Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

539 milljóna tap

Read Full Article →

Líftæknifyrirtækið Genís tapaði 539 milljónum króna árið 2024 en árið áður nam tapið 480 milljónum. Frá árinu 2020-2024 nemur samanlagt tap félagsins 2,8 milljörðum króna. Tekjur samstæðunnar námu 180 milljónum, sem er aukning um 25,9% milli ára. Hlutafé var hækkað um tæplega 1,1 milljarð á árinu til að styðja við á­fram­haldandi þróun á beinígræðum og lyfjum við bólgu­sjúk­dómum. Selvík ehf., félag í eigu Róberts Guðfinnssonar, stjórnarformanns Genís, Steinunnar R. Árnadóttur og fjölskyldu, var stærsti hluthafinn með 50,4% hlut í árslok 2024. Róbert Guðfinnsson greindi frá því í vikunni að leit að fjármagni innanlands undanfarna mánuði hefði ekki skilað árangri og að forsendur sem nauðsynlegar væru til næsta vaxtarskeiðs félagsins ekki til staðar hérlendis. Nú væri í vinnslu að selja fyrirtækið og færa starfsemina, að hluta eða að öllu leyti, í umhverfi þar sem meiri skilningur ríki á uppbyggingu líftæknifyrirtækja til lengri tíma og þar sem aðgengi að fjármagni og mörkuðum sé tryggara. Framtíð Genís myndi ráðast á næstu misserum. Lykiltölur / Genís hf. 2024 2023 Tekjur 180 143 Eigið fé 1.449 850 Eignir 1.922 1.243 Afkoma -539 -480 - í milljónum króna Hluti fréttarinnar birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .

Share this article