Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 7 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Fjórir drepnir í eldflaugaárás Brynjólfur Þór Guðmundsson Fjórir voru drepnir og átján særðust þegar Rússar skutu eldflaug að bænum Merefa suðvestur af Karkív í Úkraínu í morgun. Þessu greindi Oleg Synegubov héraðsstjóri frá í dag. Hann sagði að fórnarlömbin væru tveir karlmenn og tvær konur, á aldrinum 41 til 63 ára. Synegubov sagði að fjölbýlishús, fjórar verslanir og bifreiðaverkstæði hefðu skemmst í árásinni. Árásin í dag var á þorpið Merefa en í síðasta mánuði var ráðist á olíubirgðastöð í nágrenninu. EPA / SERGEY KOZLOV Fyrir 52 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Borgin semur um leigu á húsi í Ármúla fyrir skólastarfsemi Borgarráð hefur samþykkt að leigja Ármúla 28-30 fyrir leik- og grunnskólastarfsemi. Leigusamningurinn er til 20 ára er leigan 15 milljónir króna á mánuði. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Miðausturlönd Íranar hóta árásum á Bandaríkjaflota Íransstjórn sagði í dag að ráðist yrði á bandarísk herskip ef þau nálgast Hormússund. Bandaríkjaforseti sagði í gær að flotinn myndi fylgja flutningaskipum í gegnum sundið frá og með deginum í dag. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Frjálsar Með tvo demanta í höndunum Tveir fremstu sleggjukastarar Íslands hafa bætt Íslandsmetið um tæpa tíu metra á fáum árum. Elísabet Rut Rúnarsdóttir og Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir elska samkeppnina og sérfræðingur spáir báðum í úrslit á EM í sumar. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Köld norðanátt fram eftir vikunni Köld norðanátt ræður ríkjum framan af vikunni. Útlit er fyrir él á Norður- og Austurlandi í dag. Sunnan til verður bjartara. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Mótorsport Bremsulaus og endaði í vatninu — „Losa, losa, opna og út“ Gunnar Guðjónsson sem velti torfærubíl sínum á hvolf út í Hróarslæk í Sindratorfærunni á Hellu um helgina, segir öryggisbúnað bílsins hafa virkað fullkomlega. Hann var 19 sekúndur á kafi í vatni en er hvergi banginn og ætlar að keppa í næstu keppni. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Myndlist Vegglistaverkið úr Tónabíói komið í leitirnar Aðstandendur Reykjavík Bruggfélags ætla sér að endurgera vegglistaverk sem var á vegg Tónabíós um árabil. Málað var yfir verkið fyrir mörgum árum. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Vilja finna leiðir til að tryggja stöðugt orkuframboð í skugga styrjaldar Forsætisráðherrar Ástralíu og Asíu hafa sammælst um að finna leiðir til að tryggja stöðugt orkuframboð. Olíuskortur vegna lokunar Hormússunds er tekinn að bíta verulega á Asíu-Kyrrahafssvæðið. Leiðtogarnir hyggjast auka samvinnu á fleiri sviðum. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Íran Þrír karlmenn sakfelldir fyrir morð á lögreglumönnum teknir af lífi Markús Þ. Þórhallsson Hermenn með fána Írans standa frammi fyrir veggmynd af æðstaklerknum Mojtaba Khamenei. EPA / ABEDIN TAHERKENAREH Þrír karlmenn hafa verið teknir af lífi í Íran. Mizan, fréttaveita íranska dómstólakerfisins, segir mennina hafa verið dæmda til dauða fyrir morð á tveimur lögreglumönnum meðan á umfangsmiklum mótmælum stóð snemma árs. Mótmælin hófust í höfuðborginni Teheran vegna hækkandi framfærslukostnaðar en urðu að hörðum andófsaðgerðum gegn klerkastjórninni um gervallt landið. Öryggissveitir ríkisins brutu mótmælin á bak aftur af mikilli hörku og vitað er að þúsundir týndu lífi. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Viðskipti GameStop gerir 55,5 milljarða dala yfirtökutilboð í eBay Markús Þ. Þórhallsson GameStop-leikjasölukeðjan hefur gert 55,5 milljarða bandaríkjadala yfirtökutilboð í netverslunarrisann eBay. GameStop hefur gert yfirtökutilboð í eBay. EPA / JOHN G. MABANGLO Tilboðið hljóðar upp á 125 dali á hlut, sem er 20 dölum meira en þegar hlutabréfamarkaðnum í New York var lokað á föstudag. BBC fjallar um viðskiptin. Ryan Cohen, forstjóri GameStop, sagði í bréfi til eBay að ætlunin væri að minnka rekstrarkostnað um tvo milljarða dala innan árs frá því komist verður að samkomulagi um viðskiptin. Cohen yrði forstjóri sameinaðs fyrirtækis sem ætlunin er að verði verðugur keppinautur Amazon-verslunarrisans. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópa Óformlegur fundur stjórnmálaklúbbs Evrópuleiðtoga hefst í dag Leiðtogar yfir fjörutíu Evrópuríkja og stofnana, EPC-klúbburinn svokallaði, hittast í armensku höfuðborginni Jerevan í dag. Forsætisráðherra Kanada verður sérlegur gestur þar sem ræða á öryggi, stöðugleika og framtíðarhorfur Evrópu. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Jean-Luc Mélenchon boðar forsetaframboð fjórða sinni Kosningaskjálfti er þegar tekinn að gera vart við sig í aðdraganda forsetakosninga í Frakklandi næsta vor. Einn helsti leiðtogi vinstrimanna tilkynnti um framboð í gær. Leiðtogi Þjóðfylkingarinnar stefnir ótrauð að framboði þrátt fyrir bann. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Engan sakaði þegar skotflaug hæfði flutningaskip á Hormússundi Eldflaug af óþekktum uppruna hæfði olíuflutningaskip á Hormússundi í nótt. Engan sakaði um borð. Bandaríkjaher mun að óbreyttu í dag byrja að fylgja flutningaskipum gegnum sundið. Það segja Íranar brot á vopnahléssamkomulaginu. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Þýskaland Merz hefur ekki gefist upp á samvinnunni við Bandaríkin og Trump Markús Þ. Þórhallsson Friedrich Merz Þýskalandskanslari kveðst alls ekki vilja hætta samstarfi ríkja beggja vegna Atlantshafs og hann muni reyna að vinna með Donald Trump Bandaríkjaforseta. Friedrich Merz situr hér í brynvörðu Boxer-farartæki á heræfingu ií Munster 30. apríl. EPA / Hannibal Hanschke / POOL Trump hefur gagnrýnt Merz harðlega vegna afstöðu hans til stríðsins við Írani og ekki síst þeirra orða að þeir hefðu lítillækkað Bandaríkin við samningaborðið. Bandarísk stjórnvöld boðuðu um helgina brotthvarf þúsunda hermanna frá Þýskalandi á næstu mánuðum. Merz kvaðst í viðtali við ARD-sjónvarpsstöðina enn þá vilja leggja lítið upp úr deilunum við Trump og brotthvarfshótunum Bandaríkjanna. Um það bil 36 þúsund bandarískir hermenn eru í virkri þjónustu í Þýskalandi. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Rudy Giuliani liggur alvarlega veikur á sjúkrahúsi Rudy Giuliani liggur alvarlega veikur á sjúkrahúsi. Ekki er vitað hvað hrjáir þennan fyrrverandi borgarstjóra New York, saksóknara og lögmann Bandaríkjaforseta. Talsmaður segir Giuliani muni berjast við veikindin af sama krafti og aðrar áskoranir. 3. maí 2026 kl. 23:15INNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Stjórnendurnir kaupa CCP á um 15 milljarða Tölvuleikjafyrirtækið CCP Games verður selt til stjórnenda sinna. Suður-kóreska fyrirtækið Pearl Abyss, sem selur allt hlutafé í fyrirtækinu, gaf nýverið út dýran og metnaðarfullan tölvuleik við misjafnar undirtektir. 3. maí 2026 kl. 22:46ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Trump segir jákvætt samtal hafið og boðar áætlun um fylgdarsiglingu um Hormússund Bandaríkjaforseti segir uppbyggilegar viðræður standa yfir við Írana um endalok stríðsins sem skekið hefur heimsbyggðina. Jafnframt muni fylgdarsigling bandarískra herskipa um Hormússund hefjast í fyrramálið. Það væri mannúðarmál. 3. maí 2026 kl. 22:24ÍÞRÓTTIR Körfubolti Tindastóll náði í oddaleik gegn Stjörnunni Hans Steinar Bjarnason Tindastóll knúði í kvöld fram oddaleik gegn Stjörnunni í einvígi liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í körfubolta. Tindastóll vann sigur í háspennuleik í Garðabæ, 97-103. Stjarnan var yfir í hálfleik, 55-46, og þremur stigum yfir fyrir lokaleikhlutann. Stólarnir voru þremur stigum yfir þegar hálf mínúta var eftir en héldu út og jöfnuðu einvígið í 2-2. Oddaleikur liðanna verður á Sauðárkróki á miðvikudag. Sigtryggur Arnar Björnsson gerði út um leikinn fyrir Tindastól af vítalínunni þegar hálf mínúta var eftir. RÚV / Mummi Lú Sigurvegarinn í þessu einvígi mætir annað hvort Val eða Grindavík í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. Valur er 2-1 yfir í því einvígi og getur tryggt sig í úrslitin annað kvöld þegar liðin mætast á Hlíðarenda. 3. maí 2026 kl. 22:06INNLENDAR FRÉTTIR Akraneskaupstaður Björgunarskipið Kristrún á Bjargi sótti fiskibát eftir að leki kom að honum Markús Þ. Þórhallsson Kristrún á Bjargi, björgunarskip Björgunarfélags Akraness, kom með fiskibát í togi til hafnar á Akranesi á tíunda tímanum í kvöld. Einn af liðsmönnum Björgunarsveitar Akraness um borð í Kristrúnu. Aðsend / Björgunarfélag Akraness Björgunarskipið var kallað út um klukkan sex eftir að leki kom að vélarrúmi bátsins um þrettán sjómílur, eða rúma 24 kílómetra, vestur af Akranesi. Um klukkustund síðar var Kristrún komin að fiskibátnum. Lekinn var stöðvaður og bátnum komið í tog, að því er segir í tilkynningu Björgunarfélags Akraness. Þetta var fyrsta útkall Kristrúnar á Bjargi eftir að hún kom til heimhafnar og tókst að sögn mjög vel. Mikil ánægja er sögð vera með skipið. 3. maí 2026 kl. 21:13ÍÞRÓTTIR Skák Hilmir Freyr og Hannes Hlífar með fullt hús eftir þrjár umferðir Hilmir Freyr Heimisson og Hannes Hlífar Stefánsson hafa unnið allar þrjár skákir sínar á Íslandsmótinu sem stendur yfir í Garðabæ. Íslandsmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson hikstaði aðeins og gerði annað jafnteflið í röð í þriðju umferð í dag. 3. maí 2026 kl. 20:23INNLENDAR FRÉTTIR Matur Mikill hiti á fyrstu íslensku eldpiparhátíðinni Eldpiparhátíð var haldin hér á landi í fyrsta sinn í dag. Þar mátti finna matarmarkað með sterkum vörum, fræðslu um eldpipar og sjóðandi heita átkeppni. 3. maí 2026 kl. 20:01INNLENDAR FRÉTTIR Mýrdalshreppur Íbúar af um 30 þjóðernum búa í Mýrdalshreppi Meira en helmingur íbúa í Mýrdalshreppi er af erlendum uppruna. Sveitarstjórinn segir mikilvægt að koma til móts við þann fjölbreytta íbúahóp sem býr í Vík. 3. maí 2026 kl. 19:51INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðismenn og Sósíalistar bæta við sig mestu fylgi í borginni Sjálfstæðismenn og Sósíalistar bæta við sig mestu fylgi í nýrri könnun fyrir borgarstjórnarkosningarnar sem gerð var síðustu tvær vikurnar í apríl. Vinstrið og Píratar standa í stað en aðrir flokkar ta