Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Skáldaði símtal við fulltrúa pennafyrirtækis

Read Full Article →

Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði nýlega frá símtali sem hann átti við framleiðanda Sharpie-penna á blaðamannafundi. Trump lýsti símtalinu með ítarlegum hætti í nokkrar mínútur þar sem hann hélt því fram að framleiðandinn vildi gefa honum ókeypis penna. Hinir umræddu tússpennar eru framleiddir af fyrirtækinu Newell Brands en þegar Washington Post setti sig í samband við fyrirtækið kannaðist enginn við að neitt samtal við forsetann hefði átt sér stað. „Við höfum engar upplýsingar um þetta umrædda samtal en við erum stolt af því að vera vinsælt vörumerki sem nýtur trausts um allan heim,“ sagði talsmaður Newell Brands. Trump greindi frá símtalinu á blaðamannafundi fyrir síðustu helgi þar sem hann ræddi meðal annars stríðið í Íran og stöðu bandaríska innanríkisráðuneytisins. Forsetinn hélt þá á penna og sagði að hann væri ódýr en áreiðanlegur. Sjá einnig Ind­verjar kannast ekkert við full­yrðingar Trump Hann bætti við að hann vildi ekki nota hefðbundna Sharpie-tússpenna með áberandi vörumerki framleiðandans við undirritun mikilvægra samninga en kvartaði yfir því að hafa áður notast við rándýra 1.000 dala penna sem virkuðu ekki alltaf. Forsetinn byrjaði þá allt í einu að lýsa símtali sem hann átti við fulltrúa Sharpie þar sem hann óskaði eftir sérsniðnum penna. Að sögn Trump var honum boðið að fá svartan penna eða jafnvel penna með mynd af Hvíta húsinu í gylltum lit með eigin undirskrift. „Síðan sagði hann við mig: Þú þarft ekkert að borga mér. Ég skal gefa þér hann ókeypis. Ég sagði nei, þú þarft ekki að gera það, ég skal borga þér. En hann sagði nei, þú þarft ekki að gera það. Þú ert forseti Bandaríkjanna.“ Trump bætti svo við að fulltrúinn hefði verið mjög hissa og heiðraður yfir því að fá símtal frá forsetanum. Hann fullyrti að lokum að verðsamkomulag hefði náðst og að fyrirtækið myndi fá greitt fimm dali, eða 620 krónur, fyrir hvern penna.

Share this article