Innlent | Morgunblaðið | 5.8.2026 | 8:00 Aðsend grein: Dýraheilbrigði sem undirstaða matvælahagkerfisins Erna Bjarnadóttir hagfræðingur. mbl.is/María Matthíasdóttir Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Getur breyting á lögum um varnir gegn dýrasjúkdómum við aðild að ESB haft áhrif á rekstraráhættu í matvælavirðiskeðjunni? Fremur lítið hefur verið fjallað um rýniskýrslu Evrópusambandsins um 12. samningskafla í síðustu viðræðulotu um matvælaöryggi, dýraheilbrigði og plöntuheilbrigði. Í skýrslunni kemur fram að Ísland taldi nauðsynlegt að viðhalda ákveðnum takmörkunum á innflutningi til að verja einstaka dýraheilbrigðisstöðu landsins, en framkvæmdastjórn ESB taldi að þær samrýmdust ekki reglum innri markaðarins og að leysa yrði úr þeim í aðildarviðræðunum. Þetta var því eitt af þeim efnislegu álitaefnum sem biðu úrlausnar þegar viðræðurnar stöðvuðust árið 2012. Þegar fjallað er um fyrirkomulag varna gegn dýrasjúkdómum beinast sjónir manna einatt fyrst og fremst að smitvörnum, dýravelferð, matvælaöryggi eða lagalegum álitaefnum. Það er skiljanlegt. Hins vegar vaknar önnur spurning sem lítið virðist hafa verið rædd. Er mögulegt að dýraheilbrigðiskerfið gegni jafnframt mikilvægu hagfræðilegu hlutverki sem hluti af innviðum íslenska matvælahagkerfisins? Innviðir hafa það sameiginlega hlutverk að draga úr óvissu og skapa fyrirtækjum rekstrarskilyrði sem þau geta byggt ákvarðanir sínar á. Spurningin er hvort dýraheilbrigðiskerfið gegni sambærilegu hlutverki fyrir íslenskt matvælahagkerfi. Varnir gegn dýrasjúkdómum og rekstraráhætta Dýraheilbrigðiskerfi er annars eðlis en hefðbundnir innviðir. Engu að síður er ástæða til að velta því fyrir sér hvort efnahagslegt hlutverk þess sé í grundvallaratriðum af svipuðum toga. Með því að draga úr líkum á alvarlegum smitsjúkdómum kann það að skapa stöðugra rekstrarumhverfi fyrir fyrirtæki í matvælaframleiðslu en ella. Yfirleitt er rekstraráhætta tengd sveiflum í verði, breytingum á eftirspurn, kostnaðarhækkunum eða vaxtastigi. Slík áhætta hefur áhrif á afkomu fyrirtækja en leiðir ekki endilega til þess að reksturinn stöðvist. Áhætta sem tengist alvarlegum dýrasjúkdómum er annars eðlis. Hér er ekki aðeins um að ræða áhættu sem getur dregið úr hagnaði heldur áhættu sem getur grafið undan greiðslugetu fyrirtækja og ógnað áframhaldandi starfsemi þeirra. Þar liggur mikilvægur hagfræðilegur munur. Rekstrarsveiflur hafa yfirleitt áhrif á afkomu fyrirtækja. Alvarlegir smitsjúkdómar geta hins vegar leitt til þess að tekjustraumur stöðvast á sama tíma og fjárhagslegar skuldbindingar haldast óbreyttar. Fyrirtæki, sem er rekstrarhæft við eðlilegar aðstæður, getur þannig orðið ógjaldfært vegna utanaðkomandi áfalls. Áhrif smitsjúkdóma á rekstur eru ekki aðeins fræðileg tilgáta. Þegar hestapestin (smitandi hósti) kom upp hér á landi árið 2010 stöðvaðist stór hluti hestatengdrar starfsemi um tíma. Tekjur margra fyrirtækja drógust verulega saman þótt skuldbindingar þeirra héldust óbreyttar. Dæmið sýnir að smitsjúkdómar geta haft víðtæk efnahagsleg áhrif, langt út fyrir þann bústofn sem verður fyrir smitinu. Í matvælaframleiðslu eru fyrirtæki tengd saman í virðiskeðju. Frumframleiðslan er undirstaða afurðastöðva, vinnslu, flutninga og margvíslegrar þjónustu. Ef stór hluti frumframleiðslunnar verður fyrir alvarlegu rekstraráfalli á sama tíma geta áhrifin borist um alla virðiskeðjuna. Afurðastöðvar geta misst hráefni, nýting vinnslunnar minnkað og tekjur dregist saman. Birgjar og þjónustufyrirtæki missa viðskipti og geta einnig þurft að standa við óbreyttar fjárhagslegar skuldbindingar þrátt fyrir minnkandi tekjur. Þegar þannig háttar til verður dýraheilbrigðiskerfið ekki aðeins tæki til að verjast smitsjúkdómum. Það getur einnig haft áhrif á rekstraráhættu og stöðugleika allrar matvælavirðiskeðjunnar. Þetta kallar á nýjar hagfræðilegar spurningar Hefur efnahagslegt virði dýraheilbrigðiskerfisins verið metið út frá þeirri áhættu sem það kann að draga úr? Hefur verið greint hvaða áhrif breytingar á kerfinu gætu haft á rekstraráhættu fyrirtækja í matvælaframleiðslu? Hefur verið lagt mat á hugsanleg keðjuáhrif ef alvarlegur dýrasjúkdómur hefði áhrif á fleiri framleiðendur samtímis? Ef slíkar greiningar hafa ekki farið fram, á hvaða forsendum er þá hægt að leggja heildstætt mat á efnahagsleg áhrif breytinga á kerfinu? Ef dýraheilbrigðiskerfið gegnir í reynd hlutverki innviða í íslensku matvælahagkerfi verður að meta það sem slíkt. Án slíkrar greiningar er hætta á að umræðan taki fyrst og fremst mið af beinum áhrifum einstakra reglna en síður því efnahagslega hlutverki sem kerfið kann að gegna fyrir rekstraráhættu, greiðslugetu fyrirtækja og seiglu virðiskeðjunnar í heild. Ef dýraheilbrigðiskerfið gegnir í reynd hlutverki innviða í íslensku matvælahagkerfi verður að meta það sem slíkt áður en teknar eru ákvarðanir um breytingar sem geta haft áhrif á virkni þess. Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Ungur Dani í Hafnarfjörðinn Aðsend grein: Saga tveggja ríkja Aðsend grein: Dýraheilbrigði sem undirstaða matvælahagkerfisins Hrakfarir á heimleið þegar fellihýsið losnaði Velgengni Wegovy hækkar afkomuspá lyfjarisans Umræðan Fólkið sem er okkur ósammála Saga tveggja ríkja Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Eins og að ég væri í návist almættisins Baðlón í nýjum kjarna Keflavíkur Drengjunum sleppt: Byssurnar sagðar leikföng Grunur um skotvopn á Akureyri: Hvað gerðist? Mest lesið Í gær Í vikunni „Ég vona að nágrannarnir verði ekki mjög fúlir“ Faldi sig í vélarrými bíls og féll á götuna Ný vatnslögn til Eyja Ógnuðu fólki: Annar með hamar og hinn öxi Umferðartakmarkanir á höfuðborgarsvæðinu 12. ágúst Verndar ekki kynlífsverkafólk Aðstæður hvergi betri en á Rauðasandi Skipstjóri Bandero: „Við komum í friði“ Náðu myndskeiði af holu í höggi „Auðvitað er þetta atkvæðagreiðsla um aðild“ Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Dularfullur ljósblettur í Barkárdal Andlát: Heimir Hannesson Hitinn gæti farið upp í 20 stig í dag Tölvupóstar streyma til forsætisráðherra Umferðartakmarkanir á höfuðborgarsvæðinu 12. ágúst Neytendastofa sektar Parka og EasyPark „Ég vona að nágrannarnir verði ekki mjög fúlir“ Maðurinn er kominn í leitirnar Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Bandero siglir utan í skip Hvals Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Saklaus læknatími endaði með innlögn Nýjast á mbl.is » Ungur Dani í Hafnarfjörðinn Aðsend grein: Saga tveggja ríkja Aðsend grein: Dýraheilbrigði sem undirstaða matvælahagkerfisins Hrakfarir á heimleið þegar fellihýsið losnaði Velgengni Wegovy hækkar afkomuspá lyfjarisans Umræðan Fólkið sem er okkur ósammála Saga tveggja ríkja Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skipstjóri Bandero: „Við komum í friði“ Faldi sig í vélarrými bíls og féll á götuna Handteknir með skotvopn á Akureyri Ráðuneytið taki þátt í ESB-áróðri Mest lesið Í gær Í vikunni „Ég vona að nágrannarnir verði ekki mjög fúlir“ Faldi sig í vélarrými bíls og féll á götuna Ný vatnslögn til Eyja Ógnuðu fólki: Annar með hamar og hinn öxi Umferðartakmarkanir á höfuðborgarsvæðinu 12. ágúst Verndar ekki kynlífsverkafólk Aðstæður hvergi betri en á Rauðasandi Skipstjóri Bandero: „Við komum í friði“ Náðu myndskeiði af holu í höggi „Auðvitað er þetta atkvæðagreiðsla um aðild“ Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Dularfullur ljósblettur í Barkárdal Andlát: Heimir Hannesson Hitinn gæti farið upp í 20 stig í dag Tölvupóstar streyma til forsætisráðherra Umferðartakmarkanir á höfuðborgarsvæðinu 12. ágúst Neytendastofa sektar Parka og EasyPark „Ég vona að nágrannarnir verði ekki mjög fúlir“ Maðurinn er kominn í leitirnar Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Bandero siglir utan í skip Hvals Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Saklaus læknatími endaði með innlögn