Sante ehf., sem selur áfengi í netverslun, telur að a.m.k. 35 af 63 þingmönnum séu fylgjandi frumvarpi um að heimila rekstur innlendra vefverslana með áfengi. Þetta kemur fram í nýrri atkvæðavakt sem Sante heldur úti. Í síðasta mánuði lagði hópur þingmanna Viðreisnar, sem Grímur Grímsson fer fyrir, frumvarp um breytingu á áfengislögum sem miðar að því að heimila innlendum aðilum að starfrækja vefverslun með áfengi í smásölu að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Sjá einnig Grímur kynnir frumvarp um netverslun með áfengi Frumvarpið er nær samhljóða drögum að frumvarpi sömdu í dómsmálaráðuneytinu sem birt var í samráðsgátt stjórnvalda hinn 30. september 2024, sem Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins og þáverandi dómsmálaráðherra, fór fyrir. Sante telur að allir 11 þingmenn Viðreisnar, 14 þingmenn Sjálfstæðisflokksins og 8 þingmenn Miðflokksins séu fylgjandi frumvarpinu. Kristrún og Sigmundur Ernir fylgjandi Af hinum tveimur stjórnarflokkunum, Samfylkingunni og Flokki fólksins, er aðeins gert ráð fyrir að tveir þingmenn séu fylgjandi; Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Sigmundur Ernir Rúnarsson. Sjá einnig Óskýr lína hjá Samfylkingunni í áfengismálum Afstaða 12 annarra þingmanna Samfylkingarinnar er flokkuð sem óákveðin. Þá er gert ráð fyrir að Alma D. Möller heilbrigðisráðherra sé mótfallin frumvarpinu. Skjáskot af vef áfengisvaktarinnar sem Sante heldur úti. Af þingmönnum Flokks fólksins er gert ráð fyrir að 6 þingmenn séu mótfallnir breytingunum en afstaða fjögurra þingmanna er talin óákveðin. Af fimm þingmönnum Framsóknarflokksins er gert ráð fyrir að þrír þingmenn séu á móti breytingunum en að afstaða tveggja sé óákveðin. Sjá einnig Allt í járnum í áfenginu Viðskiptablaðið birti í október 2024, þ.e. á síðasta kjörtímabili, niðurstöður könnunar á afstöðu allra þingmanna til netsölu áfengis. Niðurstöðurnar voru á þann veg að útlit var fyrir að ekki væri meirihluti fyrir því að heimila starfsemi innlendra vefverslana með áfengi. Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins byggir atkvæðavakt Sante m.a. á svörum þingmanna í könnun blaðsins. Auk þess hefur félagið upplýst alla þingmenn um atkvæðavaktina og gefið þeim kost á að breyta afstöðu sinni. Lesendur geta nálgast könnun Viðskiptablaðsins frá október 2024 og svör einstakra þingmanna hér .