Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Einn úrvalsdeildarslagur í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar

Read Full Article →

Það er orðið ljóst hvaða lið munu mætast í 16-liða úrslitum bikarkeppni karla í fótbolta. 32-liða úrslitin kláruðust að mestu á mánudag og í dag var dregið í næstu umferð. Aðeins ein viðureign verður viðureign tveggja úrvalsdeildarliða. Enn á eftir að spila einn leik úr 32-liða úrslitunum en fresta þurfti leik ríkjandi bikarmeistara Vestra og Leiknis Reykjavíkur vegna veðurs. Hann verður spilaður á Ísafirði á laugardag og sigurvegarinn úr þeim leik mætir Gróttu í 16-liða úrslitunum. Stefnt er að því að leikirnir í 16-liða úrslitunum verði spilaðir 13. og 14. maí en viðureignirnar verða eftirfarandi: ÍA-Grindavík Afturelding - Njarðvík HK - Víkingur Stjarnan - KR Þróttur - Breiðablik KA - Ægir Fylkir - FH Vestri/Leiknir R. - Grótta Aðeins ein viðureign í 16-liða úrslitunum er viðureign tveggja liða sem spila í Bestu deildinni, Stjarnan - KR. Fimm Bestu deildar lið féllu úr leik í 32-liða úrslitunum, ÍBV, Þór, Fram, Keflavík og Valur. Valdir leikir í 16-liða úrslitunum verða sýndir beint á rásum RÚV og umferðin svo gerð upp í Bikarkvöldi að síðasta leik loknum.

Share this article