Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 25.3.2026 | 7:48 Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Þessar sauðkindur biðu örlaga sinna í ónefndu sláturhúsi. mbl.is/Árni Torfason Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Engin krafa er gerð um að kjöt af dýrum sem slátrað er samkvæmt trúarsiðum, t.d. halal-slátrun sem er múslimskur siður, sé sérstaklega merkt sem slíkt þegar það er boðið til sölu í verslunum hér á landi. Þetta má ráða af svari atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn Diljár Mistar Einarsdóttur alþingismanns Sjálfstæðisflokksins sem lagt var fram á Alþingi í vikunni. Diljá Mist spurði ráðherrann hvaða reglur giltu á Íslandi um merkingu matvæla af dýrum sem slátrað er samkvæmt trúarsiðum, t.d. halal-slátrun. Sagði ráðherrann í svari sínu að kveðið væri á um upplýsingagjöf til neytenda um matvæli í reglugerð, en slátrunaraðferð væri ekki meðal þeirra atriða sem skylt er að tilgreina. Þá er og nefnt í svarinu að það að veita ekki upplýsingar um slátrunaraðferð teljist ekki villandi að mati Matvælastofnunar. Framleiðendur geti þó kosið að upplýsa um slíkt en þeim sé það ekki skylt. „Að mínu mati ætti að vera skylt að veita neytendum upplýsingar um það ef dýrum er slátrað við trúarlega athöfn og mér finnst umdeilanlegt hvort það sé ekki villandi að upplýsa ekki um það, enda getur slíkt farið gegn trúarvitund neytanda,“ segir Diljá Mist í samtali við Morgunblaðið. Reglur Matvælastofnunar gilda um slátrun sauðfjár sem og annarra gripa. Hvað sauðfé varðar er það almennt deyft með rafmagni og síðan blóðgað skv. reglum Matvælastofnunar þar um. Davíð Gestsson sláturhússtjóri á Hvammstanga segir að þar sé slátrað að halal-múslimasið en í samræmi við reglur Matvælastofnunar. Það sé gert vegna útflutnings og sölu lambakjöts og annarra afurða af lambi á erlendan markað. Kjöt af lömbum sem slátrað er með sama hætti segir hann einnig selt á innanlandsmarkaði. Segir hann að múslimi sjái um að skera féð og vel geti verið að hann fari með einhverja bæn við þá athöfn. „Hann segir okkur það og við verðum að trúa því,“ segir Davíð og að eini munurinn við slátrunina sé sá að viðkomandi starfsmaður sem blóðgar lambið sé múslimatrúar. Sá blóðgar féð jafnt fyrir innlendan markað sem erlendan og aðrir komi ekki að því verki í sláturhúsinu. Davíð segir að verklagið sé hið sama, hvort heldur sem um múslima eða kristinn mann væri að ræða. Guðjón Kristjánsson, sláturhússtjóri í Sláturhúsi Vesturlands, segir að þar á bæ sé slátrað með þeim hætti að notaður er rotari í stað rafmagns og ekki sé slátrað sérstaklega fyrir múslima. Hjá Sláturfélagi Suðurlands háttar þannig til samkvæmt heimildum Morgunblaðsins að múslimi annast slátrun sauðfjárins. Athöfnin er vottuð sem halal-slátrun, en ekki fylgir sögunni hvort bænakvak sé viðhaft við þá athöfn. Hærra verð fæst fyrir þær afurðir á erlendum markaði. Í reglum Matvælastofnunar um aflífun búfjár í sláturhúsum segir m.a. að banaklefi, nauðsynleg tæki og búnaður til deyfingar og aflífunar skuli vera þannig hannaður og gerður að deyfing og aflífun verði skjót og örugg. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum „Þau gáfu okkur gjöf“ Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Þrír handteknir vegna innbrots Nágrannar Harrys og Meghan sagðir forðast hjónin Umræðan Viðreisn og viðhaldið (í ESB) Tímabundin lækkun virðisaukaskatts á matvæli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Lifði slysið af: Fannst hundrað metrum frá flakinu Ein með öllu og kók komin í 1.330 krónur Mest lesið Í gær Í vikunni Hamas-liðar á Höfðatorgi Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Frysta þarf öll laun í landinu „Erum að sjá jarðhitakerfið endurnýja sig“ Telja bandaríska ríkið skulda sér Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Óvíst um afdrif umsóknar Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Hækkun orkuverðs ekki alslæm fyrir Íslendinga Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Gul viðvörun fyrir land allt Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Nýjast á mbl.is » Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum „Þau gáfu okkur gjöf“ Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Þrír handteknir vegna innbrots Nágrannar Harrys og Meghan sagðir forðast hjónin Umræðan Viðreisn og viðhaldið (í ESB) Tímabundin lækkun virðisaukaskatts á matvæli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert ESB-ummæli Þorgerðar í brennidepli á Alþingi Bandaríkin afhjúpa áætlanir um tunglbækistöð Segir „af og frá“ að viðræður séu hafnar Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Mest lesið Í gær Í vikunni Hamas-liðar á Höfðatorgi Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Frysta þarf öll laun í landinu „Erum að sjá jarðhitakerfið endurnýja sig“ Telja bandaríska ríkið skulda sér Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Óvíst um afdrif umsóknar Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Hækkun orkuverðs ekki alslæm fyrir Íslendinga Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Gul viðvörun fyrir land allt Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar

Share this article