Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Nýstofnuð sigursveit: Fönkað progg eða sýrurokk

Read Full Article →

Innlent | mbl | 29.3.2026 | 13:49 | Uppfært 14:32 Nýstofnuð sigursveit: Fönkað progg eða sýrurokk Gleðin var fölskvalaus þegar úrslitin lágu fyrir. Ljósmynd/Árni Torfa Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Hljómsveitin Falinn gjóður úr Reykjavík, sem sigraði Músíktilraunir árið 2026, sækir innblástur meðal annars til Þursaflokksins og Frank Zappa. Hún blandar saman sterkum laglínum og skondnum textum til að skapa sérkennilegan hljóðheim. Aron Elí Arnarsson söngvari og bassaleikari Falins gjóðs var varla kominn niður á jörðina þegar blaðamaður hafði samband. Hann segir gærdaginn og kvöldið hafa verið ótrúlega skemmtilegt og eiginlega ótrúlegt í alla staði. Aron Elí lýsir tónlist hljómsveitarinnar sem einhvers konar fönkuðu progg rokki eða sækadelísku rokki en sveitin varð til fyrir aðeins nokkrum vikum gagngert til að taka þátt í Músíktilraunum. Á Facebook-síðu Músíktilrauna má kynna sér tónlistarsköpun Falins gjóðs en sveitin var fyrst á svið á úrslitakvöldinu í gær (u.þ.b. 00:20:07). Þar má sömuleiðis kynna sér aðrar sveitir en hver sveit lék þrjú lög í gær. Hljómsveitin er úr Reykjavík. Ljósmynd/Árni Torfa Frétt af mbl.is Falinn gjóður sigraði í Músíktilraunum Enginn trommari Með Aroni í bandinu eru þeir Baldur Þórarinsson sem spilar á hljómborð og syngur og Þorri Hrafnsson sem spilar á rafmagnsgítar og fleira. Athygli vekur að ekki er trommari í hljómsveitinni en Baldur stýrir trommuheila. Strákarnir eru 15 og 16 ára, allir fæddir árið 2010. Þorri og Baldur þekktust áður en hljómsveitin varð til en þegar Aron flutti sig yfir í Hagaskóla úr Hafnarfirði kynntist hann Baldri og Þorra þekkti hann úr Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. „Ég segi bara: „Strákar, eigum við ekki bara að skella okkur í Músíktilraunir?“ svo ég svona sameinaði þá á ný og þetta hefur bara heppnast ótrúlega vel og ég er bara mjög ánægður með það,“ segir Aron en tveimur dögum áður en umsóknarfrestur rann út í Músíktilraunir byrjuðu strákarnir að búa til músík. Frétt af mbl.is Rokk, raftónlist og kraftmikil riff Beint á Aldrei fór ég suður Í sigurlaun hlaut hljómsveitin m.a. 20 hljóðverstíma ásamt hljóðmanni í Sundlauginni, tækifæri til að spila á tónlistarhátíðunum Aldrei fór ég suður og Iceland Airwaves, tækifæri til að koma fram í Stúdíó RÚV og á sumartónleikum hjá 12 Tónum og gjafabréf frá Icelandair til að taka flugið og spila erlendis. Það þýðir að Falinn gjóður er á leið á Ísafjörð um páskana og segir Arnar að bandið fái þar 20 mínútna „slot“. „Við erum ekki með mikið af lögum og þurfum að fara að koma saman og skrifa meira,“ segir hann. Ekki er eingöngu spilamennska framundan hjá Földum gjóði því Arnar segir hljómsveitina stefna í hljóðver á næstunni til að taka upp, hvort sem úr verði smáskífa eða plata. Frétt af mbl.is Sjaldséður gestur finnur nóg að éta við Akrafjall Aumingjalegt fyrir ránfugl Blaðamanni lék forvitni á að vita hvernig strákunum kom í hug nafnið Falinn gjóður á hljómsveitina en gjóður er kannski ekki þekktasti fuglinn eða dýrið ef því er að skipta í náttúrunni. „Sko, í rauninni er það ekkert flóknara en það að okkur finnst þetta bara fyndið orðasamband. Gjóður er mjög hraðskreiður ránfugl og orðið sjálft er fyndið. Það passar kannski ekki beint við einhvern ránfugl og er svona heldur aumingjalegt.“ Eruð þið fuglaáhugamenn? „Já, við erum miklir fuglaáhugamenn. Það halda samt margir að þetta sé falinn sjóður en það er ekki þannig, segir Aron og hlær.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Bikarmeistarar SKI í alpagreinum krýndir á glæsilegu lokahófi á Akureyri Ársæll hættur störfum: Ráðherra talar ekki við mig Holtavörðuheiði, Hellisheiði and Þrengsli now open Frá Eyjum til Skotlands Flight to Paris cancelled Umræðan Skaði og Njörður Orkuöryggi heimsins í uppnámi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Enginn gerir mig reiðari Snjóflóð féll á veginn og rúta í vandræðum Fannst heill á húfi eftir snjóflóð á Ólafsfirði „Það er að byrja að snjóa og bæta í vind“ Mest lesið Í gær Í vikunni Eftirlýstur og brjálaður í miðbænum Flugi til Parísar aflýst Rúta hafnaði utan vegar á heimavelli Cohen var hinn fullkomni gestgjafi Snjóflóð féll á veginn og rúta í vandræðum Aldrei bar skugga á okkar vináttu Vegum breytt fyrir vindmyllurnar Staðfesting á leyfi fósturforeldra ekki til staðar Holtavörðuheiðin er lokuð Bílar fastir í Norðdal Ísland yrði eitt ríkasta landið í ESB Erfið akstursskilyrði eftir klukkan 16 Vegir frá borginni lokaðir eða á óvissustigi Lögbann á veiðimenn sem brutu 30 lása Engin blóðtengsl við fjölskyldu­sameiningu Fannst heill á húfi eftir snjóflóð á Ólafsfirði Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Icelandair aflýsir Bandaríkjaflugi Gæslan aðstoðaði lögregluna á Egilsstöðum Hætta hringsóli á bílastæðum Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið „Ég er harmi slegin“ Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við blindbyl Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Nýjast á mbl.is » Bikarmeistarar SKI í alpagreinum krýndir á glæsilegu lokahófi á Akureyri Ársæll hættur störfum: Ráðherra talar ekki við mig Holtavörðuheiði, Hellisheiði and Þrengsli now open Frá Eyjum til Skotlands Flight to Paris cancelled Umræðan Skaði og Njörður Orkuöryggi heimsins í uppnámi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Cohen var hinn fullkomni gestgjafi Reyni að koma nemendum til manns Telja ferðamenn örugga við jökulinn Aldrei bar skugga á okkar vináttu Mest lesið Í gær Í vikunni Eftirlýstur og brjálaður í miðbænum Flugi til Parísar aflýst Rúta hafnaði utan vegar á heimavelli Cohen var hinn fullkomni gestgjafi Snjóflóð féll á veginn og rúta í vandræðum Aldrei bar skugga á okkar vináttu Vegum breytt fyrir vindmyllurnar Staðfesting á leyfi fósturforeldra ekki til staðar Holtavörðuheiðin er lokuð Bílar fastir í Norðdal Ísland yrði eitt ríkasta landið í ESB Erfið akstursskilyrði eftir klukkan 16 Vegir frá borginni lokaðir eða á óvissustigi Lögbann á veiðimenn sem brutu 30 lása Engin blóðtengsl við fjölskyldu­sameiningu Fannst heill á húfi eftir snjóflóð á Ólafsfirði Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Icelandair aflýsir Bandaríkjaflugi Gæslan aðstoðaði lögregluna á Egilsstöðum Hætta hringsóli á bílastæðum Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið „Ég er harmi slegin“ Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við blindbyl Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar

Share this article