Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Listi Viðreisnar í Árborg staðfestur

Read Full Article →

Viðreisn staðfesti í dag framboðslista sinn í Árborg fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar þann 16. maí. Listinn var staðfestur á félagsfundi Viðreisnar í Árnessýslu fyrir skemmstu. Viðreisn hefur ekki áður boðið fram lista í Árborg og er það Heiðrún Kristmundsdóttir verkefnastjóri sem er oddviti. Í öðru sæti er Guðný Björk Pálmadóttir hönnuður og nýsköpunarverkfræðingur. Það þriðja skipar Þorsteinn Haukur Harðarson ráðgjafi. Í fjórða sæti er Birgir Marteinsson lögfræðingur og fimmta sætið skipar Ingunn Guðmundsdóttir viðskiptafræðingur. „Þetta er öflugur listi sem ég hlakka mikið til að vinna með í komandi baráttu,” segir Heiðrún Kristmundsdóttir, nýr oddviti Viðreisnar í Árborg, í tilkynningu. „Við ætlum að setja öfluga þjónustu við barnafjölskyldur á oddinn og leiðir til að takast á við vaxtarverki stækkandi sveitarfélags hér í Árborg. Við þurfum að halda áfram að taka til í rekstri bæjarfélagsins svo við getum forgangsraðað í þágu grunnþjónustu.” Sjá má lista Viðreisnar í heild sinni hér fyrir neðan. Listi Viðreisnar í Árborg Heiðrún Kristmundsdóttir, verkefnastjóri. Guðný Björk Pálmadóttir, hönnuður og nýsköpunarverkfræðingur. Þorsteinn Haukur Harðarson, ráðgjafi. Birgir Marteinsson, lögfræðingur. Ingunn Guðmundsdóttir, viðskiptafræðingur. Trausti Jóhannsson, teymisstjóri. Sandra Guðmundsdóttir, forstöðukona. Daníel Leó Ólason, raforkuverkfræðingur. Ellen Amilía Óladóttir, ráðgjafi. Valdimar Gylfason, rafvirki. Alísa Rut Andradóttir, nemi. Óli Kristján Ármannsson, blaðamaður og almannatengill. Lovísa Lillý Davíðsdóttir, framhaldsskólanemi. Sigurður Sólmundsson, verktaki. Laufey Ósk Magnúsdóttir, ljósmyndari. Sindri Ólafsson, rafvirki. Björg Þorkelsdóttir, húsmóðir. Þorvaldur Óskar Gunnarsson, viðskiptafræðingur. Selma Klara Gunnarsdóttir, nemi. Gísli Halldór Halldórsson, sviðsstjóri. Sigurbjörg Björgvinsdóttir, hjúkrunarfræðingur á eftirlaunum. Eyjólfur Sturlaugsson, framkvæmdastjóri.

Share this article