Í bréfi til hluthafa beinir Jón Sigurðsson, forstjóri Stoða, spjótum að Seðlabankanum en hann hefur ekki farið í grafgötur með skoðun sína á nálgun bankans undanfarin ár við stjórn peningamála. Jón telur sjónarhorn bankans vera of þröngt og væntingastjórnun ekki til fyrirmyndar. „Ég hef áður lýst efasemdum um að hátt raunstýrivaxtastig sé rétta svarið við þeim áskorunum sem íslenskt hagkerfi stendur frammi fyrir og þróun síðustu missera hefur aðeins styrkt mig í þeirri trú. Stýrivextir geta verið öflugt tæki til að draga úr eftirspurn í hagkerfinu en þeir hafa engin áhrif á gjaldskrárákvarðanir hins opinbera, hækkun flugfargjalda sem drifin eru áfram af verðhækkun á þotueldsneyti eða þróun hrávöruverðs á heimsmarkaði. Jafnframt hafa hagvaxtarhorfur hér á landi farið versnandi og benda svo sannarlega ekki til þenslu sem hemja þurfi með einum hæstu raunstýrivöxtum í hinum vestræna heimi. Samhliða mikilli hækkun vaxta færðu heimilin sig í auknum mæli yfir í verðtryggð lán, sem dró úr virkni stýrivaxtanna. Vaxtamunarviðskipti halda jafnframt áfram að laða að skammtímafjármagn með tilheyrandi áhrifum á gengi krónunnar. Eðlilegt er því að spyrja hvort núverandi vaxtastig sé enn hluti af lausninni eða hvort það sé í vaxandi mæli orðið hluti af vandanum.“ Það breyti þó ekki því að hækkun launa á undanförnum árum hafi verið langt umfram það sem hagkerfið þolir og hafi því haft áhrif á verðbólguþróun undanfarinna ára. Laun á Íslandi hafi hækkað mun hraðar en í flestum vestrænum samanburðarlöndum frá árinu 2010 og séu nú með þeim hæstu á heimsvísu. Einna verst í þessari þróun sé að mestar hækkanir hafi verið á launum opinberra starfsmanna þar sem framleiðni hafi staðið í stað undanfarin 15 ár. Þessi þróun hafi óhjákvæmilega aukið verðbólguþrýsting og telur Jón því mikilvægt að aðilar vinnumarkaðarins geri sér grein fyrir því að hún geti ekki haldið áfram um ókomna tíð. „Öllum hlýtur að vera ljóst að laun geta ekki vaxið til lengri tíma hraðar en undirliggjandi geta hagkerfisins til að standa undir þeim.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .