Innlent | mbl | 9.9.2026 | 17:57 Áfengisverslun á netinu: Svæft frumvarp endurflutt Fjölbreytt úrval af vínum fæst hjá Santé, bæði áfengum og óáfengum. mbl.is/Eggert Jóhannesson Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Vín í verslanir Skora á Alþingi að breyta áfengislöggjöfinni Ætla að taka til varna: Einkaleyfi ÁTVR gatslitið Eigendur Santé ákærðir fyrir brot á áfengislögum Aldrei breytast, Kári Stefánsson! „Þú sigar hundum á sauðfé – ekki lögreglu“ » Fleiri tengdar fréttir Frumvarp átta þingmanna Viðreisnar um að heimila innlenda vefverslun með áfengi verður endurflutt á haustþingi en frumvarpið var svæft í nefnd síðasta vetur án þess að nokkur þingmaður talaði gegn því. Um leið hefur ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, kallað eftir skýringum íslenskra stjórnvalda á því hvernig fyrirkomulag áfengissölu samrýmist EES-samningnum. Finnska þingið samþykkti í sumar umfangsmestu breytinguna á finnskri áfengislöggjöf í tvo áratugi. Á Íslandi er sama umræða í fullum gangi undir nákvæmlega sömu formerkjum. Frétt af mbl.is Ætla að taka til varna: Einkaleyfi ÁTVR gatslitið Þrjú finnsk skref á átta árum Áfengisverslun finnska ríkisins, Alko, hefur haldið einkaleyfi á smásölu sterkari drykkja frá því Finnland gekk í Evrópusambandið árið 1995. Á sama tíma hafa Finnar rýmkað það sem matvöruverslanir mega selja, í þremur skrefum. Þriðja skrefið, lagabreytingin sem samþykkt var í sumar, snýst ekki um styrkleika áfengis heldur um verslunarhætti, rétt eins og íslenska frumvarpið. Frétt af mbl.is Eigendur Santé ákærðir fyrir brot á áfengislögum Netverslun, heimsending og Alko á sunnudögum Samkvæmt nýju lögunum er matvöruverslunum, veitingahúsum og Alko sjálfu heimilt að selja áfengi á netinu og senda heim til neytenda. Matvöruverslanir mega senda drykki upp að sömu mörkum og þær mega selja yfir búðarborð en sterkari drykki má aðeins panta hjá Alko. Afhending er heimil milli klukkan 9 á morgnana og 21 á kvöldin. Viðtakandi skal vera viðstaddur og sanna aldur sinn. Lögin viðurkenna rétt netverslana annars staðar á EES-svæðinu til þess að selja áfengi til finnskra neytenda en sú heimild tekur gildi í byrjun árs 2027. Byggist hún á dómi hæstaréttar Finnlands frá því í september á síðasta ári (KKO 2025:71) þar sem skorið var á langvarandi lagaóvissu um fjarsölu yfir landamæri. Evrópudómstóllinn hafði slegið rétti þessum föstum í Rosengren-málinu gegn Svíum árið 2007 og Svíar lögfestu hann í kjölfarið. Þetta var ein af forsendum þess að Finnar réðust í heildarendurskoðun laganna; kerfið varð að standast dómana til að uppfylla kröfur frá Brussel. Á Íslandi er þessi réttur hvergi lögfestur. Áfengislögin kveða hvorki á um bann við innflutningi til eigin nota né að slíkur innflutningur sé leyfilegur. „Einkainnflutningsleiðin“ sem íslensk stjórnvöld hafa gefið ESA til skýringar reiðir sig á þögn laganna og hvernig framkvæmd tollsins er háttað. Frétt af mbl.is „Þú sigar hundum á sauðfé – ekki lögreglu“ Útspilið sem samræmdist Evrópuréttinum Arnar Sigurðsson, stofnandi netverslunarinnar Santé, þekkir þessi mál betur en margur. Segir hann að lausnin sem finnska þingið samþykkti hafi verið að sama regla gilti um innlenda og erlenda seljendur, aldursstaðfesting við afhendingu og skýr lagaheimild fyrir fjarsölu yfir landamæri. „Þetta er sá lærdómur sem íslensk stjórnvöld standa nú frammi fyrir í ESA-málinu, með öfugum formerkjum. Á Íslandi er erlend netverslun með áfengi þegar lögleg samkvæmt EES-samningnum en sú innlenda ekki. Þannig er innlendum fyrirtækjum mismunað, sem hljómar auðvitað undarlega,“ segir Arnar. Frétt af mbl.is Netverslun með áfengi í boði ráðherra Frumvarp Viðreisnar: Aðeins netið Hann segir að í því ljósi sé frumvarp Viðreisnarþingmannanna hógvært. Það hrófli hvorki við einkaleyfi ÁTVR í verslunum né við reglum um hvað matvöruverslanir megi hafa í hillum. „Enginn mun geta tínt bjór eða vínflöskur í körfuna í Bónus eða Krónunni eftir samþykkt þess, frekar en nú. Frumvarpið snýr að einu atriði, að jafna stöðu innlendrar vefverslunar við þá erlendu sem þegar er lögleg. Einkaleyfið er einfaldlega afnumið á netinu.“ Skilyrðin fyrir kaupum og afhendingu segir Arnar á hinn bóginn strangari en í finnsku lögunum. Kaupandi verði að staðfesta aldur sinn með rafrænum skilríkjum áður en kaupum lýkur. Við afhendingu megi aðeins afhenda kaupandanum sjálfum vöruna og sá sem afhendi, hvort sem hann sé sendill eða starfsmaður á afhendingarstað, verði að krefjast skilríkja. Segir Arnar innlenda aðila sem starfrækja vefverslun í dag þegar hafa gengið lengra en lögin krefjast. Santé, sem rekur afhendingarlager á Fáskrúðsfirði eftir að ÁTVR lokaði Vínbúðinni þar í vor, hafi til að mynda tekið upp myndupptöku við alla afhendingu sem gervigreind greinir í rauntíma og varar við ef líkur þykja á að viðtakandi sé undir aldri. Þá séu öll viðskipti skráð á kennitölu kaupanda og rekjanleg ef upp komi tilfelli um brot kaupenda. Frétt af mbl.is Áfengisnetverslanir komnar til að vera Sama umræða, tvær niðurstöður Andstaðan við finnsku lögin var af sama meiði og á Íslandi, segir Arnar frá. Lýðheilsustofnun Finnlands hafi varað við frekari rýmkun og á móti hafi stuðningsmenn vísað til þess að áfengisneysla Finna hafi samkvæmt opinberum tölum dregist saman og sé komin niður á sama stig og á áttunda áratugnum, þrátt fyrir rýmkanir. Arnar segir að á Íslandi sýni tölur Hagstofunnar sömu þróun: neyslan hafi mælst 8,1 lítri á mann 2022, 7,7 lítrar 2023 og 7,6 lítrar 2024. Fern frumvarpsdrög dómsmálaráðuneytisins, frá 2019, 2020, 2023 og 2024 og nú þingmannafrumvarp Viðreisnar, hafa öll dagað uppi án atkvæðagreiðslu. „Á meðan bíður ESA. Í grunninn snýst spurningin um að færa kerfi sem smíðað var um sölu áfengis á hliðrænum tíma inn í stafrænan nútíma og uppfylla um leið skuldbindingar Íslands samkvæmt EES-samningnum. Finnar hafa sýnt að það er hægt án þess að leggja ríkisverslunina niður. Hvort Alþingi kýs að gera það sjálft eða bíða eftir ákvörðun EFTA-dómstólsins er spurningin sem haustþingið stendur frammi fyrir.“ Tengdar fréttir Vín í verslanir Skora á Alþingi að breyta áfengislöggjöfinni Ætla að taka til varna: Einkaleyfi ÁTVR gatslitið Eigendur Santé ákærðir fyrir brot á áfengislögum Aldrei breytast, Kári Stefánsson! „Þú sigar hundum á sauðfé – ekki lögreglu“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Misskiljum hvað er gott fyrir börnin HK – Fylkir kl. 19:15, bein lýsing Sá heppni vann 54 milljónir Liverpool – Atlético Madrid kl. 19, bein lýsing Anna Fríða og Sverrir giftu sig á Ítalíu Umræðan Lífið er kokteilsósa Hvers virði er þjóð fullveldi? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Seinkanir gætu orðið á flugferðum „Gæti drepið okkur öll fyrir lok áratugarins“ Sprengdu heimatilbúna sprengju í Múlagöngum Mest lesið Í gær Í vikunni Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Borgar sig ekki að fara af stað Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Vill heimild til að selja Haga Leyfa ekki byggingu íbúðarhúsa við Vatnsenda „Það er ekki hægt að spyrja þennan mann“ Skorað á Þorgerði að segja af sér „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis „Mamma þín stendur fyrir utan Hagkaup“ Tæp 60% bóta fara til útlendinga Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Bilið breikkar mest á Íslandi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Kílómetragjald hækki um 15,9% Nýjast á mbl.is » Misskiljum hvað er gott fyrir börnin HK – Fylkir kl. 19:15, bein lýsing Sá heppni vann 54 milljónir Liverpool – Atlético Madrid kl. 19, bein lýsing Anna Fríða og Sverrir giftu sig á Ítalíu Umræðan Lífið er kokteilsósa Hvers virði er þjóð fullveldi? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vill heimild til að selja Haga „Gæti drepið okkur öll fyrir lok áratugarins“ „Íslenska menntakerfið er ekki að skila árangri“ Myndir: Veifuðu af svölunum með bros á vör Mest lesið Í gær Í vikunni Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Borgar sig ekki að fara af stað Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Vill heimild til að selja Haga Leyfa ekki byggingu íbúðarhúsa við Vatnsenda „Það er ekki hægt að spyrja þennan mann“ Skorað á Þorgerði að segja af sér „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis „Mamma þín stendur fyrir utan Hagkaup“ Tæp 60% bóta fara til útlendinga Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Bilið breikkar mest á Íslandi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Kílómetragjald hækki um 15,9%