FRÉTTAVAKT Miðausturlönd Íranar hættir árásum í bili Ísraelar og Íranar hafa gert eldflaugaárásir hvorir á aðra frá því í gærkvöld. Íranar gerðu fyrstu árásina á Ísrael frá því að samið var um vopnahlé. Ísraelar svöruðu með eldflaugaárásum á vestur- og miðhluta Írans í nótt. Íranar gerðu aftur árásir á Ísrael í morgun. Íranski herinn segist hættur árásum i bili en varar Ísraela við því að árásum á Líbanon verði mætt af enn meiri hörku. Dagný Hulda Erlendsdóttir og Brynjólfur Þór Guðmundsson 8. júní 2026 kl. 06:58, uppfært kl. 11:54 A A A Íranskar eldflaugar lentu meðal annars á landtökusvæðum Ísraela á Vesturbakkanum. EPA – ABIR SULTAN Fyrir 8 mínútum Fornar minjar í Líbanon skemmdar eftir árásir Ísraela Leit að fólki í rústum húss eftir árásir Ísraelshers á Tyre. AP / Mohammed Zaatari Ísraelsher hefur skemmt minjar á heimsminjaskrá UNESCO, menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, í árásum á borgina Tyre í suðurhluta Líbanons síðustu daga. Þetta tilkynnti menningarmálaráðuneyti landsins í morgun. Tyre er ein elsta borgin við Miðjarðarhaf og er í um 20 kílómetra fjarlægð frá landamærunum að Ísrael. Minjar á lista UNESCO á tveimur stöðum í borginni hafa verið skemmdar í árásum. Ísraelsher hefur gert harðar árásir á Tyre síðustu vikur. AFP hefur eftir embættismanni í Líbanon að verið sé að gera bráðabirgðamat á skemmdum en að sérfræðingar hafi ekki lagt í að mæta á staðinn vegna hættunnar sem dvöl þar hefur í för með sér. Fyrir 55 mínútum Segir Íran og Ísrael vinna að tafarlausu vopnahléi Donald Trump Bandaríkjaforseti segir í nýrri færslu á miðli sínum Truth Social að Íran og Ísrael leiti leiða til að binda enda á átökin þeirra á milli sem hafa staðið síðan í gær. „Lokaviðræður um „Frið“ halda áfram, nema fáfræði eða heimska þvælist fyrir.“ Trump sagði að hafnbanni gagnvart Íran yrði haldið til streitu þar til „Lokasamningur“ væri í höfn. Hann átti von á að hlutir færu að gerast hratt. Truth Social Fyrir 59 mínútum Íranar hættir árásum þar til Ísrael ræðst næst á Líbanon Íransher tilkynnti rétt í þessu að hann hefði hætt árásum á Ísrael í bili. Herinn varar þó við enn harðari árásum ef Ísraelar hefja á ný árásir á Líbanon. Yfirlýsingin kom stuttu eftir að Bandaríkjaforseti krafðist þess að Íranar og Ísraelar myndu báðir hætta árásum strax. Ekki hafa borist opinber viðbrögð frá stjórnvöldum í Ísrael við þessum vendingum. Fyrir 1 tíma Búast við margra daga átökum Sjúklingar á sjúkrahúsi í Tel Aviv voru fluttir niður í bílastæðakjallara eftir að Íranar hófu árásir á borgina. AP / Ohad Zwigenberg Ísraelsher segist búast við margra daga átökum við Íran eftir að ríkin skutu hvort á annað í gær og í nótt. Þetta kemur fram í tilkynningu sem miðillinn Haaretz birti í morgun. segir Íran hafa skotið hátt í 30 eldflaugum að landinu í árásunum í nótt. Þá hafi Hútar, bandamenn Írana í Jemen skotið tveimur flaugum að Ísrael. Hezbollah-samtökin í Líbanon hafa hins vegar ekki gert árásir á Ísrael í dag. Á vef Guardian er haft eftir írönskum fjölmiðlum að herinn þar hafi skotið niður dróna yfir höfuðborginni Tehran í dag. Nokkrar sprengingar hafi heyrst í borginni en ekkert manntjón hefur verið tilkynnt. Fyrir 2 tímum Segir Bandaríkin ábyrg fyrir árásarhneigð Ísraela Talsmaður utanríkisráðuneytis Írans, Esmali Baghaei, segir Bandaríkin ábyrg fyrir árásarhneigð Ísraela. Þetta sagði hann á blaðamannafundi í morgun, samkvæmt írönskum fjölmiðlum. Þá sagði hann að árásir Ísraels og misvísandi afstaða bandarískra embættismanna hafi varpað skugga á viðræður. Árásir Írans og Ísraels hafa stigmagnast síðan í gær. Baghaei sagði einnig að afleiðingar þessarar stigmögnunar eigi einnig eftir að finnast í Bandaríkjunum. Áður en Ísraelar hófu árásir á Íran í gærkvöld bárust fregnir af því að Bandaríkjaforseti hafi hvatt Benjamin Netanjahu, forsætisráðherra Ísraels, til að hefna ekki árása Írana. Talsmaður utanríkisráðuneytis Írans, Esmaeil Baghaei. EPA / ABEDIN TAHERKENAREH Fyrir 2 tímum Trump hvetur Írana og Ísraela til að hætta árásum Donald Trump Bandaríkjaforseti hvetur stjórnvöld í Íran og Ísrael til að hætta strax árásum. „Ísrael og Íran verða að hætta árásum strax,“ segir Trump í færslu á samfélagsmiðli sínum Truth Social. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna. AP / Alex Brandon Fyrir 3 tímum Hávær sprenging yfir Tehran Fréttamaður AFP-fréttaveitunnar í Tehran, höfuðborg Írans, sagði að hávær sprenging hefði heyrst í borginni í dag. Hann sagði að í framhaldinu hefði heyrst fjöldi minni sprenginga sem hann taldi vera frá loftvarnakerfum borgarinnar. Íranski fjölmiðillinn Mehr sagði að „bandarísk-síónískur“ dróni hefði verið eyðilagður yfir höfuðborginni en gaf ekki frekari upplýsingar. Fyrir 4 tímum Gæti haft áhrif á friðarviðræður Talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins sagði í dag að gagnkvæmar eldflaugaárásir Írans og Ísraels gætu haft áhrif á viðræður um að binda enda á stríðið í Mið-Austurlöndum. Esmaeil Baqaei sagði að það væri fullkomlega eðlilegt að árásirnar hefðu afleiðingar á viðræðurnar sem staðið hafa yfir. Hann tók þó fram að Íranar ætli að halda áfram að skiptast á sjónarmiðum við Bandaríkin með milligöngu pakistanskra yfirvalda. Fólk á fjöldafundi í Tehran eftir eldflaugaárás Ísraela í gær. EPA / ABEDIN TAHERKENAREH Fyrir 4 tímum Olíuverð hækkar vegna árása Eldflaugaárásir Írana og Ísraela í gær og í dag hafa haft sín áhrif á markaði. Olíuverð hækkaði í morgun. Brent-hráolía hækkaði um rúm fimm prósent í verði og kostar fatið 97,83 dollara. Olíuverð hækkaði líka á West Texas-markaðnum, um tæp fimm prósent, og kostar fatið þar 94,85 dollara. Fyrir 5 tímum Tjón á húsnæði en fólk óhult Ísraelar segja að lítið tjón hafi orðið af eldflaugaárásum Írana í morgun. Einhverjar skemmdir hafi orðið á húsnæði á Vesturbakkanum þar sem brak féll úr eldflaugum en fólk hafi sloppið óskaddað. Ísraelsher hefur gefið út að fólki sé óhætt að yfirgefa loftvarnabyrgi sín eftir síðustu árásina. Fréttamenn AFP í Jerúsalem voru meðal þeirra sem leituðu skjóls í byrgjum meðan á árásinni stóð. Þeir sögðust hafa heyrt sprengingar. Ísraelar skutu niður eldflaugar Írana. Ísraelar skoða brak úr íranskri eldflaug sem skotin var niður. AP / Rami Shlush Fyrir 5 tímum Réðust á efnaverksmiðju í Mahshahr Íranskir fjölmiðlar sögðu frá því í morgun að Ísraelar hefðu ráðist á efnafyrirtæki í suðvesturhluta Írans. Karun efnaverksmiðjan í Mahshahr hefur verið starfrækt í rúm 20 ár og var á sínum tíma lýst sem fyrsta þekkingarfyrirtækinu til að vinna afurðir úr olíu. Að sögn íranskra fjölmiðla voru starfsmenn látnir yfirgefa fyrirtækið. Nokkur ísraelsk flugskeyti hæfðu húsnæði þess. Fyrir 5 tímum Gera árásir til skiptis Um leið og við bjóðum ykkur góðan dag hefjum við fréttavakt þar sem við ætlum að flytja ykkur tíðindi af eldflaugaárásum sem Íranar og Ísraelar hafa gert hvorir á aðra síðan í gær. Íranar skutu eldflaugum og drónum að norðanverðu Ísrael í gær til að svara loftárásum þeirra síðarnefndu á suðurhluta Beirút í Líbanon. Þetta voru fyrstu árásir Írana á Ísrael síðan vopnahlé var gert í stríði Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran. Ísraelar svöruðu með loftárásum á Tehran, Tabriz og Isfahan og sögðust hafa hæft hernaðarlega mikilvæg skotmörk. Í morgun gerðu Íranar svo aðra eldflauga- og drónaárás á Ísrael. Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar skjóta á Ísrael Stríð í Mið-Austurlöndum Ísraelsher svarar árásum Írana Stríð í Mið-Austurlöndum Íran Ísrael Vinnureglur um fréttir og dagskrárefni RÚV er óháð hagsmunum stjórnmála, viðskipta, opinberra aðila og einkaaðila. Fréttaflutningur og dagskrárgerð okkar byggist á trúverðugleika og óhlutdrægni. Starfsfólk RÚV starfar samkvæmt vinnureglum um fréttir og dagskrárefni. Meira frá RÚV Alþingi Gefur lítið fyrir áhyggjur fyrrum sendiherra Tónlist Páll Óskar söng Eitt af blómunum með börnum í Laugarnesskóla HM í fótbolta 2026 Íslendingar erlendis geta horft á HM í RÚV appinu Kvikmyndagagnrýni Backrooms og Obsession: Hrollvekjur sem valda ekki vonbrigðum Stjórnsýsla Vill breyta lögum um nafnbreytingar afbrotamanna HM í fótbolta 2026 Náðu í HM veggspjaldið þitt Stjórnsýsla Vilja koma í veg fyrir aðra Iceland-deilu Reykjavíkurborg Vélmenni hefur störf á hjúkrunarheimili í Fossvogi Frjálsar Svakalegur tími Werro í 800 metra hlaupi Mest lesið á RÚV.is 1 Heilbrigðismál Loka 20 hjúkrunarrýmum á Selfossi 2 Miðausturlönd Íranar hættir árásum í bili 3 Varnarmál Hafa fylgst með njósnaskipinu Yuri Ivanov í rúma viku 4 Reykjavíkurborg Vélmenni hefur störf á hjúkrunarheimili í Fossvogi 5 Fótbolti Aftur hneig Eriksen niður 6 Rangárþing eystra „Nú þurfum við að treysta á veðurguðina til að halda áfram“ Fleiri erlendar fréttir Japan 100 skólar lokaðir vegna bjarnar á vappi Filippseyjar Minnst fimmtán fórust í jarðskjálfta Orkumál Vilja tryggja 90 daga olíubirgðir á landinu Evrópa Spá því að Seðlabanki Evrópu hækki vexti í fyrsta sinn í tvö og hálft ár Armenía Forsætisráðherra Armeníu lýsir yfir sigri í þingkosningum Stríð í Mið-Austurlöndum Ísraelsher svarar árásum Írana Kína Xi segir vináttu Kína og Norður-Kóreu „óhagganlega“ Filippseyjar Flóðbylgjuviðvörun gefin út eftir skjálfta af stærðinni 7,8 Aðrir eru að lesa núna 1 Miðausturlönd Íranar hættir árásum í bili 2 Stjórnsýsla Vilja koma í veg fyrir aðra Iceland-deilu 3 HM í fótbolta 2026 Náðu í HM veggspjaldið þitt 4 Reykjavíkurborg Vélmenni hefur störf á hjúkrunarheimili í Fossvogi 5 Orkumál Vilja tryggja 90 daga olíubirgðir á landinu 6 Mannlíf „Ekki í vafa um að þetta eru beinin hans Jónasar“