Innlent | Morgunblaðið | 16.6.2026 | 12:30 Skæð inflúensa olli miklu álagi Inflúensutilfellum fjölgaði verulega á seinasta ári mbl.is/Hari Ómar Friðriksson [email protected] Setja bókamerki Smitsjúkdómar 63 voru greindir með sárasótt á seinasta ári, 60 karlar og þrjár konur. 37 einstaklingar greindust með HIV á árinu og þrír einstaklingar með alnæmi, tveir karlar og ein kona, öll af erlendum uppruna. 39 greindust með sýkingu af völdum pneumókokkabaktería sem geta valdið alvarlegum sjúkdómum. Uppsveifla hefur verið frá 2022 og mælt er með bólusetningu 60 ára og eldri. Inflúensutilfellum fjölgaði verulega á seinasta ári og greindust alls 1.382 einstaklingar á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri samanborið við 835 á árinu á undan. Faraldurinn hófst tveimur til fjórum vikum fyrr en undanfarna vetur og fór hraðar af stað en undanfarin ár. Þetta varð til þess að innlögnum fjölgaði skarpt vegna inflúensu í desembermánuði 2025 og álag á heilbrigðiskerfið var mikið, að því er segir í nýútkominni ársskýrslu sóttvarna fyrir árið 2025. Mun færri virðast hins vegar hafa veikst af covid-19 í fyrra en á árunum á undan og sjúkdómurinn olli ekki viðlíka álagi á heilbrigðiskerfið og áður. Um 460 einstaklingar greindust með veiruna á síðasta ári samanborið við 955 smit sem greind voru á árinu 2024, sem voru þó mun færri smit en á árunum á undan. Hafa ber þó í huga að mun færri sýni hafa verið tekin undanfarin misseri en á árum faraldursins. Hrina kíghófsta gekk niður Sóttvarnalæknir innleiddi í fyrsta sinn í fyrra svonefnda SARI-vöktun á alvarlegum bráðum öndunarfærasýkingum. Greind voru 343 tilfelli í fyrra og þar af voru 23 einstaklingar lagðir inn á gjörgæslu. Hrina kíghóstatilfella á árinu 2024, sem var sú mesta í 30 ár þegar 145 einstaklingar voru greindir með kíghósta, gekk að miklu leyti niður á síðasta ári. Þá voru alls 14 greindir með kíghósta. 15 einstaklingar greindust með berkla á síðasta ári, sem er svipaður fjöldi og á árunum 2022 og 2023. Einn einstaklingur greindist með hermannaveiki en ekki tókst að rekja uppruna smitsins. Ekki færri greinst með klamydíu í 30 ár Fram kemur í greiningu á kynsjúkdómum að í fyrra greindust 1.684 með klamydíu eða 433 á hverja hundrað þúsund íbúa og hafa ekki færri greinst með sjúkdóminn á einu ári í 30 ár. „Ekki liggja fyrir orsakir þessarar fækkunar, en mögulegt er að aukin fræðsla og vitund um kynsjúkdóma hafi haft áhrif,“ segir í skýrslunni. Greiningum á lekanda hefur aftur á móti fjölgað mikið á umliðnum árum sem náðu hámarki á árinu 2023. Tilfellum fækkaði á seinustu tveimur árum en eru þó enn mörg í sögulegu ljósi. Í fyrra greindust 279 einstaklingar með lekanda hér á landi sem er um 17% fækkun samanborið við árin 2023 og 2024, að því er segir í skýrslunni. „Um það bil 76% tilfella lekanda árið 2025 voru karlmenn og um 64% tilfella voru með íslenskt ríkisfang. Tíðni lekanda var hæst í aldurshópnum 25−29 ára,“ segir í skýrslunni. Kort/mbl.is 13 einstaklingar voru greindir með lifrarbólgu A á seinasta ári, fjögur börn og níu fullorðnir, en hópsýking af völdum lifrarbólgu A kom upp sl. haust. Átta einstaklingar greindust með malaríu og tveir með beinbrunasótt í fyrra. Tengdust öll smitin ferðalögum erlendis. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Smitsjúkdómar 63 voru greindir með sárasótt á seinasta ári, 60 karlar og þrjár konur. 37 einstaklingar greindust með HIV á árinu og þrír einstaklingar með alnæmi, tveir karlar og ein kona, öll af erlendum uppruna. 39 greindust með sýkingu af völdum pneumókokkabaktería sem geta valdið alvarlegum sjúkdómum. Uppsveifla hefur verið frá 2022 og mælt er með bólusetningu 60 ára og eldri. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Segir framkvæmdir hefjast í haust og ljúka 2030 Einungis jafntefli á HM Mun fleiri aðgerðir með nýjum aðgerðaþjarka Perutertan er ómissandi á 17. júní Holland staðfestir hjónabandið Umræðan Hjólað inn í framtíðina Húsnæðiserfiðleikar ungs fólks innan ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Úr sauðburðinum í stálið Fleiri leiðir inn á húsnæðismarkað Kristrún bíður enn fundar með Trump Aðgerðaáætlun vegna heilabilunar Mest lesið Í gær Í vikunni Stungu af með kranabíl Þorgerður svarar Diljá Mist Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ Mikill meirihluti gesta Íslendingar „Það myndast þarna smá vonarglæta“ Kostnaður af evru gæti numið hundruðum milljarða Spilin stokkuð upp á nýtt í Grindavik Þrír áfrýja til Hæstaréttar „Svo réð ég hvort ég hlustaði“ Eiga von á yfir 100 skemmtiferðaskipum í sumar Fátíður en sláandi atburður Árásin í húsi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Erlendir ferðamenn lentu í árekstrinum Svar ráðherra „jaðri við rugl“ Fundi lokið: „Þungt og erfitt samtal“ Biðla til fólks að athuga með símtæki sín Einn stunginn með hnífi og þrír handteknir Formaðurinn veikur heima í atkvæðagreiðslu Ráðherra setur reglur um síma Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Óttast er að hundruð missi vinnuna Fátíður en sláandi atburður Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Nýjast á mbl.is » Segir framkvæmdir hefjast í haust og ljúka 2030 Einungis jafntefli á HM Mun fleiri aðgerðir með nýjum aðgerðaþjarka Perutertan er ómissandi á 17. júní Holland staðfestir hjónabandið Umræðan Hjólað inn í framtíðina Húsnæðiserfiðleikar ungs fólks innan ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Aðgerðaáætlun vegna heilabilunar Spilin stokkuð upp á nýtt í Grindavik Segir framkvæmdir hefjast í haust og ljúka 2030 „Það myndast þarna smá vonarglæta“ Mest lesið Í gær Í vikunni Stungu af með kranabíl Þorgerður svarar Diljá Mist Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ Mikill meirihluti gesta Íslendingar „Það myndast þarna smá vonarglæta“ Kostnaður af evru gæti numið hundruðum milljarða Spilin stokkuð upp á nýtt í Grindavik Þrír áfrýja til Hæstaréttar „Svo réð ég hvort ég hlustaði“ Eiga von á yfir 100 skemmtiferðaskipum í sumar Fátíður en sláandi atburður Árásin í húsi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Erlendir ferðamenn lentu í árekstrinum Svar ráðherra „jaðri við rugl“ Fundi lokið: „Þungt og erfitt samtal“ Biðla til fólks að athuga með símtæki sín Einn stunginn með hnífi og þrír handteknir Formaðurinn veikur heima í atkvæðagreiðslu Ráðherra setur reglur um síma Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Óttast er að hundruð missi vinnuna Fátíður en sláandi atburður Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum