snjóflóðahættu. FRÉTTAVAKT Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Einn drepinn í drónaárás á Sevastopol Markús Þ. Þórhallsson Einn almennur borgari var drepinn og tveir særðust lítillega þegar Úkraínuher gerði drónaárás á hafnarborgina Sevastopol á Krímskaga í nótt. Rússneskur kafbátur úr Svartahafsflotanum siglir fram hjá Istanbúl í Tyrklandi. EPA / ERDEM SAHIN Borgin er heimahöfn Svartahafsflota Rússlands og Úkraínumenn hafa iðulega gert þar árásir í rúmlega fjögurra ára gömlu innrásarstríðinu. Landstjóri Rússa segir að flotinn og loftvarnarkerfi borgarinnar hafi skotið niður 27 úkraínska dróna yfir Sevastopol. Loftvarnarkerfi í rússneska héraðinu Stavropol grönduðu fjölda dróna sem stefndu á iðnaðarsvæði. Úkraínumenn segja þrjá hafa særst í loftárás á hafnarborgina Odesu í nótt. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Dularfull flygildi á ferð yfir herstöð í Washington Markús Þ. Þórhallsson Dularfullra flygilda hefur orðið vart undanfarna tíu daga yfir Les