Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Liv í stjórn Styrkáss fyrir Sunnu Björg

Read Full Article →

Liv Bergþórsdóttir, forstjóri BioEffect, var kjörin í stjórn Styrkáss á aðalfundi félagsins sem fór fram í gær. Í stjórn Styrkáss sitja nú Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, Berglind Halldórsdóttir, Hermann Már Þórisson, Lárus Árnason og Liv Bergþórsdóttir. Varastjórn skipa Ásgeir Þorláksson og Arnar D. Arngrímsson. Liv er meðstofnandi Nova og starfaði sem forstjóri fjarskiptafélagsins frá stofnun árið 2006 til ársins 2018. Hún er jafnframt fyrrverandi stjórnarformaður Wow og Iceland Seafood International. Sjá einnig Sunna Björg tekur við af Rannveigu hjá Rio Tinto Liv kemur inn í stjórnina fyrir Sunnu Björg Helgadóttur, sem nýverið tók við starfi forstjóra Rio Tinto á Íslandi. Í tilkynningu er Sunnu Björg þakkað fyrir framlag hennar til starfsemi Styrkás á starfstíma sínum í stjórn. Styrkás hf. er rekstrarfélag stofnað árið 2022. Dótturfélög Styrkás eru Skeljungur, Klettur, Stólpi og Hreinsitækni, sem saman mynda samstæðu félagsins. Innan samstæðunnar hefur verið stofnað fasteignafélag, Styrkás Fasteignir, sem heldur utan um fasteignir og lóðir félagsins. Sjá einnig Styrkás skráð í Kaup­höllina á öðrum fjórðungi 2027 Stjórn Styrkás hefur ákveðið að hefja undirbúning að skráningu félagsins í Nasdaq OMX kauphöllina á Íslandi, með það að markmiði að félagið verði skráð á öðrum ársfjórðungi 2027. Lesendur geta nálgast nýja ársskýrslu Styrkáss hér .

Share this article