Menning | Tónlist | mbl | 29.3.2026 | 13:49 Nýstofnuð sigursveit: Fönkað progg eða sýrurokk Gleðin var fölskvalaus þegar úrslitin lágu fyrir. Ljósmyndari/Árni Torfa Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Hljómsveitin Falinn gjóður úr Reykjavík, sem sigraði Músíktilraunir árið 2026, sækir innblástur meðal annars til Þursaflokksins og Frank Zappa. Hún blandar saman sterkum laglínum og skondnum textum til að skapa sérkennilegan hljóðheim. Aron Elí Arnarsson söngvari og bassaleikari Falins gjóðs var varla kominn niður á jörðina þegar blaðamaður hafði samband. Hann segir gærdaginn og kvöldið hafa verið ótrúlega skemmtilegt og eiginlega ótrúlegt í alla staði. Aron Elí lýsir tónlist hljómsveitarinnar sem einhvers konar fönkuðu progg rokki eða sækadelísku rokki en sveitin varð til fyrir aðeins nokkrum vikum gagngert til að taka þátt í Músíktilraunum. Á Facebook-síðu Músíktilrauna má kynna sér tónlistarsköpun Falins gjóðs en sveitin var fyrst á svið á úrslitakvöldinu í gær (u.þ.b. 00:20:07). Þar má sömuleiðis kynna sér aðrar sveitir en hver sveit lék þrjú lög í gær. Hljómsveitin er úr Reykjavík. Ljósmynd/Árni Torfa Frétt af mbl.is Falinn gjóður sigraði í Músíktilraunum Enginn trommari Með Aroni í bandinu eru þeir Baldur Þórarinsson sem spilar á hljómborð og syngur og Þorri Hrafnsson sem spilar á rafmagnsgítar og fleira. Athygli vekur að ekki er trommari í hljómsveitinni en Baldur stýrir trommuheila. Strákarnir eru 15 og 16 ára, allir fæddir árið 2010. Þorri og Baldur þekktust áður en hljómsveitin varð til en þegar Aron flutti sig yfir í Hagaskóla úr Hafnarfirði kynntist hann Baldri og Þorra þekkti hann úr Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. „Ég segi bara: „Strákar, eigum við ekki bara að skella okkur í Músíktilraunir?“ svo ég svona sameinaði þá á ný og þetta hefur bara heppnast ótrúlega vel og ég er bara mjög ánægður með það,“ segir Aron en tveimur dögum áður en umsóknarfrestur rann út í Músíktilraunir byrjuðu strákarnir að búa til músík. Frétt af mbl.is Rokk, raftónlist og kraftmikil riff Beint á Aldrei fór ég suður Í sigurlaun hlaut hljómsveitin m.a. 20 hljóðverstíma ásamt hljóðmanni í Sundlauginni, tækifæri til að spila á tónlistarhátíðunum Aldrei fór ég suður og Iceland Airwaves, tækifæri til að koma fram í Stúdíó RÚV og á sumartónleikum hjá 12 Tónum og gjafabréf frá Icelandair til að taka flugið og spila erlendis. Það þýðir að Falinn gjóður er á leið á Ísafjörð um páskana og segir Arnar að bandið fái þar 20 mínútna „slot“. „Við erum ekki með mikið af lögum og þurfum að fara að koma saman og skrifa meira,“ segir hann. Ekki er eingöngu spilamennska framundan hjá Földum gjóði því Arnar segir hljómsveitina stefna í hljóðver á næstunni til að taka upp, hvort sem úr verði smáskífa eða plata. Frétt af mbl.is Sjaldséður gestur finnur nóg að éta við Akrafjall Aumingjalegt fyrir ránfugl Blaðamanni lék forvitni á að vita hvernig strákunum kom í hug nafnið Falinn gjóður á hljómsveitina en gjóður er kannski ekki þekktasti fuglinn eða dýrið ef því er að skipta í náttúrunni. „Sko, í rauninni er það ekkert flóknara en það að okkur finnst þetta bara fyndið orðasamband. Gjóður er mjög hraðskreiður ránfugl og orðið sjálft er fyndið. Það passar kannski ekki beint við einhvern ránfugl og er svona heldur aumingjalegt.“ Eruð þið fuglaáhugamenn? „Já, við erum miklir fuglaáhugamenn. Það halda samt margir að þetta sé falinn sjóður en það er ekki þannig, segir Aron og hlær.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Blogga um frétt Mest lesið Í gær Í vikunni „Til fjandans með drottninguna!“ Falinn gjóður sigraði í Músíktilraunum Blóð, sviti og tár Enginn gerir mig reiðari Katla hlýtur Nicholl-styrk Bandarísku kvikmyndaakademíunnar Fann ung að hún væri öðruvísi í útliti Taka á móti 20.000 gestum en óttast ekki vanhelgun Rokk, raftónlist og kraftmikil riff 45,6 milljónum úthlutað til 83 verkefna Uppselt á lokatónleika Sinfó í Evrópuferðinni „Til fjandans með drottninguna!“ Enginn gerir mig reiðari Katla hlýtur Nicholl-styrk Bandarísku kvikmyndaakademíunnar Taka á móti 20.000 gestum en óttast ekki vanhelgun Falinn gjóður sigraði í Músíktilraunum 45,6 milljónum úthlutað til 83 verkefna Dagskrá Listahátíðar 2026 kynnt Flytja allar sex mótettur Bachs Þora að fara í hættulegt ferðalag Uppselt á lokatónleika Sinfó í Evrópuferðinni 100 manns sóttu um eina stöðu „Til fjandans með drottninguna!“ Bubbi spáir hruni Spotify Þora að fara í hættulegt ferðalag Taka á móti 20.000 gestum en óttast ekki vanhelgun Reynir að vera sem ósýnilegust Var týndur um tíma Haldið í gíslingu í 63 klukkustundir Falinn gjóður sigraði í Músíktilraunum Enginn gerir mig reiðari Áhugaverð viðtöl Menning Upplifði hryllingstilfinningu Menning Hvöt og nauðsyn sem yfirtekur allt Menning Bæði hættulegur og nærandi Menning Óttaðist að missa barnið sitt Menning „Þau voru svolítið hneyksluð í fyrstu“ Mest lesið Í gær Í vikunni „Til fjandans með drottninguna!“ Falinn gjóður sigraði í Músíktilraunum Blóð, sviti og tár Enginn gerir mig reiðari Katla hlýtur Nicholl-styrk Bandarísku kvikmyndaakademíunnar Fann ung að hún væri öðruvísi í útliti Taka á móti 20.000 gestum en óttast ekki vanhelgun Rokk, raftónlist og kraftmikil riff 45,6 milljónum úthlutað til 83 verkefna Uppselt á lokatónleika Sinfó í Evrópuferðinni „Til fjandans með drottninguna!“ Enginn gerir mig reiðari Katla hlýtur Nicholl-styrk Bandarísku kvikmyndaakademíunnar Taka á móti 20.000 gestum en óttast ekki vanhelgun Falinn gjóður sigraði í Músíktilraunum 45,6 milljónum úthlutað til 83 verkefna Dagskrá Listahátíðar 2026 kynnt Flytja allar sex mótettur Bachs Þora að fara í hættulegt ferðalag Uppselt á lokatónleika Sinfó í Evrópuferðinni 100 manns sóttu um eina stöðu „Til fjandans með drottninguna!“ Bubbi spáir hruni Spotify Þora að fara í hættulegt ferðalag Taka á móti 20.000 gestum en óttast ekki vanhelgun Reynir að vera sem ósýnilegust Var týndur um tíma Haldið í gíslingu í 63 klukkustundir Falinn gjóður sigraði í Músíktilraunum Enginn gerir mig reiðari Áhugaverð viðtöl Menning Hrá, hörð og kraftmikil Carmen Menning Reynir að vera sem ósýnilegust Menning Fljótið brúnt allan ársins hring Menning Skaut af sér handlegginn Menning „Maður verður einfaldlega að hlýða“