Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sýna sjónarhorn dómaranna í stóru leikjum Íslands í janúar

Read Full Article →

Evrópska handknattleikssambandið, EHF, er duglegt við að gefa aðdáendum áhugaverða innsýn í stóra leiki. Meðal nýjustu myndskeiða á YouTube-síðu sambandsins eru brot úr undanúrslita- og bronsleik Íslands á EM í janúar, sem sýna sjónarhorn dómaranna í leikjunum. Ísland mætti Danmörku í undanúrslitaleiknum þar sem Lars Jorum og Havard Kleven frá Noregi dæmdu leikinn. Eins og frægt er orðið höfðu Danir þar betur og enduðu á að ná sér í Evrópumeistaratitilinn. Í myndskeiðinu úr leiknum má sjá hugsun dómaranna á bak við ýmsa dóma í leiknum og samskipti þeirra við leikmenn. Evrópska handknattleikssambandið hefur birt myndskeið á miðlum sínum sem sýnir sjónarhorn dómaranna í undanúrslita- og bronsleik Íslands á EM í janúar. Myndböndin gefa áhugaverða innsýn inn í þessa stóru leiki Íslands. Annar dómarinn hvessir sig til að mynda við Ómar Inga Magnússon og þá má sjá þegar þeir útskýra fyrir Ými Erni Gíslasyni að það sé sanngjarnt að dæma ekki boltann af Dönum þegar þeir runnu á auglýsingaskiltum í leiknum. Í bronsleiknum við Króata voru spænskir dómarar á flautunni, þeir Andrea Marín og Ignacio Garcia. Ísland þurfti að sætta sig við tap í þeim leik og 4. sætið varð niðurstaðan á mótinu. Í myndskeiðinu úr þeim leik má meðal annars sjá dómarana viðurkenna mistök sín við Dag Sigurðsson og mótmæli íslenskra leikmanna við vítakastdómi. Evrópska handknattleikssambandið hefur birt myndskeið á miðlum sínum sem sýnir sjónarhorn dómaranna í undanúrslita- og bronsleik Íslands á EM í janúar. Myndböndin gefa áhugaverða innsýn inn í þessa stóru leiki Íslands.

Share this article