Hlutabréf í Amaroq Minerals lækkuðu um tæp 7% í Kauphöll Íslands í dag eftir að félagið birti ársuppgjör sitt fyrir opnun markaða í morgun. Bréf félagsins stóðu í 154 krónum við lokun eftir um 18 milljóna króna veltu. Samkvæmt uppgjörinu námu tekjur Amarqo 27 milljónum kanadadala í tekjur á árinu 2025, fyrsta árinu með verulegar tekjur af gullsölu frá Nalunaq-námunni á Suður-Grænlandi. Félagið tapaði þó 18,6 milljónum dala en stjórnendur sögðu árið hafa verið mjög árangursríkt, framleiðslumarkmið hefðu náðst og stefnt væri að 25 til 35 þúsund únsum af gulli á þessu ári. Jafnframt var greint frá fyrirhugaðri stækkun lánalínu úr 35 í 70 milljónir Bandaríkjadala. Hlutabréfaverð Hampiðjunnar lækkaði um tæp 3% í 86,5 krónur og velta nam um 23 milljónum króna. Bréf Icelandair lækkuðu um tæp 2% í 0,72 krónur í um 19 milljóna króna viðskiptum. Þá lækkaði hlutabréfaverð Skeljar um rúm 1,2% í 16 krónur en velta var um 2 milljónir króna. Hlutabréfaverð Arion banka lækkaði um rúm 1,1% í 177,5 krónur og velta í bréfunum nam um 242 milljónum króna. Bréf Haga lækkuðu um tæpt 1% í 114 krónur, í um 27 milljóna króna veltu, og hlutabréfaverð Oculis lækkaði um 0,8% í 3.095 krónur í um 7 milljóna króna viðskiptum. Hlutabréfaverð Kaldvíkur lækkaði einnig um tæpt 0,8% í 25,6 krónur, en velta nam um 2 milljónum króna. Mest velta var í Íslandsbanka, þar sem viðskipti námu um 444 milljónum króna. Hlutabréfaverð bankans lækkaði um tæpt 0,8% í 133,5 krónur. Úrvalsvísitalan OMXI15 lækkaði um 0,44% og var heildarvelta 1,6 milljarðar.