Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hvetur fólk að bóka sem fyrst áður en verð hækkar

Read Full Article →

Forstjóri easyJet, Kenton Jarvis, hvetur fólk sem hefur ekki enn bókað flug fyrir sumarið til að drífa sig í því ef það vill komast hjá miklum verðhækkunum í ljósi hækkunar eldsneytisverðs sem rekja má til stríðsátaka í Miðausturlöndum. „Ég á von á að verð muni hækka. Iðnaðurinn á engra annarra kosta völ. Við þénum um 7 pund fyrir hvert sæti og ef eldsneytisverð hækkar um 10 pund þá verðum við að bregðast við því. Þú ert ekki að fara að horfa fram á auka kostnað upp á 10 pund og gera ekkert í því.“ Mörg af stærstu flugfélögum Evrópu búa sig undir að þurfa mögulega að hækka verð ef stríðsátök dragast á langinn og ýta áfram undir eldsneytisverð, að því er segir í frétt The Telegraph . Eldsneytisvarnir hafa enn sem komið er dregið úr verðþrýstingi. Þær varnir gætu hins vegar veikst á næstu mánuðum þegar líða tekur á gildistíma samninga. Jarvis segir að því lengur sem eldsneytisverð helst hátt þá aukast líkurnar á að flugfélög þurfi að byrja að verja stöður sínar út frá hærri verðum. „Ég held að skilaboðin ættu að vera að bóka eins snemma og hægt er.“ Jarvis, sem hefur starfað sem forstjóri easyJet frá ársbyrjun 2025, segist enn sem komið er ekki hafa áhyggjur af flugeldsneytisbirgðum. Það gæti hins vegar breyst ef átökin dragast á langinn. Hann bætir við að birgjar flugfélagsins séu byrjaðir að ræða birgðastöðu í vikum talið frekar en mánuðum. „Það snýst ekki bara um olíuna, heldur einnig stöðu hreinsunarstöðva, en það spilar bæði inn í þegar kemur að flugvélaeldsneyti.” Hann segir bókanir hjá easyJet til áfangastaða sem eru álitnir öruggir, eins og Spánn, Portúgal og Malta, hafa aukist. Þróunin sé þveröfug í bókunarflæði vegna áfangastaða á borð við Kýpur, Egyptaland og Tyrkland.

Share this article