Alls eru 22 sjóðfélagar í framboði um tvö laus sæti í aðalstjórn lífeyrissjóðsins Almenna-Lífsverks. Að minnsta kosti annað þeirra skal skipað konu. Almenni og Lífsverk sameinuðust formlega um síðustu áramót og voru stjórnarmenn sameinaðs lífeyrissjóðs í kjölfarið ellefu talsins. Starfstími fjögurra stjórnarmanna – Agna Ásgeirssonar, Alberts Þórs Jónssonar, Sigríðar Magnúsdóttur og Margétar Arnardóttur - er að ljúka og verða tveir stjórnarmenn kosnir í staðinn með rafrænum kosningum í aðdraganda ársfundar. Agni, Albert Þór og Sigríður gefa öll kost á sér til til endurkjörs. Stjórnarmönnum sjóðsins fækkar því í níu og að ári liðnu mun þeim aftur fækka í sjö sem er endanlegur fjöldi. Almenni-Lífsverk er fimmti stærsti lífeyrissjóður landsins með heildareignir um 726 milljarða króna í árslok 2025. Meðal frambjóðenda eru Garðar Hannes Friðjónsson, fyrrverandi forstjóri Eikar, Kristján Þórarinn Davíðsson, stjórnarformaður Brims, Gísli Rafn Ólafsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, Þórólfur Árnason, fyrrverandi borgarstjóri, og Sigríður Magnúsdóttir, arkitekt og fyrrverandi stjórnarformaður Almenna. Frambjóðendur til stjórnar Almenna-Lífsverks eru eftirfarandi: Agni Ásgeirsson Albert Þór Jónsson Anna Beta Gísladóttir Björn Stefán Eysteinsson Garðar Hannes Friðjónsson Gísli Rafn Ólafsson Gunnar Örn Harðarson Gunnar Sigurðsson Gunnar Tryggvason Haukur Baldursson Jóhann Þór Jóhannsson Katrín Káradóttir Kristján Þórarinn Davíðsson Kristjana Birgisdóttir Lára Jónasdóttir Olga Rún Kristjánsdóttir Óskar Marinó Sigurðsson Sigríður Elín Guðlaugsdóttir Sigríður Magnúsdóttir Svava María Atladóttir Sverrir Sigurjónsson Þórólfur Árnason