Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Miðstöðin er nýr þáttur um dægurmenningu á RÚV

Read Full Article →

„Mörg okkar eru reglulega að velta fyrir sér hvað eigi að hlusta eða horfa á, hvaða tónleika eigi að fara á og svo framvegis. Í Miðstöðinni ætlum við að reyna að svara þessum spurningum,“ segir Sigurður Þorri Gunnarsson, betur þekktur sem Siggi Gunnars, um þennan nýja vikulega sjónvarpsþátt sem hann mun stýra. „Það er svo ótrúlega margt skemmtilegt í gangi og við ætlum að beina sjónum okkar að því. Við ætlum að heimsækja áhugavert fólk og fá góða gesti í myndver til að kryfja helstu strauma og stefnur. Svo verður lifandi tónlist og þannig mætti áfram telja,“, útskýrir Siggi. Miðstöðin verður á dagskrá RÚV á fimmtudagskvöldum kl. 20.15 og fyrsti þátturinn fer í loftið fimmtudaginn 9. apríl. „Í fyrsta þættinum fáum við að kynnast nýrri hlið á tónlistarmanninum Friðriki Dór, hlið sem ég veit að á eftir að koma mörgum á óvart! Svo ætlum við að kryfja þær tónlistarhátíðir og stórtónleika sem eru framundan í vor og sumar og heyra í tónlistarmanninum Ágústi Brynjarssyni sem þjóðin kynntist í Söngvakeppninni í fyrra. Það er mikið að gerast hjá honum þessa dagana, hann var nýlega kynntur sem nýr brekkusöngvari og svo er hann að fara að gefa út sína fyrstu plötu“, segir Siggi um fyrsta þáttinn en þar mun Ágúst einmitt frumflytja nýtt lag ásamt Unu Torfa. Sigga hefur reglulega brugðið fyrir á skjánum undanfarin ár en hann er þó þekktari fyrir störf sín í útvarpinu. „Mér finnst gríðarlega skemmtilegt að fá að færa mig yfir í sjónvarpið, þótt ég sakni þess auðvitað stundum að vera í loftinu á Rás 2 en þetta er spennandi tækifæri sem ég er þakklátur fyrir,” segir Siggi og bætir við að hann voni að Miðstöðin muni gleðja áhorfendur.

Share this article