Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Birtingur NK landar 82 tonnum, mest þorski

Read Full Article →

Ísfisktogarinn Birtingur NK kom til Neskaupstaðar í morgun að lokinni veiðiferð. Afli skipsins var 82 tonn, mest þorskur. Einar Ólaf Ágústsson skipstjóri segir í samtali við tíðindamann heimasíðu Síldarvinnslunnar að túrinn hefði gengið misjafnlega. „Aflann fengum við að langmestu leyti á Fætinum en svo var einnig dálítið veitt á Verkamannabankanum. Við reyndum að leita að ýsu með skelfilegum árangri. Mest var leitað á Breiðdalsgrunni og reyndar var víðar farið. Sannleikurinn er sá að það hefur ekki verið nein sérstök veiði á þessum slóðum að undanförnu og ýsuna vantar algjörlega. Hún er bara ekki mætt. Þorskurinn sem fékkst er hins vegar hinn ágætasti og hentar örugglega mjög vel í vinnsluna. Veðrið í túrnum var hreint út sagt alveg fáránlega gott. Það eru engar ýkjur að veðrið er yfirleitt best hérna austurfrá,” sagði Einar Ólafur. Birtingur mun á ný halda til veiða í kvöld.

Share this article