Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fjölmiðlafyrirtæki Trumps hyggst selja flýtiaðgang að færslum forsetans

Read Full Article →

Fjölmiðlafyrirtæki Donalds Trump tilkynnti í dag að það hygðist selja flýtiaðgang að færslum Bandaríkjaforseta á samfélagsmiðlum sem geta haft áhrif á markaði. Fréttastofan AFP greinir frá þessu. Með þessu móti græðir fjölmiðlafyrirtæki Trumps á færslum hans á miðlinum Truth Social. Hann notar miðilinn mikið til að gefa upplýsingar um alls konar mál sem oftar en ekki rata í fyrirsagnir um allan heim. Fyrirtækið, Trump Media, segir að svokölluð Truth API-þjónusta veiti leyfisskyldan rauntímaaðgang að færslum á þeim síðum sem njóta mestrar hylli á Truth Social. Flýtiaðgangurinn, sem verður tekinn í notkun1. ágúst, gæti nýst verðbréfasölum og fjármálafréttamiðlum þar sem sekúndubrot skipta máli þegar kemur að nýjustu fréttum. Brúar bilið fyrir fyrirtæki sem hafa treyst á handvirka vöktun „Markaðir hreyfast nú þegar við færslur á Truth Social,“ sagði Kevin McGurn, forstjóri Trump Media og Technology Group. Fyrirtækið segir að þessi þjónustan eigi að hjálpa til við að brúa bilið hjá þeim fyrirtæki sem hingað til hafa vaktað færslur á Truth Social handvirkt. Trump stofnaði Truth Social þegar honum var bannaður aðgangur að Twitter, sem nú heitir X, eftir árás stuðningsmanna hans á þinghúsið í Bandaríkjunum sem reyndu að snúa við ósigri hans í kosningunum árið 2020. Miðillinn er nú hans helsti vettvangur til að koma á framfæri mikilvægum tilkynningum. Fréttastofa AFP segir að sala á aðgangi að færslum hans veki spurningar um hvort Trump hagnist persónulega á forsetaembættinu. Samkvæmt opinberum gögnum sem birt voru í júní þénaði hann að minnsta kosti 1,2 milljarða dala á rafmyntarstarfsemi fjölskyldu sinnar í fyrra.

Share this article