Tveir leikir eru á dagskrá í 32-liða úrslitum bikarkeppni karla í fótbolta í dag. Leikur Stjörnunnar gegn Selfoss verður sýndur beint á RÚV klukkan 15:00. Selfoss er í annari deild og Stjarnan í þeirri bestu. Mikil eftirvænting er eftir því að sjá framlínu Selfyssingina en fyrrum landsliðsmennirnir Jón Daði Böðvarsson og Viðar Örn Kjartansson mynda hana. Leikur Ægis og Árbæjar hefst einnig klukkan 15:00. Mörkin úr þeim leik má sjá á RÚV.is, Facebook síðu íþróttadeildar og í bikarmörkum 6. apríl næstkomandi.