Saga skíðasvæðisins í Skálafelli nær aftur til ársins 1934 en þá lögðu fyrstu KR-ingarnir leið sína í fjallið og byggðu þar skíðaskála. Svæðið var byggt upp af sjálfboðaliðum á vegum skíðadeildarinnar en árið 1991 tóku sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu við rekstrinum. Skálafell hefur verið í rekstri, af og á, síðan. Þrátt fyrir að allur aðbúnaður til skíðaiðkunar sé til staðar hefur svæðið verið lokað í fjögur ár. Lyfturnar eru tilbúnar til að taka á móti fólki en það er ekki vilji til að reka svæðið, segir Guðmundur Guðjónsson, formaður skíðadeildar KR. Skíðalyfturnar í Skálafelli hafa staðið ónotaðar í mörg ár og liggja undir skemmdum vegna áhugaleysis sveitarfélaga á að opna svæðið. Grátlegt hirðuleysi, segir formaður Skíðadeildar KR, sem rak svæðið í áratugi. Framtíðarsýnin teiknuð upp um aldamótin Upp úr aldamótum var ákveðið, með samþykki allra skíðadeilda á höfuðborgarsvæðinu, að fara í uppbyggingu bæði í Bláfjöllum og Skálafelli. Sérfræðingar frá Noregi teiknuðu upp framtíðarsýn fyrir Skálafell. Í þeirri áætlun var gert ráð fyrir snjóframleiðslu og nægu brekkuplássi fyrir skíðafólk. „Í þessari greiningu var þetta plan gert, 2 stólalyftur í Skálafelli,“ segir Guðmundur. Þessi áform runnu út í sandinn. En 2018 var aftur ákveðið að fara í uppbyggingu og í Bláfjöllum eru nú komnar tvær nýjar stólalyftur og snjóframleiðslukerfi. Guðmundur segir að brekkurnar í Bláfjöllum anni ekki þeim fjölda sem nýju lyfturnar flytja. „Þar eru bara ekki brekkur til þess að taka við skíðafólkinu. Og það er erfitt að horfa á að við höfum sett svona mikla peninga, marga milljarða, í þessa uppbyggingu sem skilar ekki því sem við þurfum.“ Myndi bæta aðstöðu skíðafólks til muna að opna Skálafell Guðmundur segir það ábyrgðarhlut að láta eigur borgarbúa standa ónotaðar og liggja undir skemmdum, líkt og skíðalyfturnar í Skálafelli. „Í minni sveit var þetta nú bara kallað hirðuleysi.“ Með opnun Skálafells væri hægt að bæta aðstöðu til skíðaiðkunar og fjölga brekkufermetrum, segir Guðmundur. Hægt væri að opna diskalyfturnar með stuttum fyrirvara. „Það er allt til staðar. Það væri hægt að opna þetta bara með því að hengja spjöld á diskalyftuna hérna fyrir aftan okkur og hafa hana opna fyrir börnin allavega.“ Guðmundur er sannfærður um að margir vilji renna niður Skálafellið. „Það er bara grátlegt að sjá fullkomið svæði, tilbúið til þess að taka á móti fólki. En ekki opið.“