Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Allir togarar Fisk Seafood nú í stoppi nema Arnar

Read Full Article →

Málmey SK 1 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með rúm 90 tonn af afla, þar af voru um 60 tonn af þorski og um 21 tonn af ýsu en minna í öðrum tegundum. Þetta kemur fram á vef Fisk Seafood . Þar segir að Málmey hafi meðal annars verið á veiðum á Þverálshorni og Strandagrunni. Arnar HU sem rær eftir sínu plani allt árið Arnar HU 1. Mynd/fisk.is „Þetta var síðasta veiðiferð Málmeyjar fyrir sumarstopp og þá eru allir togarar FISK Seafood stopp yfir sumarið, nema Arnar HU sem rær áfram eftir sínu plani allt árið. Vinnslurnar hjá FISK fara einnig í sumarstopp þegar vinnslu síðasta afla hefur verið lokið,“ segir á fisk.is. Málmey líka með síðustu löndun þar á undan Síðasta löndun hjá Fisk Seafood fyrir þessa löndun í dag var einmitt líka úr Málmey. Það var 16. júní þegar skipið kom til löndunar á Sauðárkróki með um 145 tonna afla. Þar af voru um 67 tonn af ufsa, um 60 tonn af þorski og um 9 tonn af karf að því er segir á vefsíðu fyrirtækisins . Málmey hafði þá verið á veiðum á Kantinum vestan við Hala, á Þveráli og á Þverálshorni. Lentu strax í góðri veiði og allt gekk upp „Þessi túr gekk bara mjög vel, við lentum strax í góðri veiði og allt gekk upp,” sagði Þórarinn Hlöðversson, skipstjóri Málmeyjar, í spjalli á fisk.is. „Það var blíðuveður líka, spegilsléttur sjór, fín veiði á Þverálnum og þorskveiði í Þverálshorninu. Það var bara veiði sama hvar maður beitti sér,“ sagði Þórarinn skipstjóri einnig.

Share this article