Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Runólfur: Nú er lag að lækka kolefnisgjaldið

Read Full Article →

Innlent | mbl | 30.3.2026 | 15:40 Runólfur: Nú er lag að lækka kolefnisgjaldið Runólfur Ólafsson vill að stjórnvöld grípi til aðgerða. Samsett mynd/mbl.is/Eggert Jóhannesson/Árni Sæberg Freyr Bjarnason [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Íran Hótar gjöreyðileggingu raforkuvera og olíulinda Lokar lofthelgi fyrir bandarískum herflugvélum Segir stjórnarskiptum hafa verið náð Hvað er svona merkilegt við Kharg-eyju? Yfirmaður sjóhers Byltingarvarðarins drepinn » Fleiri tengdar fréttir Til þess að bregðast við hækkun eldsneytisverðs vegna átakanna í Mið-Austurlöndum væri lag fyrir stjórnvöld að lækka kolefnisgjaldið. Þetta segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, spurður hvort ríkisstjórnin ætti að bregðast við hækkun eldsneytisverðsins með einhverjum hætti. Norska ríkisstjórnin hefur ákveðið að lækka tímabundið gjöld á bensín- og dísilolíu vegna hækkandi olíuverðs. Stutt er síðan sænska ríkisstjórnin lagði svipaðar aðgerðir til eftir að Bandaríkin og Ísrael hófu stríð gegn Íran. Frétt af mbl.is Noregur lækkar gjöld á bensín og dísilolíu Frétt af mbl.is Vilja lækka eldsneytisskatta vegna stríðsins Væri eðlilegt „Mér fyndist það mjög eðlilegt. Það er búið að breyta skattlagningu á eldsneyti. Frá síðustu áramótum var tekið upp kílómetragjald og olíugjaldið og vörugjöldin á bensín duttu út. Á sama tíma reyndar var kolefnisgjaldið hækkað hressilega,” segir hann. „Kolefnisgjaldið á bensín með virðisaukaskatti er ríflega 30 krónur á lítra og gjaldið á díselolíuna er með virðisaukaskatti um 35 krónur á lítra. Þar tel ég að sé lag fyrir stjórnvöld að grípa til aðgerða,” svarar Runólfur. Frétt af mbl.is Hækkanir muni hafa veruleg áhrif Hann bætir við að einnig mætti skoða, þótt ekki væri nema tímabundið, að lækka kílómetragjaldið, enda sjái ekki fyrir endann á hækkun eldsneytisgjalda vegna átakanna í Persaflóa. Kolefnisgjaldið hækkaði hérlendis í byrjun árs 2025. Einu ári síðar, 1. janúar síðastliðinn, hækkaði síðan það um 100%, greinir Runólfur frá. Bílar á ferðinni í Reykjavík. mbl.is/Eggert Jóhannesson Áður gripið til tímabundinna aðgerða Hann segir stjórnvöld hérlendis hafa áður gripið til tímabundinna aðgerða vegna hækkandi eldsneytisverðs, þar á meðal á árunum 1990 og 1996. Ákveðið hefði einnig verið að hækka eldsneytisgjöld ekki tímabundið í samræmi við verðlagsþróun. „Þetta er stýritæki til þess að reyna að hafa aðeins hemil á verðbólguáhrifum og kostnaði fyrirtækja og heimila vegna eldsneytis. Þetta sáldrast út í allt okkar vöruverð.” Eldsneyti hjá Costco hækkað mest Eldsneytisverð hérlendis hefur frá síðustu mánaðamótum, skömmu eftir að átökin í Mið-Austurlöndum hófust, hækkað mest hjá Costco, eða um tæplega 36 krónur á bensínlítrann og tæplega 49 krónur á lítrann af díseli. „Munurinn hefur dregist hressilega saman,” segir Runólfur um verðmuninn á milli Costco og Orkunnar á bensín- og díselverði sem er í dag ekki nema fimm krónur en var 15 krónur um síðustu mánaðamót. Biðröð er algeng sjón við bensínstöð Costco í Garðabæ. mbl.is/Árni Sæberg Litlar áhyggjur af skömmtun Fyrir viku var greint frá því að Slóvenar hefðu ákveðið að hefja skömmtun eldsneytis. Spurður kveðst Runólfur hafa litlar áhyggjur af því að slíkt gæti gerst hér á landi því Ísland fái eldsneytið sitt nánast einvörðungu frá Noregi. Hormússund í Persaflóa hafi ekki áhrif á það. Vandamálið í Slóveníu snúist jafnframt að stóru leyti um gasnotkun í heimahúsum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Íran Hótar gjöreyðileggingu raforkuvera og olíulinda Lokar lofthelgi fyrir bandarískum herflugvélum Segir stjórnarskiptum hafa verið náð Hvað er svona merkilegt við Kharg-eyju? Yfirmaður sjóhers Byltingarvarðarins drepinn » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Trump sögð reið eftir handtöku Woods Runólfur: Nú er lag að lækka kolefnisgjaldið Kærir Samskipamálið til Landsréttar „Skynja rosalega mikla reiði“ „Fær okkur til að hlæja“ Umræðan Hallalaust í boði heimilanna Á dagskrá: Stríð við Íran og aðild að „Evrópu“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lögbann á umferð um einkaveg við Iðu Fá ekki leyfi til að rífa braggann Segja fyrirsætuskrifstofur hafa unnið með Epstein „Skynja rosalega mikla reiði“ Mest lesið Í gær Í vikunni Hópur ferðamanna setti allt í vasana Lögreglan lýsir eftir manni og birtir myndir Fá ekki leyfi til að rífa braggann Slysið komið á borð rannsóknarnefndar Vitnum boðin áfallahjálp Samstarf léttir álag á bráðamóttöku Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Þúsundir undirskrifta gegn kílómetragjaldi „Þetta fólk var ekki að gera þetta í fyrsta skipti“ Almenningur borgar skattahækkanir Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss Flugi til Parísar aflýst Eftirlýstur og brjálaður í miðbænum Aldrei bar skugga á okkar vináttu Versluninni Ríteil Kids lokað Rúta hafnaði utan vegar á heimavelli Fljúgandi skíði á þjóðveginum Cohen var hinn fullkomni gestgjafi Snjóflóð féll á veginn og rúta í vandræðum Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið „Ég er harmi slegin“ Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Nýjast á mbl.is » Trump sögð reið eftir handtöku Woods Runólfur: Nú er lag að lækka kolefnisgjaldið Kærir Samskipamálið til Landsréttar „Skynja rosalega mikla reiði“ „Fær okkur til að hlæja“ Umræðan Hallalaust í boði heimilanna Á dagskrá: Stríð við Íran og aðild að „Evrópu“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Fá ekki leyfi til að rífa braggann „Skynja rosalega mikla reiði“ Hópur ferðamanna setti allt í vasana Mest lesið Í gær Í vikunni Hópur ferðamanna setti allt í vasana Lögreglan lýsir eftir manni og birtir myndir Fá ekki leyfi til að rífa braggann Slysið komið á borð rannsóknarnefndar Vitnum boðin áfallahjálp Samstarf léttir álag á bráðamóttöku Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Þúsundir undirskrifta gegn kílómetragjaldi „Þetta fólk var ekki að gera þetta í fyrsta skipti“ Almenningur borgar skattahækkanir Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss Flugi til Parísar aflýst Eftirlýstur og brjálaður í miðbænum Aldrei bar skugga á okkar vináttu Versluninni Ríteil Kids lokað Rúta hafnaði utan vegar á heimavelli Fljúgandi skíði á þjóðveginum Cohen var hinn fullkomni gestgjafi Snjóflóð féll á veginn og rúta í vandræðum Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið „Ég er harmi slegin“ Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri

Share this article