easyJet hefur hafið nýtt ráðningarátak og hvetur fólk yfir fimmtugt til að sækja um störf sem flugfreyjur og flugþjónar. Fjöldi flugliða yfir fimmtugt hjá félaginu hefur meira en tvöfaldast frá árinu 2022 og flugliðum á sextugsaldri hefur á sama tíma fjölgað nær fjórfalt. Andrew Hampson er einn þeirra sem tók skrefið. Hann var 61 árs þegar hann byrjaði sem flugþjónn hjá easyJet eftir að hafa áður rekið fyrirtæki í viðburðahaldi. Hann hafði verið að leita að starfi þar sem hann væri meira á ferðinni og hefur síðan hann byrjaði flogið meira en 250 ferðir á ári. Vaktirnar geta orðið allt að 13 klukkustunda langar og hann er mikið á fótunum, en Hampson segir í viðtali við The Times að starfið hafi haft góð áhrif á sig. „Mér líður eins og ég sé 20 árum yngri.“ Hann segist hafa gert ráð fyrir því að vera meðal þeirra elstu þegar hann byrjaði, en það reyndist ekki vera raunin. Francesca Hicks tók einnig stökkið og hóf störf sem flugfreyja hjá easyJet 64 ára gömul á síðasta ári. „Stundum kem ég út úr flugvélinni og mér líður eins og ég hafi verið í partíi, því ég hef átt svo góð samskipti við farþegana,“ segir hún. Áður hafði hún starfað við umönnun fólks með heilabilun og segir að henni hafi reynst erfitt að finna starf eftir að hún flutti til London. Eftir að hún hóf störf hjá easyJet hefur hún hins vegar flogið til 22 landa. Michael Brown, yfirmaður flugþjónustu hjá easyJet, segir að fólk yfir fimmtugt hafi margt fram að færa í starfinu. Það komi með þekkingu og færni úr fyrri störfum auk lífsreynslu sem bæði farþegar og samstarfsfólk kunni að meta.