Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Keyptu Héðin á ríflega 8 milljarða

Read Full Article →

Tveir einstaklingar sem tengjast véltæknifyrirtækinu Héðni voru meðal 150 fjármagnstekjuhæstu Íslendinganna í fyrra. Guðmundur Sveinn Sveinsson, einn eigenda og fyrrverandi stjórnarformaður og framkvæmdastjóri til áratuga, var með 853 milljónir í fjármagnstekjur og Ingimar Bjarnason, fyrrverandi meðeigandi Héðins, var með 307 milljónir. Í fyrra var greint frá kaupum Héðins eignarhaldsfélags ehf. á 93% hlut í Héðni hf. af RGI fjárfestingarfélagi ehf. og þremur afkomendum annars stofnanda Héðins, Markúsar Ívarssonar. Ragnar, Sveinn og Ásgeir Sverrissynir áttu 8% beinan hlut í Héðni hvor og RGI fjárfestingarfélag, sem er í eigu Ingimars Bjarnasonar, Rögnvalds G. Einarssonar og Gunnars Pálssonar sem voru lykilstarfsmenn hjá fyrirtækinu, átti 45% hlut. Héðinn eignarhaldsfélag er í jafnri eigu Guðmundar Sveins, sem átti fyrir söluna 24% beinan hlut í Héðni, Eðvarðs Inga Björgvinssonar, framkvæmdastjóra Héðins, og Halldórs Lárussonar, stjórnarformanns Héðins. Guðmundur og Halldór eru afkomendur Markúsar Ívarssonar, Guðmundur er af þriðju kynslóð og Halldór af fjórðu kynslóð. Í árslok 2024 átti RGI fjárfestingarfélag ehf. 45,35% hlut í Héðni en fram kemur í ársreikningi fyrir árið 2025 að félagið hafi selt eignarhluti á árinu fyrir 3.690 milljónir króna og að söluhagnaður hafi numið rúmlega 3 milljörðum. Samkvæmt ársreikningi Héðins eignarhaldsfélags keypti félagið eignarhluti fyrir ríflega 8,1 milljarð á árinu en í árslok var Héðinn hf. í 100% eigu félagsins. Véltæknifyrirtækið Héðinn var stofnað árið 1922 og hefur alla tíð þjónað íslenskum sjávarútvegi og iðnaði. Hagnaður sam­stæðu Héðins og dóttur­félagsins Héðins­hurða nam 282 milljónum króna árið 2025, saman­borið við milljarð króna árið áður. Tekjur sam­stæðunnar námu 7,2 milljörðum króna, sem var samdráttur upp á tæp­lega 2,8 milljarða milli ára. Fjallað var um tekjuhæstu Íslendingana í Viðskiptablaðinu . Hér má finna lista yfir þá 150 Íslendinga sem höfðu mestar fjármagnstekjur árið 2025. Listinn byggir á útreikningi samkvæmt álagningarskrá ríkisskattstjóra. Um er að ræða skattskyldar fjármagnstekjur, þ.e. vaxta- og leigutekjur, arðgreiðslur, söluhagnað og eftir atvikum höfundarréttargreiðslur.

Share this article