Líftæknifyrirtækið Ísteka tapaði 87 milljónum króna í fyrra, en félagið hagnaðist um 316 milljónir króna árið 2024. Þetta er í fyrsta sinn frá stofnun árið 2000 sem fyrirtækið, sem sérhæfir sig í að vinna lyfjaefni úr hryssublóði, skilar tapi. Samanlagt nam hagnaður áranna 2019-2024 2,5 milljörðum króna. Tekjur félagsins námu 1.680 milljónum og drógust saman um tæp 10% milli ára. Á sama tíma námu rekstrargjöld 1.807 milljónum, sem er aukning um tæplega 15% milli ára. Í ársreikningi segir að verri afkoma sé að mestu tilkomin vegna óhagstæðrar gengisþróunar, verðhækkana á aðföngum og aukins launakostnaðar. Vísað er til þess að verð á seldum afurðum sé eingöngu í erlendum myntum á meðan almennur rekstrarkostnaður er að mestu í íslenskum krónum. Hörður Kristjánsson er stærsti hluthafi Ísteka með 49,5% hlut. Hólmfríður H. Einarsdóttir á 21,3% hlut og Klara ehf. 18,1% hlut. María Hrönn Gunnarsdóttir á þá 6,7% hlut, Arnþór Guðlaugsson, framkvæmdastjóri Ísteka, á 3,3% hlut og Bryndís Stefánsdóttir á 1,1% hlut. Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .