Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Þessir dagar eru búnir að vera mjög skrýtnir“

Read Full Article →

Keppni hófst í úrvalsdeild kvenna í handbolta í dag. Ríkjandi Íslandsmeistarar, Valskonur, fengu Selfyssinga í heimsókn en aðdragandi þeirra síðarnefndu að leiknum var styttri en annarra. Aðeins níu dagar eru síðan Selfyssingar fengu boð um að taka sæti í efstu deild þegar Víkingar ákváðu að draga lið sitt úr keppni. Liðum var fjölgað úr átta í tíu fyrir tímabilið en Selfyssingar féllu í fyrra. Lítill undirbúningur virtist þó ekki trufla lið Selfoss því eftir jafna byrjun voru gestirnir komnir sjö mörkum yfir undir lok fyrri hálfleiksins og leiddu í hálfleik 14-7. Selfoss náði mest níu marka forystu í seinni hálfleik en vann að lokum talsvert óvæntan sigur, 25-21 . „Mun meira sannfærandi en þeir draumar voru að segja mér“ Eyþór Lárusson, þjálfari Selfoss, segir að þessir yfirburðir hafi komið sér á óvart. „Ég sá kannski fyrir mér í einhverjum heimi að vinna þennan leik og setja pressu á Valsstelpurnar í leiknum en mér fannst þetta mun meira sannfærandi en þeir draumar voru að segja mér. Þessir dagar í aðdraganda leiksins eru búnir að vera mjög skrýtnir. Vinnan hefur einhvern veginn verið að koma leikmönnum rétt stilltum inn í þennan leik. Þó við höfum ekki talað um það opinberlega þá er það búið að vera gerjast síðan ársþingið samþykkti þetta,“ segir Eyþór. Óvænt úrslit urðu þegar keppni hófst í úrvalsdeild kvenna í handbolta í dag. Aðeins eru níu dagar síðan Selfyssingum var úthlutað laust sæti í deildinni en Selfoss vann öruggan sigur á Íslandsmeisturunum í Val. Perla Ruth Albertsdóttir , leikmaður Selfoss, segir að það hafi gripið um sig mikil spenna í leikmannahópnum fyrir því að mæta Íslandsmeisturunum í fyrsta leik. „Við erum búnar að hlakka mjög mikið til þessa níu daga, líka þegar við fengum að vita að við fengjum þennan leik, á móti þreföldum meisturum. Við vorum staðráðnar í að sýna að við eigum heima í þessari deild.“ Segir Selfoss með þunnskipaðan leikmannahóp Eyþór þjálfari viðurkennir um leið að eftir svona skamman undirbúning fyrir úrvalsdeildina búi Selfossliðið ekki yfir nógu mikilli breidd fyrir allt tímabilið sem er framundan. „Hópurinn, eins og staðan er í dag, er ekkert rosalega breiður. Hann er frekar þunnur. Við sáum fyrir okkur að geta komið ennþá yngri leikmönnum aðeins inn í þetta en það er ekki skynsamlegt að gera það mikið í Olís deildinni. Við hefðum styrkt okkur eða alla vega haldið útlendingunum okkar. Við sjáum hvort við finnum einhverjar leiðir.“ „Alls ekki gott og ekki í boði“ Anton Rúnarsson , þjálfari Vals, gengst við því að þetta hafi verið óvænt úrslit. „Jú, klárlega. Við erum á heimavelli og ætluðum okkur klárlega sigur í fyrsta leik í deildinni. Það hafa verið breytingar á liðinu og meiðsli og fleira en það er bara engin afsökun. Við vorum að spila vel á móti Haukum í meistaraleiknum en við vorum bara vanstilltar. Þetta var alls ekki gott og ekki í boði.“ Úrslit dagsins ÍR-Stjarnan 23-20 ÍBV - KA/Þór 32-28 Valur - Selfoss 21-25 Fram - Grótta - kl. 18:15 Haukar - HK - 6. sept. kl. 15:00.

Share this article