Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 18 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Eldflaugaárás á Tel Aviv Brynjólfur Þór Guðmundsson Fjórir særðust lítillega í eldflaugaárás Írana á Ísrael í morgun. Ein eldflaugin lenti í versnalahverfi í Tel Aviv. Íranskir fjölmiðlar greindu frá því í dag að ísraelskar og bandarískar herþotur hefðu ráðist á gasleiðslu og tvær birgðastöðvar. EPA / ABIR SULTAN Fyrir 59 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist „Enginn getur haft vond áhrif á mig ef ég ber fulla ábyrgð á mér“ Ragnhildur Gísladóttir samdi við sjálfa sig um að standa sig gagnvart sér. Þegar hún var yngri voru óþægilegir hlutir sjaldan útskýrðir sem gerði hana óörugga og er mögulega ástæða þess að hún stamaði sem barn og gerir jafnvel enn. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Veður Aftur hægt að fara um Holtavörðuheiði og Bröttubrekku Óvissustig er vegna snjóflóðahættu á Austfjörðum og hættustig á Seyðisfirði. Fjöldi vega er enn lokaður eftir óveður gærdagsins og næturinnar. Gular viðvaranir falla úr gildi eftir því sem líður á morguninn. FRÉTTAVAKT Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Bryndís Gunnlaugsdóttir bæjarstjóraefni Samfylkingar í Ölfusi Markús Þ. Þórhallsson Samfylkingin og félagar í Ölfusi hyggjast ráða Bryndísi Gunnlaugsdóttur sem bæjarstjóra nái framboðið þeim árangri sem þarf. Aðsend / Samfylkingin og félagar Ölfusi Samið hefur verið við Bryndísi Gunnlaugsdóttir um að verða bæjarstjóraefni Samfylkingarinnar og félaga í Ölfusi. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu undirritaðri af Gunnsteini R. Ómarssyni oddvita og þeim sem skipa 2. til 4. sæti á lista framboðsins. Bryndís er 45 ára lögfræðingur og sat í bæjarstjórn Grindavíkur í 5 ár, þar af 4 sem forseti bæjarstjórnar. Hún hefur starfað hjá KPMG og Sambandi íslenskra sveitarfélaga, hefur kennt sveitarstjórnarrétt og stjórnsýslu við tvo háskóla og er mikil körfuboltakona. Bryndís býr ásamt eiginmanni og dóttur í Hveragerði en er sögð munu flytja til Þorlákshafnar verði hún ráðin bæjarstjóri Ölfuss. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti 40 ár frá því Pétur Guðmunds fór í Lakers — „Aldrei liðið sem ég hafði búist að komast að hjá“ Í ár eru 40 ár frá því að körfuboltamaðurinn Pétur Guðmundsson gekk til liðs við stórliðið Los Angeles Lakers. Showtime Lakers sýningin stóð þar sem hæst. Pétur sagði sögu sína í þættinum Góð íþrótt, gulli betri. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Gular viðvaranir og vegalokanir í morgunsárið Veðrið sem geisaði í gær gengur niður með morgninum. Síðasta gula viðvörunin fellur úr gildi á hádegi. Vegir eru víða lokaðir í morgunsárið. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ísrael skýtur skotflaugum að Beirút og Íranir að Ísrael Ísraelsher skaut eldflaugum á úthverfi í suðurhluta Beirút í nótt. Ísraelar tóku tvo Hezbollah-liða höndum innan landamæra Líbanon. Íranir gerðu eldflaugaárásir á Ísrael í morgun. Bandaríkin segjast hafa grandað 140 írönskum skipum. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Spennandi kosningar þar sem mjótt verður á munum Danskir kjósendur ganga að kjörborðinu í dag. Kjörstaðir verða opnaðir klukkan sjö að íslenskum tíma og kjörfundur varir í 12 klukkustundir. Skoðanakannanir benda til að mjög mjótt verði á munum. Vænta má lokaniðurstaðna í kvöld eða næstu nótt. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Öldungadeildin staðfestir útnefningu Markwaynes Mullen Útnefning nýs ráðherra heimavarna Bandaríkjanna hefur verið staðfest í öldungadeild þingsins. Hann er dyggur samherji forsetans og hefur boðað breytingar. Demókratar hafa haldið aftur af fjárveitingum vegna harðrar framgöngu ICE. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Þrír drepnir í loftárásum á tvær borgir í Zaporizhia Markús Þ. Þórhallsson Þrír voru drepnir og fjórtán særðust í loftárás Rússlandshers á borgirnar Poltava og Zaporizhia í nótt. Loftvarnaflautur ómuðu um nær gjörvalla Úkraínu. Roskinn maður gengur hjá fjölbýlishúsi skemmdu eftir loftárásir. Myndin er úr safni. EPA / KATERYNA KLOCHKO Héraðsstjórinn Ivan Fedorov segir í færslu á samskiptamiðlinum Telegram að sex fjölbýlishús, tvö einbýlishús, verslanir og iðnaðarhúsnæði hafi skemmst verulega í árásunum. Hann sagði björgunarsveitir að störfum. Volodymyr Zelensky forseti hafði í daglegu ávarpi sínu varað við stórfelldum árásum Rússa, sem hann byggði á ítarlegri eftirgrennslan leyniþjónustunnar. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Bill Cosby dæmdur til að greiða háar bætur fyrir rúmlega fimmtíu ára gamalt kynferðisbrot Dómstóll í Kaliforníu hefur gert Bill Cosby að greiða bætur til konu sem hann braut gegn kynferðislega fyrir 54 árum. Lögmaður gamanleikarans segir hann munu áfrýja málinu. Hann var látinn laus úr fangelsi fyrir fjórum árum. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Evrópusambandið og Ástralía gera fríverslunarsamning eftir áralangar viðræður Átta ára samningaviðræðum um fríverslun milli Ástralíu og Evrópusambandsins er lokið með undirritun samnings þess efnis. Nær allir tollar verða felldir niður, sem á að auka viðskipti verulega. Meiri samvinna í varnarmálum var einnig staðfest. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kólumbía Á sjöunda tug lét lífið þegar herflugvél hrapaði í Amazon Á sjöunda tug lét lífið þegar flugvél Kólumbíuhers hrapaði í flugtaki frá litlum flugvelli í Amazon. Tugir slösuðust. Rannsókn á tildrögum slyssins er þegar hafin. Kólumbíuforseti segir tímabært að endurnýja tækjabúnað hersins. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Stjórnmálamenn sem vilji mæta þörfum borgarbúa og þeir sem vilji breyta þeim Einar Þorsteinsson, Sanna Magdalena Mörtudóttir, Kristinn Jón Ólafsson og Ari Edwald ræddu borgarlínuna, þarfir borgarbúa, húsnæðismarkaðinn og fleira í Silfrinu í kvöld. 23. mars 2026 kl. 21:41ÍÞRÓTTIR Íþróttir Marika og Gunnar Íslandsmeistarar í keilu Íslandsmóti einstaklinga í keilu án forgjafar lauk í Egilshöll í kvöld. Gunnar Þór Ásgeirsson vann sinn þriðja Íslandsmeistaratitil í karlaflokki og Marika Lönnroth er tvöfaldur Íslandsmeistari í ár í kvennaflokki, því hún vann líka með forgjöf. 23. mars 2026 kl. 21:25INNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Vel mögulegt að stýrivextir verði hækkaðir aftur Seðlabankastjóri segir vel mögulegt að stýrivextir verði hækkaðir aftur en síðasta stýrivaxtaákvörðun hafi verið þung. Hann hefur áhyggjur af mögulegum áhrifum þess að verkalýðsfélög virkji forsenduákvæði í kjarasamningum í haust en kveðst bjartsýnn. 23. mars 2026 kl. 21:18ERLENDAR FRÉTTIR Eþíópía Minnst 1.300 dáið úr hungri á þremur árum Talið er að minnst 1.300 manns hafi dáið úr hungri í flóttamannabúðum í Tigray-héraði í Eþíópíu. Þangað leitaði fólkið skjóls undan átökum í héraðinu. 23. mars 2026 kl. 20:50INNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Átta fengu lykla að nýjum séríbúðum á Sólvallagötu Nýr íbúðakjarni fyrir fatlað fólk var opnaður á Sólvallagötu í Reykjavík í dag. Þangað flytja átta einstaklingar úr sambýlum í séríbúðir. 23. mars 2026 kl. 20:25INNLENDAR FRÉTTIR Landbúnaður Stjórnvöld verði að vinna með Bændasamtökunum verði aðildarviðræður samþykktar Formaður Bændasamtaka Íslands leggur áherslu á samstarf við stjórnvöld, bæði hvað varðar nýja búvörusamninga og hagsmuni landbúnaðarins gagnvart ESB-viðræðum ef til kæmi. Varaformaður Bændasamtakanna segir konur í landbúnaði þurfa að vera sýnilegri. 23. mars 2026 kl. 19:39ERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Frambjóðendur reyna að heilla óákveðna kjósendur á lokasprettinum Innflytjendamál hafa verið í brennidepli fyrir þingkosningar í Danmörku á morgun. Frambjóðendur hafa gert sitt ítrasta til að heilla óákveðna kjósendur, til dæmis með mat. 23. mars 2026 kl. 18:21ERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Hyggjast lækka skatta á bensín og dísil í Svíþjóð Í byrjun maí geta sænskir bílstjórar vænst þess að bensínlítrinn lækki um 13 krónur íslenskar og dísillinn um fimm. Þetta er á meðal aðgerða sem sænsk stjórnvöld grípa til til að bregðast við áhrifum stríðsins í Mið-Austurlöndum. 23. mars 2026 kl. 18:05INNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar á Reykjanesskaga Hátt í hundrað skjálftar á Reykjaneshrygg – Stærsti skjálftinn í hálft ár Jarðskjálftahrina hófst á Reykjaneshrygg í dag. Stærsti skjálftinn var 4,4 að stærð. Stærri skjálfti hefur ekki mælst á Reykjaneshrygg frá því í september. 23. mars 2026 kl. 17:18INNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Grunnskólabörn loks skráð í miðlægan gagnagrunn Innritun barna í 1. bekk fer í fyrsta sinn fram með miðlægum hætti og verður loks hægt að fylgjast með því að að öll börn á skólaskyldualdri séu í skóla. 23. mars 2026 kl. 16:57INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Í gæsluvarðhald eftir stunguárás í miðborginni Maður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um hnífstunguárás í miðborginni um helgina. 23. mars 2026 kl. 16:27INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Rannsaka meint kynferðisbrot gegn leikskólabarni á Krakkakoti Meintu kynferðisbroti gegn barni á leikskólanum Krakkakoti á Álftanesi hefur verið vísað til kynferðisbrotadeildar lögreglunnar. Rannsóknin er á frumstigi. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að ekki sé hægt að veita nánari upplýsingar að svo stöddu. 23. mars 2026 kl. 16:22INNLENDAR FRÉTTIR Peningar Samkeppniseftirlitið fær 30 milljónir til að efla eftirlit á dagvörumarkaði Ráðherra hefur veitt Samkeppniseftirlitinu 30 milljóna viðbótarframlag til að auka eftirlit með samkeppni á dagvörumarkaði. Framlagið er hluti af viðleitni stjórnvalda til að ná niður verðbólgu. 23. mars 2026 kl. 15:51INNLENDAR FRÉTTIR Veður Illviðri um allt land – almenningur hvattur til að fylgjast með veðri og færð Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular viðvaranir vegna norðaustan- eða austan hríðarveðurs í flestum landshlutum næsta sólarhringinn. Vegagerðin hvetur fólk til að fylgjast með upplýsingum um færð á vegum áður en lagt er í ferðalög. Varað er við hvassviðri og lélegu skyggni víða um landið. Óvissustig tekur gildi síðdegis vegna snjóflóðahættu á Austfjörðum. Holtavö