Birtingur NK hélt til veiða frá Hafnarfirði síðastliðna nótt og er um prufutúr að ræða. Gert er ráð fyrir að skipið komi að landi í fyrramálið og hefji síðan veiðar af fullum krafti eftir páskahátíðina. Haustið 2024 festi Síldarvinnslan kaup á ferskfisktogaranum Þóri SF af Skinney-Þinganesi á Hornafirði. Þegar skipið komst í eigu Síldarvinnslunnar fékk það nafnið Birtingur. Skipið hefur að mestu legið í Hafnarfjarðarhöfn eftir að það komst í eigu Síldarvinnslunnar og þar hefur verið unnið að ýmsum umbótum á því, að sögn Grétars Arnar Sigfinnssonar, rekstrarstjóra útgerðar fyrirtækisins. Skipið var smíðað í Taívan árið 2009 og er það 637 brúttótonn að stærð. Árið 2019 voru gerðar all umfangsmiklar breytingar á skipinu og var það þá meðal annars lengt um 10 metra. Í skipinu er fullkominn vinnslubúnaður og spilkerfi þess hefur að miklu leyti verið endurnýjaður. Eins og fram hefur komið mun Birtingur verða gerður út í stað togaranna Jóhönnu Gísladóttur GK og Gullvers NS. Á Birtingi verða tvær áhafnir og verða þeir Hjálmar Ólafur Bjarnason og Einar Ólafur Ágústsson skipstjórar.