Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Héðinn segist breyta leiknum í viðhaldi og viðgerðum

Read Full Article →

Ný þjónusta Héðins fyrir útgerðarfélög hefur „breytt leiknum“ í viðhaldi og viðgerðum skipa. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Héðni. Í henni segir að með nýjum svokölluðum skiptipotti sé Héðinn nú með tilbúið úrval af íhlutum og varahlutum á lager í sérhönnuðum kössum sem hægt sé að senda um allt land eða út í heim. Segir hugmyndafræðina á bak við pottinn einfalda „Þessi nálgun gerir Héðni kleift að veita mun hraðari, skilvirkari og áreiðanlegri þjónustu en áður hefur þekkst á Íslandi,“ segir í tilkynningu Héðins. Notaðum eða biluðum búnaði sé skipt samstundis út og hann tekinn í land til viðgerðar „Við höfum nú þegar fjárfest í tólf strokklokum, slífum, spíssum og dæludrifum fyrir skiptipottinn,“ er haft eftir Grétari Ólafssyni, deildarstjóra skipa- og véladeildar Héðins, sem kveður hugmyndafræðina á bak við slíkan pott vera einfalda. Hver klukkustund er dýr „Þegar skip koma að landi eigum við þessa mikilvægu íhluti fullkláraða og því hægt að veita þjónustu miklu hraðar en áður. Aðeins framleiðandinn Bergen Engines í Noregi er með sambærilegt fyrirkomulag, og því erum við að taka mikilvægt skref til að bjóða þjónustu á sama stigi og gerist allra best alþjóðlega,“ segir Grétar. Þá er bent á að fyrir útgerðarfélög sé hver klukkustund sem skip liggur bilað í höfn dýrkeypt. „Þetta er kerfi sem lágmarkar þann tíma og tryggir að viðhald á vélbúnaði tefji ekki veiðar eða flutninga umfram það sem nauðsynlegt er,“ segir í tilkynningu Héðins.

Share this article