Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Sigurjón: Hækkun orkuverðs ekki alslæm fyrir Ísland

Read Full Article →

Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins og formaður fjárlaganefndar, telur að „stórkarlalegar yfirlýsingar Seðlabankans hafi verið verri en sjúkdómurinn sjálfur“ síðasta misserið. Þetta kom fram í ræðu Sigurjóns í umræðu um störf þingsins um miðjan dag. Sigurjón sagði í ræðu sinni ljóst að hækkun stýrivaxta hefði ekki mikil áhrif á olíuverð. „Á hinn bóginn verður að líta á það að við flytjum að vissu leyti út orku þannig að þetta er kannski ekki alslæmt fyrir okkur - hækkað orkuverð - við gerum það í formi áls. Álfyrirtækin á Íslandi eru með fasta verðsamninga við Landsvirkun og Orkuveituna og því hafa skammtímasveiflur á olíu og gasi ekki áhrif á útsöluverð og koma því íslenska þjóðarbúinu ekki til góða. Óvíst er hins vegar hversu langvarandi áhrif hækkun verð á olíu og gasi muni vara vegna innrásar Bandaríkjamanna og Ísraela inn í Íran.

Share this article