Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Árásir halda áfram í Mið-Austurlöndum

Read Full Article →

Að minnsta kosti níu voru drepnir í árásum Ísraela á Líbanon í gær. Íranar gerðu árásir á Ísrael í gær en loftvarnarkerfi skutu þau niður yfir Jerúsalem og Jericho á Vesturbakkanum. Íranski byltingarvörðurinn gerði árásir á bandarískar herstöðvar í Kúveit, Jórdaníu og Bahrein í nótt. Þá gerðu þeir einnig árásir á Ísrael, samkvæmt ríkisfjölmiðli Írans, IRIB. Fyrrverandi yfirmaður úr íranska byltingarverðinum, Mohammad Bagher Zolghadr, hefur verið tilnefndur eftirmaður Ali Larijani yfir þjóðaröryggisráði Írans. Larijani var drepinn í loftárás Ísraela fyrr í mánuðinum. Verð á hráolíu hefur fallið um 6,3% en lækkunin er meðal annars sögð tilkomin vegna yfirlýsingar Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um friðaráætlun sem hann sendi til íranskra stjórnvalda í gær. Forsætisráðherra Pakistan, Shehbaz Sharif, sagði að stjórnvöld í Pakistan væru tilbúin til að miðla málum og halda viðræður milli Bandaríkjanna og Íran í Islamabad, höfuðborg Pakistans. Bandaríkin ráðgera að senda 3.000 hermenn til viðbótar til Mið-Austurlanda til þess að taka þátt í hernaðaraðgerðum gegn Íran. Herdeildin er sérhæfð fallhlífahersveit sem getur farið í aðgerðir með skömmum fyrirvara.

Share this article