Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Bað fyrir friði í heimi lituðum af stríði, sinnuleysi og hatri

Read Full Article →

Leó páfi XIV kallaði eftir því að leiðtogar heimsins veldu frið fram yfir átök í fyrstu páskamessu sinni í Vatíkaninu í dag. Hann tók við embætti eftir að Frans páfi lést í apríl í fyrra. Páfinn flutti ávarp sitt frá svölum Péturskirkjunnar við Péturstorg í morgun. Þar sagði hann mikilvægt að segja skilið við löngun til átaka, yfirráða og valds. Þess í stað bað hann Drottin um að færa frið í heimi lituðum af stríði, sinnuleysi og hatri – í heimi þar sem fólk upplifi sig oft máttlaust gagnvart hinu illa. „Þeir sem eiga vopn skulu leggja þau niður. Þeir sem hafa vald til að hefja stríð skulu velja frið. Ekki frið sem er þvingaður með valdi, heldur náð fram með samræðum. Ekki með löngun til þess að drottna yfir öðrum heldur til að mæta þeim,“ sagði páfinn. „Oft virðist Guð ekki vera til“ Þúsundir söfnuðust saman til að hlusta á Leó XIV. Hann tók undir orð forvera síns, Frans páfa, um að ofbeldi væri orðið svo algengt að fólk væri farið að venjast því og léti það sig ekki varða. Þá minnti hann á að boðskapur páskanna væri laus við allt ofbeldi og að kristnir menn fagni upprisu Jesú Krists frá dauðum. „Oft virðist Guð ekki vera til: allt í kringum okkur sjáum við viðvarandi óréttlæti, illsku, sinnuleysi og grimmd. En það er líka satt að í myrkrinu festir alltaf eitthvað nýtt rætur og ber ávöxt fyrr eða síðar,“ sagði páfinn. „Páskarnir gefa okkur þessa von þegar við minnumst þess að með upprisu Krists færir hver dagur ný tækifæri.“

Share this article