Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Þessi lið mætast í 32-liða úrslitum

Read Full Article →

Búið er að draga í 32-liða úrslita í bikarkeppni karla í fótbolta. Dregið var í höfuðstöðvum KSÍ í hádeginu og sáu Hörður Magnússon og Þorvaldur Örlygsson um dráttinn. Stærsta viðureignirnar eru KR - Valur og Fram - Víkingur Reykjavík en þar mætast efstu deildar lið. Einvígin: ÍBV - Þróttur Reykjavík eða Víkingur Ólafsvík Vestri - Leiknir Reykjavík eða Smári ÍA - Haukar eða KFR Fjölnir eða Víðir - HK eða BF 108 KR - Valur Þór - FH Stjarnan - Selfoss eða Augnablik Fylkir eða KV - KFA eða Sindri Léttir Stokkseyri eða Árbær - Ægir eða Reynir Sandgerði Grótta eða Úlfarnir - Álftanes eða Kári Tindastóll eða Magni - Njarðvík eða Hvíti Riddarinn Elliði eða Grindavík - Keflavík Völsungur eða Kormákur/Hvöt - Breiðablik Fram - Víkingur Reykjavík Höttur eða Neisti Djúpavogi - KA ÍR eða Afturelding Ýmir - KFS eða Þorlákur Hvers vegna er dregið nú? Nú koma inn liðinu tólf úr Bestu deild karla en að auki bikarmeistarar Vestra sem leika í næstefstu deild. Í vetur var reglubreyting til að heimila að Vestri myndi sleppa við fyrstu umferð. Önnur umferð bikarsins er ekki hafinn en þó dregur KSÍ nú til að gefa aðildarfélögum meiri tíma til að skipuleggja ferðalög. Leikið verður 4. til 6. apríl og sýnt verður úr völdum leikjum á RÚV. Þá verða einnig öll bikarmörkin sýnd í Bikarkvöldi. 2. umferð forkeppninnar, eins og hún er kölluð, klárast 1. apríl.

Share this article