200 mílur | Morgunblaðið | 25.3.2026 | 9:07 Veiddu í hafísnum á Halamiðum Fjóla K. Guðmundsdóttir [email protected] Setja bókamerki Hafís hefur verið á miðunum norðvestan við landið undanfarna daga en á sunnudag var hann kominn 17 sjómílur frá landi. Þyrla Landhelgisgæslunnar fór í hafíseftirlit í gær og þá hafði ísinn fjarlægst landið aftur. „Við erum búnir að vera í ís allan túrinn, mest síðustu þrjá daga,“ segir Hermann Einarsson, skipstjóri Málmeyjar, togara FISK Seafood sem gerður er út frá Sauðárkróki. Þegar blaðamaður sló á þráðinn í brúna á skipinu á mánudaginn var Málmey að veiða þorsk á Halanum norðvestan við landið. Á meðfylgjandi myndbandi sem skipverjinn Arnar Björgvin Arnarson tók má sjá hvernig ísinn var alltumlykjandi. Samkvæmt áætlun átti skipið að koma til löndunar á Sauðárkróki á miðvikudagsmorgun en vegna yfirvofandi óveðurs stefndi allt í að komið yrði heim á undan áætlun. „Það er kominn norðaustan hérna, upp í 20 metra vindur og byrjaður að úfna sjórinn,“ segir Hermann og svo fór að Málmey var komin til hafnar á Sauðárkróki eftir hádegið í gær. Byrja og enda í brælu Hermann segir veðrið í túrnum hafa verið bærilegt þótt það hafi markast af illviðri bæði á útleið og landleið. „Það er búið að vera fínt hérna við ísinn en við byrjuðum túrinn í brælu,“ segir hann. Slóst Málmey þá í hóp togara sem biðu af sér lægðina í Reykjafjarðarálnum rétt fyrir helgi. Við veiðar á Halamiðum sigldi Málmey víða í gegnum talsvert þéttan ís en minna var af honum um það leyti sem blaðamaður hringdi í brúna. Ljósmynd/Kristján Snær Þórsson „Við fórum út seinnipart fimmtudags og það var lélegt þarna í Reykjafjarðarálnum í brælunni,“ segir Hermann. „Svo fórum við vestur og þar er búið að vera ágætis kropp og svo er bara búið að vera mjög góð veiði núna í nótt og á morgun.“ Spurður hvort ísinn hafi verið skipverjum mikið til trafala gerir Hermann frekar lítið úr því. „Hann er svo sem alltaf fyrir manni,“ segir skipstjórinn af mestu rósemi. „En það verður bara að vinna í kringum hann og með honum.“ Hann segir árstímann ekki sérstaklega óvenjulegan fyrir hafís, það sé allur gangur á því hvenær hann birtist. „Það fer náttúrulega bara eftir því hvernig vindar blása,“ útskýrir Hermann. „Ef það eru suðvestanáttir lengi kemur ísinn nær og þegar hann er að norðaustan þá fer hann frá.“ Ísinn færst fjær landi Landhelgisgæslan hefur haft auga með ísnum og sent út siglingaviðvaranir til sjófarenda þegar hann nálgast. Í gær fór flugvél Gæslunnar, TF-SIF, í eftirlitsflug og þá var ísinn kominn talsvert langt frá landi. „Þegar flogið var um 20-30 sjómílur norðnorðvestur af Straumnesi var engan hafís að sjá á þeim slóðum,“ segir í skriflegu svari Landhelgisgæslunnar við fyrirspurn Morgunblaðsins. „Hafísspöng sást á ratsjá flugvélarinnar næst landi um 60 sjómílur vestnorðvestur af Kópanesi.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Kveður Gæsluna eftir þrjá áratugi Helgafellið enn í viðgerð: Bilun í aðalvél „Kommissarinn“ íslenskur Ófrávíkjanleg krafa um yfirráð Íslensk nýsköpun á síleskum hafsvæðum Þórunn Sveinsdóttir kvödd í Eyjum Hafís 29 sjómílur frá Straumnesi Bræla á miðunum og flotinn fór í var Síldarvinnslan greiðir 3 milljarða í arð Hætta við stækkun vegna frumvarps „Kommissarinn“ íslenskur Kveður Gæsluna eftir þrjá áratugi Ófrávíkjanleg krafa um yfirráð Helgafellið enn í viðgerð: Bilun í aðalvél Íslensk nýsköpun á síleskum hafsvæðum Þórunn Sveinsdóttir kvödd í Eyjum Hafís 29 sjómílur frá Straumnesi Bræla á miðunum og flotinn fór í var Leggja til könnunarveiðar á humri Síldarvinnslan greiðir 3 milljarða í arð „Kommissarinn“ íslenskur Hætta við stækkun vegna frumvarps Kaflaskil hjá Síldarvinnslunni Kveður Gæsluna eftir þrjá áratugi Síldarvinnslan greiðir 3 milljarða í arð Verður högg fyrir mörg sjávarpláss Þórunn Sveinsdóttir kvödd í Eyjum Nýstofnað fyrirtæki á sviði sjávarútvegs Leggja til könnunarveiðar á humri Enn eitt högg fyrir litlar byggðir Fleira áhugavert Lifði slysið af: Fannst hundrað metrum frá flakinu ESB-ummæli Þorgerðar í brennidepli á Alþingi Fullkláruðum óseldum íbúðum fjölgað gríðarlega Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 24.3.26 739,91 kr/kg Þorskur, slægður 24.3.26 896,61 kr/kg Ýsa, óslægð 24.3.26 618,85 kr/kg Ýsa, slægð 24.3.26 613,35 kr/kg Ufsi, óslægður 24.3.26 379,35 kr/kg Ufsi, slægður 24.3.26 451,06 kr/kg Undirmálsufsi, óslægður 13.2.26 214,00 kr/kg Djúpkarfi 16.3.26 245,00 kr/kg Gullkarfi 24.3.26 410,41 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 24.3.26 Lubba VE 27 Handfæri Ufsi 1.537 kg Þorskur 89 kg Samtals 1.626 kg 24.3.26 Þorsteinn VE 18 Handfæri Ufsi 3.346 kg Þorskur 83 kg Samtals 3.429 kg 24.3.26 Gréta VE 95 Handfæri Þorskur 563 kg Ufsi 142 kg Samtals 705 kg 24.3.26 Akurey AK 10 Botnvarpa Ýsa 37.710 kg Karfi 33.005 kg Þorskur 20.516 kg Ufsi 2.963 kg Steinbítur 1.524 kg Langa 390 kg Grásleppa 200 kg Þykkvalúra 194 kg Skarkoli 129 kg Keila 14 kg Skötuselur 4 kg Samtals 96.649 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Kveður Gæsluna eftir þrjá áratugi Helgafellið enn í viðgerð: Bilun í aðalvél „Kommissarinn“ íslenskur Ófrávíkjanleg krafa um yfirráð Íslensk nýsköpun á síleskum hafsvæðum Þórunn Sveinsdóttir kvödd í Eyjum Hafís 29 sjómílur frá Straumnesi Bræla á miðunum og flotinn fór í var Síldarvinnslan greiðir 3 milljarða í arð Hætta við stækkun vegna frumvarps „Kommissarinn“ íslenskur Kveður Gæsluna eftir þrjá áratugi Ófrávíkjanleg krafa um yfirráð Helgafellið enn í viðgerð: Bilun í aðalvél Íslensk nýsköpun á síleskum hafsvæðum Þórunn Sveinsdóttir kvödd í Eyjum Hafís 29 sjómílur frá Straumnesi Bræla á miðunum og flotinn fór í var Leggja til könnunarveiðar á humri Síldarvinnslan greiðir 3 milljarða í arð „Kommissarinn“ íslenskur Hætta við stækkun vegna frumvarps Kaflaskil hjá Síldarvinnslunni Kveður Gæsluna eftir þrjá áratugi Síldarvinnslan greiðir 3 milljarða í arð Verður högg fyrir mörg sjávarpláss Þórunn Sveinsdóttir kvödd í Eyjum Nýstofnað fyrirtæki á sviði sjávarútvegs Leggja til könnunarveiðar á humri Enn eitt högg fyrir litlar byggðir Fleira áhugavert Óvíst um afdrif umsóknar Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Lifði slysið af: Fannst hundrað metrum frá flakinu Starfsfólk sé ekki eitt með barni Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 24.3.26 739,91 kr/kg Þorskur, slægður 24.3.26 896,61 kr/kg Ýsa, óslægð 24.3.26 618,85 kr/kg Ýsa, slægð 24.3.26 613,35 kr/kg Ufsi, óslægður 24.3.26 379,35 kr/kg Ufsi, slægður 24.3.26 451,06 kr/kg Undirmálsufsi, óslægður 13.2.26 214,00 kr/kg Djúpkarfi 16.3.26 245,00 kr/kg Gullkarfi 24.3.26 410,41 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 24.3.26 Lubba VE 27 Handfæri Ufsi 1.537 kg Þorskur 89 kg Samtals 1.626 kg 24.3.26 Þorsteinn VE 18 Handfæri Ufsi 3.346 kg Þorskur 83 kg Samtals 3.429 kg 24.3.26 Gréta VE 95 Handfæri Þorskur 563 kg Ufsi 142 kg Samtals 705 kg 24.3.26 Akurey AK 10 Botnvarpa Ýsa 37.710 kg Karfi 33.005 kg Þorskur 20.516 kg Ufsi 2.963 kg Steinbítur 1.524 kg Langa 390 kg Grásleppa 200 kg Þykkvalúra 194 kg Skarkoli 129 kg Keila 14 kg Skötuselur 4 kg Samtals 96.649 kg Skoða allar landanir »